Kallar eftir meiri stuðningi stjórnvalda við einstaklinga og heimili

Formaður VR segir að miðað við fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar um nýt­ingu COVID-19 úrræða stjórn­valda hafi ein­ungis um 7 millj­arðar króna skilað sér beint til ein­stak­linga og heim­ila, en yfir 80 millj­arðar til fyr­ir­tækja.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR segir að aðgerðir stjórn­valda vegna COVID-far­ald­urs­ins hafi ekki beinst að ein­stak­lingum og heim­ilum í nægi­legum mæli og segir að VR krefj­ist þess að stjórn­völd og fjár­mála­stofn­anir „hlusti og hefji raun­veru­legar aðgerðir til hjálpar svo hér verði ekki sama nið­ur­brot og eymd sem fylgdi í kjöl­far síð­asta hruns.“

Í færslu sem Ragnar birtir á vef VR í dag fer hann yfir þær aðgerðir sem stjórn­völd hafa kynnt til sög­unnar til þessa, út frá þeim upp­lýs­ingum sem stjórn­vald hafa birt um nýt­ingu úrræð­anna hingað til og heild­ar­á­ætlun um útgjöld.

Hann segir stjórn­völd „stæra sig af því“ að hafa kynnt úrræði sem nemi um 340 millj­örðum króna til að tryggja við­spyrnu í kjöl­far far­ald­urs­ins og segir að beinn stuðn­ingur sem farið hafi til til ein­stak­linga og heim­ila hingað nemi um 7 millj­örðum króna, á meðan að fyr­ir­tæki hafi nýtt úrræði fyrir rúma 80 millj­arða króna, ýmist í formi beins stuðn­ings, ábyrgða eða til­færslna, miðað við þær tölur sem stjórn­völd hafi birt um nýt­ingu úrræð­anna.

„Beinn stuðn­ingur við ein­stak­linga og heim­ili er um 7 millj­arðar króna (m.v. birtar tölur um nýt­ingu úrræð­anna). Eins og það sé ekki nógu slæmt að svo litlir fjár­munir hafi skilað sér til heim­il­anna í sam­an­burði við fyr­ir­tækin þá hafa ein­stak­lingar og heim­ili gengið á eigin sparnað með því að taka út sér­eign­ar­sparnað sinn svo nemur 21 millj­arði króna,“ segir Ragnar Þór og bætir við að sér­eigna­sparn­aður sem tek­inn er út vegna COVID-far­ald­urs­ins sé stað­greiðslu­skyldur og þegar upp verði staðið muni um 7,5 millj­arðar skila sér til ríkis og sveit­ar­fé­laga í formi skatt­tekna.

[adspot]

„Miðað við þau gögn sem liggja fyrir virð­ast stjórn­völd því hafa haft beinar tekjur upp á 600 millj­ónir króna umfram þær „björg­un­ar­að­gerðir” sem hafa runnið til heim­il­anna í land­inu, fram að þessu! Þau úrræði sem stjórn­völd hafa boðið heim­ilum hafa verið almenn, en ekki sér­sniðin eins og alþjóða­stofn­anir hafa mælst til að séu nýtt. Slík ráð­stöfun skatt­fjár getur vart talist ábyrg og efa­semdir eru um að þau hafi verið áhrifa­rík, í ljósi þess mikla sparn­aðar sem heim­ilin hafa mátt taka út til að bjarga sér sjálf út úr erf­iðum aðstæðum,“ skrifar Ragnar Þór, sem tekur reyndar ekki með inn í mynd­ina þau auknu útgjöld sem fallið hafa á rík­is­sjóð vegna stór­auk­ins atvinnu­leysis í land­inu.

Er hrunið gleymt og grafið?

Ragnar Þór spyr hvort efna­hags­hrunið fyrir röskum ára­tug sé gleymt og grafið og hvort við höfum ekk­ert lært. „Ef það var eitt­hvað sem við hefðum átt að læra af því þá var það sá gíf­ur­legi mann­legi harm­leikur sem fylgdi í kjöl­far þess að allir „björg­un­ar­pakkar” mið­uðu við atvinnu- og fjár­mála­lífið og heim­ilin og ein­stak­ling­arnir gleymd­ust,“ skrifar for­maður VR.

Hann segir að það ætti að snúa þessu við, læra af reynsl­unni og setja mesta kraft­inn í að hjálpa ein­stak­ling­unum og heim­ilin­unum. „Þau eru þjóðin. Stjórn­völd eru til fyrir þjóð­ina en ekki öfugt,“ skrifar Ragnar Þór í sam­an­tekt sinni.

Hann segir mörg úrræði fyrir ein­stak­linga ekki komin til fram­kvæmda eða þau hugsuð til lengri tíma, til dæmis fram­leng­ing tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta, ýmis námsúr­ræði og fjöl­mörg af þeim félags­legu úrræðum sem hafi verið kynnt.

„Þá hafa önnur úrræði án efa verið nýtt án þess að upp­lýs­ingar um það hafi verið birtar. Þetta á hins vegar einnig við um fyr­ir­tækin. Það verður ekki fram­hjá því litið að skatt­tekjur af úttekt sér­eign­ar­sparn­aðar ein­stak­linga vega upp á móti þeim beina stuðn­ingi sem heim­ilin hafa fengið í þessum far­aldri,“ skrifar Ragnar Þór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár