Notendur geta náð sér í Beta-útgáfu af Vivaldi

Almennir not­endur geta nú loks náð sér í Beta-útgáfu af Vivaldi-vef­vafr­anum, sem hefur verið í þróun und­an­farin miss­eri. Stór hluti þeirra starfs­manna sem unnið hafa að gerð vafrans eru stað­settir á Íslandi og fyr­ir­tækið er að stærstum hluta í eigu hins íslenska Jón Von Tetzchner.

Í til­kynn­ingu frá Vivaldi segir að til­gang­ur­inn hafi verið að þróa vafra sem væri hraður, öfl­ugur og aðlög­un­ar­hæfur fyrir stórnot­endur.

Hægt er að ná sér í vafr­ann hér.

Hefur fengið frábæra dóma

Vivaldi er fyr­ir­tæki sem frum­kvöðul­inn Jón Von Tetzchner stofn­aði fyrir nokkrum miss­erum. Það gaf út svo­kall­aða tækni­lega útgáfu af vafra í jan­úar síð­ast­liðnum, sem þýddi í raun að enn væri verið að þróa vafr­ann og útgáfan því ekki end­an­leg. Nú þegar er búið að nið­ur­hala vafr­anum í yfir tvö milljón skipti og hann hefur einnig fengið frá­bæra dóma hjá tækni­fjöl­miðlum.

Jón hafði áður byggt upp fyr­ir­tæki í kringum vef­vafra, Operu, sem hann seldi síðan. Í við­tali við Kjarnann í maí sagði hann að það hefði verið erfið ákvörðun að fara aftur í vafra­geir­ann. Hann taldi sig búinn með hann. „Þegar ég fór út úr Operu þá leit ég á það þannig að ég væri búinn með vafra­geir­ann. En svo á sér stað ákveðin ákvörð­un­ar­taka í Operu sem í fólst að þeir kasta grunn­inum og skipta um not­enda­hóp. Það eru 350 millj­ónir not­endur af Operu í dag. Ég myndi giska á að 300 millj­ónir þeirra séu að nota gamla grunn­inn. Þetta er sér­stakt. Opera sagði að þessi not­enda­hópur sem þeir væru með væru ein­hverjir nördar og að nú vildu þeir ná í venju­lega not­endur. Því var ákveðið að búa til ein­fald­ari vafra og fara í sam­keppni við alla. Ég tel það mjög erfitt. Að fara í sam­keppni án þess að hafa neinar við­bætur. Augjós­lega þarf vara að vera öðru­vísi til að hægt sé að keppa.“

Fyrir stórnotendur

Fyrir flesta net­not­endur er vafri bara vafri og erfitt að sjá hvað einn vafri getur boðið upp á fram yfir annan. Jón sagði við Kjarnann í maí að Vivaldi sé vafri fyrir not­endur sem krefj­ast meira. „Venju­legir not­endur sem eru bara að fara á Facebook og skoða nokkrar net­síður hafa enga þörf fyrir það sem við erum að byggja. En ef þú ert not­andi sem ert mikið á net­inu, til dæmis með mjög marga fána (e. tabs) opna, eða byrjar með marga fána, þá bjóðum við upp á svo­kallað „stacking“ sem þýðir að þú getur geymt marga fána undir einum. Þá er ein­fald­ara að finna hluti. Við fundum upp mögu­leik­ann að hafa síður hlið við hlið á sama skjánum. Og ýmis­legt annað. Þetta er fyrir stórnot­endur á net­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár