Komufarþegar greiða 15 þúsund fyrir sýnatöku

Sýnataka á land­mærum Íslands verður gjald­frjáls fyrstu tvær vik­urnar en frá 1. júlí munu komu­far­þegar þurfa að greiða 15 þús­und krónur fyrir rann­sókn­ina.

Komufarþegar munu þurfa að greiða sjálfir fyrir sýnatöku frá 1. júlí.
Komu­far­þegar munu þurfa að greiða sjálfir fyrir sýna­töku frá 1. júlí. Mynd: Bára Huld Beck

Farþegar sem koma til lands­ins og kjósa að fara í sýna­töku vegna Covid-19 fremur en að sitja 14 daga í sótt­kví, munu frá 1. júlí næst­kom­andi greiða 15.000 króna gjald vegna sýna­tök­unnar. Sýnataka á landa­mærum hefst 15. júní og verður gjald­frjáls fyrstu tvær vik­urnar. Börn fædd árið 2005 eða síðar þurfa ekki að fara í sýna­töku.

Tillaga heil­brigð­is­ráð­herra um gjald­tök­una var sam­þykkt á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í dag.

Í grein­ar­gerð fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins sem kynnt var á síð­asta rík­is­stjórn­ar­fundi, mæla hag­fræði­leg rök með því að ferða­menn verði látnir greiða fyrir kostnað við sýna­töku. Með því móti má, að því er fram kemur í grein­ar­gerð­inni, m.a. stuðla að því að þeir sem sæki landið heim séu efna­meiri ferða­menn sem eyði meiru og dvelji lengur.

Í frétt frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu í dag kemur fram að nú liggi fyrir að alþjóða­heil­brigð­is­reglu­gerðin stendur ekki í vegi fyrir gjald­töku, enda sé sýna­takan val­kvæð og til­kynnt með hæfi­legum fyr­ir­vara.

Gjaldið sem inn­heimt verður frá 1. júlí mið­ast við beinan kostnað rík­is­ins annan en stofn­kostnað og er miðað við fyr­ir­liggj­andi kostn­að­ar­grein­ingu sem fram kemur í skýrslu verk­efn­is­stjórnar um sýna­töku fyrir COVID-19 á landa­mærum sem kynnt var í rík­is­stjórn 26. maí.

Á frétta­mannas­fundi rík­is­stjórn­ar­innar 12. maí kom fram að talið væri rétt að sýna­taka á landa­mærum yrði far­þegum að kostn­að­ar­lausu í upp­hafi meðan verið væri að ýta úrræð­inu úr vör og leysa úr mögu­legum hnökrum.

[links]Laga­heim­ild til gjald­töku vegna sýna­tök­unnar er í lögum um sjúkra­trygg­ingar og mun heil­brigð­is­ráð­herra gefa út reglu­gerð um gjald­tök­una og fleiri atriði sem varða sýna­töku­verk­efnið á næstu dögum.

Heil­brigð­is­ráð­herra ákvað í síð­ustu viku að fara að til­mælum sótt­varna­læknis um að opna landa­mæri Íslands gegn því að komu­far­þegar fari í sýna­töku, fram­vísi vott­orði eða sæti tveggja vikna sótt­kví.

Í grein­ar­gerð sem fjár­mála­ráðu­neytið vann um hag­ræn áhrif opn­unar landamæra kom fram að ferða­vilji fólks virð­ist enn mjög tak­mark­aður en að með opnun innri landamæra Schengen-ríkj­anna upp úr miðjum mán­uði megi áætla að þeir ferða­menn sem hingað koma verði fyrst og fremst frá Evrópu.

Samfélagslegur kostnaður af utanlandsferðum Íslendinga verði ekki niðurgreiddur

Í grein­ar­gerð­inni segir að „rétt þyki“ að ferða­menn greiði sjálfir fyrir sýna­tök­una við kom­una til lands­ins. Á það er þó bent að almenn skimun sé ígildi skatt­lagn­ingar á ferða­lög. „Enn er þó mjög óljóst hvernig verð á flugi til og frá land­inu munu þró­ast. Með greiðslu ferða­manna fyrir prófið má þó stuðla að því að þeir sem sækja landið heim séu efna­meiri ferða­menn sem eyði meiru og dvelji lengur, enda yrði greiðslan fyrir prófið hin sama óháð dval­ar­lengd.“

Einnig þarf, að mati ráðu­neyt­is­ins, að horfa til þess að rík­is­sjóður nið­ur­greiði ekki sam­fé­lags­legan kostnað af utan­lands­ferðum Íslend­inga „sem virð­ast af reynslu síð­ustu mán­aða hafa meiri áhrif á mögu­lega útbreiðslu veirunnar en komur erlendra ferða­manna“. Ef Íslend­ingar leiti hraðar út en ferða­menn til lands­ins geti það haft nei­kvæð áhrif á inn­lenda eft­ir­spurn og við­skipta­jöfnuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár