Það á ekki að byggja upp fyrirtæki einungis til þess að selja þau

Á Eiðis­torgi á Sel­tjarn­ar­nesi , í 800 fer­metra hús­næði sem árum saman hýsti starf­semi Lyfja­stofn­unar Íslands en stóð einnig autt lengi, er rek­inn merki­leg starf­semi, frum­kvöðla­setrið Innovation House. Þar fær fólk með ekk­ert annað en hug­mynd í fartesk­inu tæki­færi til að breyta henni í fyr­ir­tæki innan um marga aðra sem eru á sömu veg­ferð með sínar hug­myndir. Og þeir þurfa ein­ungis að borga nokkra þús­und­kalla fyrir aðstöð­una.

Þetta er ekki gróða­starf­semi heldur hug­sjón­ar­starf­semi. Maðurinn sem keypti hús­næðið, og rekur starf­sem­ina, Jón Von Tetzchner, hagn­ast ekki á fyr­ir­tækj­unum sem slíta barnskónum í þessu rými. Hann fær ekki hluta­bréf í þeim ef vel gengur eða hlut­deild í arði ef hann verður til. Innovation House er ekki hrað­all og það er ekki staður til að finna sér fjár­festa. Í stuttu máli þá er þetta ekki „bis­ness“ heldur gott og upp­byggi­legt umhverfi fyrir sprota­fyr­ir­tæki að reyna sig.

Jón seg­ist þó oft vera spurður um ráð frá þeim sem leigja rými í setr­inu. „Ráðin sem ég gef eru til­tölu­lega ein­föld: ekki taka lán, ekki setja sjálfan þig á haus­inn ef verk­efnið tekur of langan tíma og forðastu fjár­festa eins lengi og mögu­legt er.“

Það kemur fljótt í ljós þegar maður ræðir við Jón að hann vinnur eftir annarri hug­mynda­fræði en margir fjár­festar. Hann ákvað til dæmis að koma til Íslands með pen­ing­anna sína eftir hrun og fjár­festa í íslenskum frum­kvöðla­fyr­ir­tækjum. Alls á hann hlut í tíu fyr­ir­tækjum í dag, og átta þeirra eru á Íslandi.

Hann segir það ljóst að honum þyki umhverfið á Íslandi ekki alslæmt fyrst hann ákvað og koma með pen­ing­anna sína hingað og fjár­festa fyrir þá. „Þegar ég kom inn fannst manni eng­inn annar vera á staðnum. Það var lítið af sjóðum að fjár­festa á þessum tíma. Ég ákvað því að gera þetta sjálfur. Mér finnst þessi fyr­ir­tæki sem ég hef fjár­fest í rosa­lega góð og skemmti­leg. Og ég sé enga ástæðu fyrir því að það sé ekki hægt að byggja upp fyr­ir­tæki á Íslandi.

Það er mikil orka hérna, mikið af hug­myndum. það hefur hins vegar vantað áhættu­fjár­magn inn í verk­efnin. Ég er rosa­lega upp­tek­inn af því að slikt fjár­magn komi á réttum for­sendum. Ég hef sjálfur haft fjár­festa í fyr­ir­tæki sem ég var ekki ánægður með. Ég eyddi því jafn­miklum tíma í að takast á við þá og að reka fyr­ir­tækið.

Það þarf því að vera til­tækt gott fjár­magn sem styður undir hug­myndir og fyr­ir­tæki. Það hefur verið að verða til á síð­ustu tveimur árum, það hafa komið sjóðir inn, sem er mjög jákvætt. Ég held að það sé mik­il­vægt að það séu fleiri fjár­fest­inga­mögu­leikar. Að það sé ekki bara einn aðili sem ákveði hvað gangi og hvað gangi ekki.“

Það á ekki að byggja upp fyrirtæki til að selja þau

Jón þekkir það vel að byggja upp fyr­ir­tæki. Hann byggði upp Operu, norskt fyr­ir­tæki sem fram­leiddi net­vafra fyrir lengra komna, og seldi það síðan. Það hljómar því kannski dálítið öfug­snúið að hann seg­ist aldrei fjár­festa í fyr­ir­tækjum með það fyrir augum að selja þau síðar meir. „Hugsunin á ekki að vera sú að byggja upp fyr­ir­tæki til að selja þau. Auðvitað geta ágætis hlutir komið út úr því að það ger­ist. En í þessum iðn­aði sem ég er í þá er mikið af fólki sem telur að allir eigi að vera með upp­skrift sem sé þannig að það eigi að selja fyr­ir­tækið eftir þrjú ár og helst erlendis. Ég er ekki sam­mála þeirri aðferð­ar­fræði. Ég er á öðrum stað.

Auðvitað er það þannig að það á að vera „exit“ fyrir fjár­festa ein­hvern tím­ann. Ég fer hins vegar ekki inn í fyr­ir­tæki með „exit“ í huga. Ég vil ekki að fólkið sem ég vinn með hugsi um það heldur. Ég vil að það hugsi um að byggja upp fyr­ir­tækin. Mér finnst það röng hug­mynda­fræði að byggja upp fyr­ir­tæki bara til þess að selja það.“

Hann hefur líka sterkar skoð­anir á eign­ar­haldi fyr­ir­tækja. Til ein­föld­unar leggur hann mikla áherslu á að starfs­fólkið eigi hlut í þeim. Ekki bara fólkið í æðstu stöð­unum, heldur allir.„Ég vil að starfs­menn eigi hlut í fyr­ir­tækj­unum. Allir starfs­menn. Ekki sumir og sér­stak­lega ekki bara þeir sem eru á toppnum. Í byrjun hafa hluta­bréfin ekk­ert eig­in­legt verð­gildi. En það er virði í því að dreifa þeim á alla sem starfa hjá fyr­ir­tæk­inu. Þá eru allir í sama bát. Hvað sem er sem þú gerir, ef þú hefur trú á því þá virkar það betur. Svo hef ég líka trú á því að ef þú átt hlut í fyr­ir­tæk­inu, það er þitt, þá hefur það jákvæð áhrif á starf þitt.“

Þessi hug­mynda­fræði Jóns birt­ist á margan hátt í starf­sem­inni sem er rekin hjá Innovation House. Til dæmis í opna rým­inu sem öll fyr­ir­tækin sem þar eru með aðstöðu deila. Þar er fal­legt útsýni yfir sundin. Þegar Lyfja­stofnun var með starf­semi sína í hús­inu var rýmið hólfað niður og sá eini sem naut útsýn­is­ins var for­stjór­inn. Veggir skrif­stofu hans mein­uðu öðrum starfs­mönnum aðgangi að því. Jón og hans fólk rifu niður þá veggi. Allir áttu að fá að njóta útsýn­is­ins.

[caption id="attachment_30107" align="alignnone" width="640"] Jón hefur verið iðinn við að fjár­festa í íslenskum fyr­ir­tækjum und­an­farin ár. Þau eru orðin alls átta tals­ins.[/caption]

Iðinn við að fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum

Jón hefur verið iðinn við að fjár­festa í íslenskum fyr­ir­tækjum und­an­farin ár. Og þau eru alls­konar. „Þessi fyr­ir­tæki eru ólík og að gera ólíka hluti. OZ er til dæmis með nýja sjón­varps­lausn sem mér finnst mjög skemmti­leg, þar sem allir geta sett upp stöð. Ég er líka inni í Dohop þar sem tæknin er mjög góð og það er hægt að byggja mikið á því sem er til staðar.

Svo er ég í Smart-Media sem eru að búa til vef­versl­anir. Ég er inni í Greitt, sem gengur út á greiðslu­þjón­ustu á net­inu. Ég á hlut í Spyr, sem er mjög skemmti­leg og öðru­vísi upp­lýs­inga­síða.

Svo er ég auð­vitað inni í Örnu. Það er öðru­vísi fjár­fest­ing. Öll hin fyr­ir­tækin sem ég á hlut í eru tækni­fyr­ir­tæki en Arna er það ekki. Það er fyr­ir­tæki í norð­vest­ur­hluta lands­ins sem býr til mjólk­ur­vörur fyrir þá sem eru með laktósa­ó­þol, þó allir geti auð­vitað notað vör­una. Þetta litla fyr­ir­tæki er í sam­keppni við stóran risa sem ekki kemur alltaf vel fram, ef maður segir eins og er. Arna er að berj­ast við að kom­ast inn á markað og varan er rosa­lega mik­il­væg fyrir þá sem þurfa hana. Fyrir alla sem eru til dæmis hrifnir af rjómasósu, en fá í mag­ann af henni, þá er æðis­legt að geta borðað hana án þeirra afleið­inga.

Þá kemur að Hringdu, sem er líka í þannig stöðu. Pínu­lítið fyr­ir­tæki, flinkir krakkar, góð þjón­usta, en eru að keppa við risa. Ég er mjög vanur því að keppa við stóra risa. Það var þannig með Operu og mér finnst það gaman. Ef þetta væri ein­falt þá gæti hver sem er gert það.“

[quote font="0" align="right"]Jón segir að það sé sam­fé­lags­legur ávinn­ingur af fyr­ir­tækjum eins og Örnu og Hringdu. Það sé gaman að vinna í þannig verk­efnum.[/quote]

Jón segir að það sé sam­fé­lags­legur ávinn­ingur af fyr­ir­tækjum eins og Örnu og Hringdu. Það sé gaman að vinna í þannig verk­efnum. „Að það sem við erum að gera skipti ein­hverju máli. Mér finnst oft gaman að vinna með fyr­ir­tækjum sem eru í þeirri stöðu að þau eru að gera frá­bæra hluti en eru í erf­iðri sam­keppni.

En þetta er líka erfitt. Þegar Arna var að und­ir­búa sinn aðgang að mark­aðnum þá þurfti fyr­ir­tækið að hafa sam­band við MS (Mjólk­ur­sam­söl­una) til að kaupa háa­mjólk frá þeim, grunn­vör­una sem þeir þurfa. Mér finnst það verð­lag sem sett er á hana er út í hött. Arna þarf nán­ast að borga það sama fyrir vör­una og er sett á hana út í búð. Það er aug­ljós­lega mjög erfið staða.

Þar að auki svar­aði MS áður en Arna fór á markað með því að setja laktósa­fríar vörur á markað. Af hverju var ekki hægt að hleypa litlu fyr­ir­tæki inn á mark­að­inn? Af hverju þurfti ein­ok­un­arris­inn allt í einu að fara að bjóða upp á sam­bæri­lega vöru og það? Það er ekki þannig að Arna sé að ógna MS og varan er fyrir sér­stakan hóp.“

Vivaldi fyrir stórnotendur

Stærsta verk­efni Jóns í dag er þó í geira sem hann þekkir vel, vafra­geir­anum. Hann stofn­aði fyrir nokkrum miss­erum fyr­irtæði Vivaldi sem gaf í jan­úar út svo­kall­aða tækni­lega útgáfu af vafra. Það þýðir í raun að enn er verið að þróa vafr­ann og útgáfan því alls ekki end­an­leg. Við­tök­urnar hafa samt sem áður verið magn­aðar. Búið er að nið­ur­hala vafr­anum 1,3 milljón sinnum og hann hefur fengið frá­bæra dóma hjá tækni­fjöl­miðlum. Starfs­menn Vivaldi eru alls um 30. Þar af eru rúm­lega tugur á Íslandi og annað eins í Noregi.

En Jón var búinn með þennan geira. Hann var þegar búinn að byggja upp fyr­ir­tæki sem bjó til vafra og hann var búinn að selja það fyr­ir­tæki fyrir fullt af pen­ingum. Af hverju fór hann aftur í geir­ann?

„Þetta var ekki létt ákvörðun. Þegar ég fór út úr Operu þá leit ég á það þannig að ég væri búinn með vafra­geir­ann. En svo á sér stað ákveðin ákvörð­un­ar­taka í Operu sem í fólst að þeir kasta grunn­inum og skipta um not­enda­hóp. Það eru 350 millj­ónir not­endur af Operu í dag. Ég myndi giska á að 300 millj­ónir þeirra séu að nota gamla grunn­inn. Þetta er sér­stakt.

[quote font="0" align="right"] Ég tel það mjög erfitt. Að fara í sam­keppni án þess að hafa neinar við­bætur. Augjós­lega þarf vara að vera öðru­vísi til að hægt sé að keppa[/quote]

Opera sagði að þessi not­enda­hópur sem þeir væru með væru ein­hverjir nördar og að nú vildu þeir ná í venju­lega not­endur. Því var ákveðið að búa til ein­fald­ari vafra og fara í sam­keppni við alla. Ég tel það mjög erfitt. Að fara í sam­keppni án þess að hafa neinar við­bætur. Augjós­lega þarf vara að vera öðru­vísi til að hægt sé að keppa.“

Fyrir flesta net­not­endur er vafri bara vafri og erfitt að sjá hvað einn vafri getur boðið upp á fram­yfir annan. Jón segir að Vivaldi sé vafri fyrir not­endur sem krefj­ast meira. „Venju­legir not­endur sem eru bara að fara á Facebook og skoða nokkrar net­síður hafa enga þörf fyrir það sem við erum að byggja. En ef þú ert not­andi sem ert mikið á net­inu, til dæmis með mjög marga fána (e. tabs) opna, eða byrjar með marga fána, þá bjóðum við upp á svo­kallað „stacking“ sem þýðir að þú getur geymt marga fána undir einum. Þá er ein­fald­ara að finna hluti. Við fundum upp mögu­leik­ann að hafa síður hlið við hlið á sama skjánum. Og ýmis­legt annað. Þetta er fyrir stórnot­endur á net­inu.“

Það kostar ekk­ert að nið­ur­hala Vivaldi, frekar en flestum öðrum vöfrum. Það velta því margir fyrir sér hvernig vafra­fyr­ir­tæki standi undir sér. Jón segir að þetta sé ekki mjög flókið módel. „Í fyrsta lagi þarftu rosa­lega marga not­endur. Opera þénar um einn dal á hvern not­anda á ári. Þetta eru engar stórar upp­hæðir. Fyrir not­endur í PC-útgáfu þá þénar fram­leið­and­inn í gegnum leit sem er uppi í hægra horni vafrans. Þá er gerður samn­ingur við leit­ar­fyr­ir­tækin. Auk þess er hægt að gera samn­ing við aðra um að bóka­merki (e. bookmark) verði til staðar frá þeim í vafr­anum. Þá þarftu að reyna að finna fyr­ir­tæki og þjón­ustur sem mark­hópnum þínum ætti að líka við og svo fær fram­leið­and­inn hlut­deild af tekjum sem koma inn.

Ef við miðum við að fá ein dal á hvern not­anda Vivaldi þá þurfum við nokkrar millj­ónir not­enda til að þetta gangi upp miðað við núver­andi starf­semi, og svo reynum við auð­vitað að ná í sem flesta.“

[caption id="attachment_30108" align="alignnone" width="640"] Jón segir að tengsl hans við Ísland, Sel­tjarn­ar­nes og Gróttu séu sterk. Hann Býr hins vegar ekki hér, heldur í Gloucester á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna..[/caption]

Vill styrkja nærsamfélagið

Það vakti athygli í byrjun árs, um svipað leyti og hægt varð að nið­ur­hala fyrstu útgáf­unni af Vivaldi-vafr­anum, að nafni heima­vallar knatt­spyrnu­liðs Gróttu var breytt í Vivaldi-völl­inn, eftir að fyr­ir­tækið gerð­ist einn helsti styrkt­ar­að­ili liðs­ins. Jón segir að sterkt tengsl við Sel­tjarna­nes og Gróttu geri það að verkum að honum finn­ist sjálf­sagt að styrkja félagið og nærum­hverfið með þessum hætti. „Sel­tjarn­ar­nes er mitt heima­sam­fé­lag. Ég er fæddur þar og það eru sterk bönd. Ég spil­aði með Gróttu og mér finnst skemmti­legt að styðja við svona lít­inn klúbb sem von­andi stækkar. Ég var til dæmis mjög stoltur þegar kvenna­liðið vann deild­ina í hand­bolta. Það er fyrsti Íslands­meist­ara­tit­ill Gróttu í sög­unni. Ég hafði ekk­ert með það að gera, kom engan veg­inn að því, en var samt mjög stoltur af afrek­inu vegna þess að ég kem af Sel­tjarn­ar­nes­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár