Vivaldi vafri fyrir kröfuharða notendur kominn á markað

Vef­vafr­inn Vivaldi er kom­inn á markað og til­bú­inn til notk­unar. Mikið hefur verið fjallað um þennan vafra í erlendum fjöl­miðlum en fyr­ir­tækið Vivaldi er að stærstum hluta í eigu hins íslenska Jón von Tetzchner.

Ný opin­ber útgáfa Vivaldi-vef­vafrans er komin út. Töluvert hefur verið fjallað um þennan nýja vafra í erlendum miðlum. Til dæmis var fréttin af vef­vafr­anum valin sjö­unda stærsta tækni­frétt í Evrópu síð­ustu viku á vefnum VentureBeat. Einnig hefur verið fjallað um vafr­ann og stofn­anda fyr­ir­tæk­is­ins, Jón von Tetzchner, í The Guardian, Forbes og Fortune.

Í frétta­til­kynn­ingu sem fyr­ir­tækið Vivaldi sendi frá sér þann 8. apríl segir: „Það sem gerir Vivaldi sér­stakan og öðru­vísi, er að hann er byggður á nútíma vef­tækni. Við notum JavaScript og React til að smíða not­enda­við­mótið með hjálp frá Node.js og löngum lista af NPM ein­ingum. Vivaldi er því byggður fyrir vef­inn með vefnum.

„Okkar mark­mið er að end­ur­vekja öfl­ugan vafra,“ segir Jon von Tetzchner fram­kvæmda­stjóri Vivaldi. „Þannig er Vivaldi 1.0, bæði end­ur­lit og fram­tíð­ar­sýn. Hann er hvort tveggja í senn nútíma­legur og klass­ískur, hann­aður til að hjálpa not­endum að full­nýta þann tíma sem þeir eyða með vafr­anum sínum.“

„Millj­ónir not­enda hafa nú þegar látið í ljós ósk um nýjan vafra með fjöl­breytt­ari eig­in­leikum. Öll okkar þró­un­ar­vinna er unnin í þágu not­enda og fyrir þá. Engir fjár­festar eru að reyna að stýra vinnu­ferlum hjá okkur eða eru með þrýst­ing á okkur. Við höfum ekki sett upp neinar útgöngu­leiðir því við erum komin til að vera. Okkar eina hug­sjón er að færa fólki vafra sem það vill nota og við getum verið stolt af að kalla Vivaldi.“

Kjarninn hefur áður fjallað um fyr­ir­tækið Vivaldi og stofn­anda þess, Jón von Tetzchner. Fyr­ir­ flesta net­not­endur er vafri bara vafri og erfitt að sjá hvað einn vafri get­ur ­boðið upp á fram yfir ann­an. Jón sagði við Kjarnann að Vivaldi sé vafri fyrir not­endur sem krefj­ast meira. „Venju­legir not­endur sem eru bara að fara á Face­book og skoða nokkrar net­síður hafa enga þörf fyrir það sem við erum að byggja. En ef þú ert not­andi sem ert mikið á net­inu, til dæmis með mjög marga fána (e. tabs) opna, eða byrjar með marga fána, þá bjóðum við upp á svo­kallað „stack­ing“ sem þýð­ir að þú getur geymt marga fána undir ein­um. Þá er ein­fald­ara að finna hluti. Við fundum upp mögu­leik­ann að hafa síður hlið við hlið á sama skján­um. Og ýmis­leg­t ann­að. Þetta er fyrir stórnot­endur á net­in­u.“

Hægt er að nálg­ast vafr­ann á heima­síðu Vivaldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár