Eiríkur metinn hæfastur þeirra sem sóttu um í Landsrétti

Hæf­is­nefnd hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Eiríkur Jónsson laga­pró­fessor sé hæf­astur umsækj­enda sem vilja laust dóm­ara­sæti í Lands­rétti. Sitjandi dóm­ari í rétt­inum var met­inn næst hæf­astur.

Eiríkur Jónsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands.
Eiríkur Jónsson, laga­pró­fessor við Háskóla Íslands. Mynd: Skjáskot

Hæf­is­nefnd hefur metið Eirík Jónsson, laga­pró­fessor við Háskóla Íslands, hæf­astan þeirra sem sóttu um laust emb­ætti lands­rétt­ar­dóm­ara, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Eiríkur var á meðal þeirra sem sóttu um stöðu lands­rétt­ar­dóm­ara þegar 15 slíkar voru aug­lýstar til umsóknar í aðdrag­anda þess að milli­dóm­stigið tók til starfa. Hæf­is­nefnd mat Eirík þá sjö­unda hæf­astan af þeim sem sóttu um. Sigríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, ákvað hins vegar að taka út fjóra þeirra sem hæf­is­nefndin hafði metið á meðal 15 hæf­ustu og setja aðra, sem nefndin hafði metið minna hæfa, inn á lista yfir þá sem hún vildi skipa. Alþingi sam­þykkti svo lista Sigríðar.

[adspot]Í kjöl­farið hafa íslenskir dóm­stólar úrskurðað að Sigríður hafi brotið stjórn­sýslu­lög með atferli sínu. Auk þess komst Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu að þeirri nið­ur­stöðu í mál­inu í mars að dóm­ar­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sigríðar væru ólög­lega skip­aðir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­með­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sigríður af sér emb­ætti dóms­mála­ráð­herra.

Staða opnaðist

Einn þeirra ell­efu sem voru lög­lega skip­aðir í Lands­rétt, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, sagði starfi sínu lausu í vor og greindi frá því að hann hygð­ist setj­ast í helgan stein. Því verður laus staða við rétt­inn frá og með kom­andi hausti.

Hún var aug­lýst og umsókn­ar­frestur rann út síðla í maí. Alls sóttu átta um stöð­una, þar af tveir sitj­andi dóm­arar í Lands­rétti, Ásmundur Helga­son og Ragn­heiður Braga­dótt­ir. Þau eru bæði á meðal þeirra fjög­urra lands­rétt­ar­dóm­ara sem hafa ekki fengið að dæma í málum frá því að nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu í Lands­rétt­ar­mál­inu var birt.

[adspot]Á meðal umsækj­enda voru einnig Ást­ráður Har­alds­son, Eiríkur Jóns­son og Jón Hösk­ulds­son, þrír þeirra fjög­urra sem færðir voru af lista yfir dóm­ara sem skip­aðir voru í Lands­rétt á sínum tíma, en hæf­is­nefnd hafði metið á meðal 15 hæf­ustu.

Hinir voru Frið­rik Ólafs­son vara­þing­mað­ur, Guð­mundur Sig­urðs­son pró­fessor og Jónas Jóhanns­son lög­mað­ur.

Fjórir metnir

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans drógu tveir umsækj­endur umsókn sína til baka, Friðrik Ólafsson og Ragn­heiður Braga­dóttir. Hæf­is­nefndin mat fjóra hinna sem eftir stóðu eftir getu og reynslu og komst að þeirri nið­ur­stöðu að Eiríkur væri hæf­astur þeirra allra. Þar á eftir kom Ásmundur, svo Jón og loks Ástráður.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, sitj­andi dóms­mála­ráð­herra, mun að öllum lík­indum fá það verk­efni að skipa í emb­ættið. Hún hefur greint frá því opin­ber­lega að nýr dóms­mála­ráð­herra verði skip­aður í haust.

[links]Eiríkur og Jón höfð­uðu báðir mál gegn íslenska rík­inu vegna ólög­mætrar skip­unar á Lands­rétt­ar­dóm­urum. Í októ­ber í fyrra komst hér­aðs­dómur Reykja­víkur að þeirri nið­ur­stöðu að ríkið þyrfti að greiða þeim báðum bætur, Jóni fjórar millj­ónir króna í skaða­bæt­ur, 1,1 milljón króna í miska­bætur auk þess sem ríkið greiðir 1,2 milljón króna máls­kostnað hans, auk þess sem dóm­ur­inn féllst á bóta­skyldu rík­is­ins gagn­vart Eiríki. Hann þurfti hins vegar að höfða skaða­bóta­mál til að inn­heimta þá bóta­skyldu. Eiríkur er fæddur árið 1977 og á því langa starfsævi framundan. Ljóst var að fjár­hags­legt tjón hans, þar sem laun lands­rétt­ar­dóm­ara eru mun hærri en núver­andi laun hans, gæti orðið umtals­vert. Verði Eiríkur skip­aður dóm­ari við Lands­rétt nú, líkt og hæf­is­nefndin leggur til, þá mun draga veru­lega úr því fjár­hags­lega tjóni sem hann getur sýnt fram á í skaða­bóta­máli sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár