Ráðuneytið lét héraðssaksóknara vita af eigendabreytingum hjá Samherja

Samherji sendi upp­haf­lega til­kynn­ingu um eign­ar­hald erlends aðila í félag­inu á rangan ráð­herra, Kristján Þór Júl­í­us­son. Erlendi aðil­inn, Baldvin Þor­steins­son, á 20,5 pró­sent beinan hlut í Samherja.

Starfs­maður atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins hringdi tví­vegis í Ólaf Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ara, ann­ars vegar 18. des­em­ber og hins vegar 20. des­em­ber 2019, til að gera honum við­vart um að ráðu­neyt­inu hefði borist til­kynn­ing um að erlendur aðili hefði keypt alls 20,5 pró­sent hlut í Samherja hf.

Í skjali um sam­skiptin sem Kjarninn hefur fengið afhent frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu kemur fram að ástæða þess að haft var sam­band við við hér­aðs­sak­sókn­ara var að ráðu­neyt­inu væri „kunn­ugt um að það félag sem til­kynn­ingin við­kemur og aðal­eig­andi þess og for­stjóri eru til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara.“

Þar segir enn fremur að efni til­kynn­ing­ar­innar sé til þess fallið að „geta haft áhrif á rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara en ráðu­neytið getur ekki gert sér grein fyrir því að hve miklu leyti eða hvaða þýð­ingu hún kunni að hafa. Efni hennar er þó slíkt að rétt er talið að gera hér­aðs­sak­sókn­ara grein fyrir því.“

Fjár­fest­ing félags sem Baldvin á 49 pró­sent í, K&B ehf., í Samherja var til­kynnt til atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins átta dögum áður en að Kveikur, Stundin, Wikileaks og Al Jazeera opin­ber­uðu margra mán­aða rann­sókn­ar­vinnu sem sýndi fram á meintar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í tengslum við veiðar hennar í Namibíu.

Í umfjöllun Kveiks, sem sýnd var 12. nóv­em­ber 2019, kom fram að frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn leit­aði til Þor­steins Más um við­tal vegna umfjöll­unar þátt­ar­ins um meintar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Sam­herja í Namibíu 15. októ­ber, tæpum þremur vikum áður en til­kynnt var um að hlut­ur­inn í Samherja hefði verið seldur til K&B ehf.

Þor­steinn Már hafn­aði að mæta í við­tal en fékk svo skrif­lega beiðni tíu dögum síð­ar, 25. októ­ber eða níu dögum áður en atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu var til­kynnt um að 43 pró­sent hlut­ur­inn í Samherja hefði verið seldur til barna aðal­eig­enda félags­ins, þar sem Kveikur greindi honum frá því í smá­at­riðum hvað var verið að fjalla um.

Í til­kynn­ingu sem lög­maður á vegum Samherja sendi fyrir hönd fyr­ir­tæk­is­ins í gær var því hafnað að tengsl væru á milli þess að til­kynnt væri um eig­enda­breyt­ing­arnar og umfjöll­unar um athæfi Samherja í Namibíu. Þrátt fyrir það fannst atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu við­eig­andi að láta hér­aðs­sak­sókn­ara vita af þeim.

Stenst lög um erlenda fjárfestingu

Kjarninn greindi frá því í gær að þann 4. nóv­em­ber 2019 hefði atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu borist til­kynn­ing um að félag í eigu ein­stak­lings sem er skil­greindur erlendur sam­kvæmt íslenskum lögum ætti 49 pró­sent hlut í félagi, sem hefði eign­ast stóran hlut í sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu Samherja hf. Um var að ræða Baldvin sem er með lög­heim­ili í Hollandi og telst því erlendur aðili í skiln­ingi íslenskra laga. Um eign­ar­hald slíkra þarf að til­kynna til atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins sam­kvæmt lögum, enda erlendum aðilum settar miklar skorður þegar kemur að því að eiga hlut í íslenskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum.

Baldvin á 49 pró­sent í félag­inu K&B ehf.. Aðrir eig­endur þess eru systir hans Katla, sem á 48,9 pró­sent, og faðir hans, sem á 2,1 pró­sent.

Lögmaður Samherja sendi til­kynn­ing­una upp­haf­lega til Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Það átti hins vegar ekki að senda hana þangað, heldur til hins ráð­herr­ans í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu, Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ráð­herra ferða­mála-, iðn­aðar og nýsköp­unar, sem fer með for­ræði laga um fjár­fest­ingu erlendra aðila í atvinnu­rekstri.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að Samherja hefði verið greint frá því með bréfi þann 1. nóv­em­ber 2019 að einn af hlut­höfum félags­ins, Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn, í eigu Þor­steins Más og Helgu, hefði selt alls 163,8 millj­ónir hluti í Samherja til K&B ehf. sem hefði fyrir vikið eign­ast 43 pró­sent hlut í Samherja.

Við með­ferð máls­ins varð það nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins að eign erlenda aðil­ans, Baldvins, á Samherja bryti ekki í bága við lög um fjár­fest­ingu erlendra aðila í atvinnu­rekstri. Bein eign hans í Samherja væri til að mynda 20,5 pró­sent sem þýddi að erlent eign­ar­hald væri undir því 25 pró­sent hámarki sem til­greint er í lögum.

Rúmt hálft ár þangað til að breytingar voru opinberaðar

Opin­ber­lega var ekki sagt frá því að eig­enda­skipti væru að eiga sér stað hjá Samherja fyrr en 15. maí 2020. Þá birt­ist til­kynn­ing á heima­síðu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar um að Þor­steinn Már, Helga og Kristján Vil­helms­son væru að færa næstum allt eign­ar­hald á Samherja hf., sem er eign­ar­halds­fé­lag utan um þorra starf­semi sam­stæð­unnar á Íslandi og í Færeyjum, til barna sinna. Þau halda hins vegar áfram að vera eig­endur að erlendu starf­sem­inni, og halda á stórum hlut í Eimskip, sem hefur frá 2018 verið vistað inni í öðru eign­ar­halds­fé­lagi, Samherja Holding ehf.

Í til­kynn­ing­unni kom fram að Baldvin og Katla myndu eign­ast 43 pró­sent í Samherja hf. Samhliða var greint frá því að Dagný Linda, Hall­dór Örn, Krist­ján Bjarni og Katrín, börn Krist­jáns Vil­helms­sonar, myndu fara sam­an­lagt með um 41,5 pró­sent hluta­fjár. Í til­kynn­ing­unni sagði að með þessum hætti „vilja stofn­endur Sam­herja treysta og við­halda þeim mik­il­vægu fjöl­skyldu­tengslum sem félagið hefur ætíð byggst á og hafa verið horn­steinn í rekstr­in­um.“ Þar kom einnig fram að und­ir­bún­ingur breyt­ing­anna á eign­ar­hald­inu hafi staðið und­an­farin tvö ár en áformin og fram­kvæmd þeirra voru form­lega kynnt í stjórn félags­ins á miðju ári 2019.

Framsal og arfur

Í maí, þegar Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um með hvaða hætti fram­sal hluta­bréfa for­eldra til barna hefði átt sér stað, feng­ust þau svör hjá Björgólfi Jóhanns­syni, ann­ars for­stjóra Samherja, að ann­ars vegar hefðu börnin fengið fyr­ir­fram­greiddan arf, og hins vegar væri um sölu milli félaga að ræða.

Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar hjá Samherja um virði þess hlutar sem til­kynnt var um að færður hefði verið á milli kyn­slóða né hvernig til­færsl­unni var skipt milli fyr­ir­fram­greidds arfs og sölu. Engin skjöl hafa heldur verið send inn til fyr­ir­tækja­skrár vegna við­skipt­anna enn sem komið er. Einu upp­lýs­ing­arnar sem þar er að finna um K&B ehf., fyrir utan eign­ar­haldið á félag­inu og að það hafi verið stofnað í apríl 2019, er að hlutafé þess var aukið um 100 millj­ónir króna seint í sept­em­ber í fyrra.

Eigið fé Samherja hf. var 446,7 millj­ónir evra í árs­lok 2018, en árs­reikn­ingur fyr­ir­tæk­is­ins fyrir árið 2019 hefur ekki verið skilað til fyr­ir­tækja­skrár, enda frestur til slíks ekki útrunn­inn. Á gengi þess tíma var eigið féð um 60 millj­arðar króna.

Baldvin heldur á svipað miklum kvóta og Ísfélagið

Í til­kynn­ingu Samherja til atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins segir að Samherji hf. stundi „hvorki fisk­veiðar í efna­hags­lög­sögu Íslands né rekur fyr­ir­tæki til vinnslu sjáv­ar­af­urða hér á landi í eigin nafni en á að fullu eða að hluta fyr­ir­tæki í slíkri starf­semi.“

Þetta er rétt. Samherji hf. á þó sann­ar­lega dótt­ur­fé­lög sem það gera.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Samherja hf, er með næst mesta afla­hlut­deild í íslenskri efna­hags­lög­sögu allra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,02 pró­sent. ­Út­gerð­­­­­ar­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­fest­inga­­­­­fé­lag, sem það sama gildir um, heldur á 0,64 pró­­­­­sent hans. Síld­­­­­ar­vinnslan, sem Sam­herji á beint og óbeint 49,9 pró­sent hlut í, er svo með 5,2 pró­sent afla­hlut­deild og Berg­ur-Hug­inn, í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar, er með 2,3 pró­sent af heild­ar­kvóta til umráða. Auk þess á Síld­ar­vinnslan 75,20 pró­sent hlut í Runólfi Hall­freðs­syni ehf., sem heldur á 0,62 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Sam­an­lagt er þessi blokk að minnsta kosti 17,1 pró­sent afla­hlut­deild.

Baldvin á því hlut í félagi, sem á hlut í félagi sem á félög, að hluta eða öllu leyti, sem halda saman á stærri hluta af úthlut­uðum kvóta í íslenskri efna­hags­lög­sögu en nokkur önnur sjáv­ar­út­vegs­sam­stæða. Bein hlutur Baldvins í úthlut­uðum kvóta­heim­ildum er því um 3,5 pró­sent. Til sam­an­burðar nemur held­ar­kvóti Ísfélags Vest­manna­eyja 3,7 pró­sentum og Vísir í Grinda­vík heldur á 3,65 pró­sent úthlut­aðra afla­heim­ilda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár