Alls 17 fyrirtæki hafa sótt um greiðsluskjól

Í sumar voru sam­þykkt lög sem gera fyr­ir­tækjum í neyð vegna COVID-far­ald­urs­ins kleift að hætta að borga af skuld­bind­ingum sínum en fá samt vernd frá því að verða sett í gjald­þrot í allt að eitt ár.

Flest fyrirtækin sem nýta sér greiðsluskjólsleiðina eru tengd ferðaþjónustu.
Flest fyr­ir­tækin sem nýta sér greiðslu­skjólsleið­ina eru tengd ferða­þjón­ustu. Mynd: Bára Huld Beck

Alls hafa 17 fyr­ir­tæki sótt um svo­kall­aða greiðslu­skjól á grund­velli laga sem Alþingi sam­þykkti 16. júní síð­ast­lið­inn. Frá þessu er greint í skýrslu stjórn­valda um nýt­ingu úrræða þeirra vegna yfir­stand­andi heims­far­ald­urs, sem gerð var opin­ber fyrir helgi.

Í greiðslu­skjólsúr­ræð­inu, sem ætlað er fyrir fyr­ir­tæki í neyð vegna COVID-far­ald­urs­ins, felst að kröfu­hafar þeirra geta ekki fengið greitt frá þeim né er hægt að setja þau í þrot líkt og vana­legt er þegar fyr­ir­tæki geta ekki staðið við skuld­bind­ingar sínar. Hægt er að fá heim­ild til að vera í slíku skjóli í allt að ár. Á ein­földu máli þá þurfa fyr­ir­tækin ekki að greiða reikn­inga sína og reyna þess í stað að bíða af sér storm­inn. Eins og við er að búast eru, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, flest fyr­ir­tæki sem lagt hafa umsóknir um greiðslu­skjól fyrir hér­aðs­dóm­stóla, tengd ferða­þjón­ustu.

Tilnefna eigin aðstoðarmann

Fyr­ir­tæki í greiðslu­skjóli fá tæki­færi til að semja við kröfu­hafa með full­tingi sér­staks aðstoð­ar­manns, lög­manns eða lög­gilts end­ur­skoð­anda sem fyr­ir­tækið til­nefnir sjálft sér til aðstoðar. Beiðni um heim­ild til fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar er síðan beint til hér­aðs­dóms. Alls hafa 17 slíkar beiðnir verið lagðar fyrir dóm­stóla síð­ast­liðna mán­uði.

[adspot]Á meðal að á greiðslu­skjól­inu stendur má fyr­ir­tækið ekki ráð­stafa eignum sínum eða stofna til nýrra skuld­bind­inga nema að sér­staki aðstoð­ar­mað­ur­inn sam­þykki það eða að umrædd ráð­stöfun telj­ist vera nauð­syn­legur þáttur í dag­legum rekstri eða end­ur­skipu­lagn­ing­unni.

Samtök atvinnu­lífs­ins hafa boðið aðild­ar­fyr­ir­tækjum sínum aðstoð lög­manns án end­ur­gjalds til að glöggva sig á úrræð­inu.

Harðlega gagnrýnt

Við­skipta­blaðið fjall­aði um ýmis álita­efni sem komu fram í umsögnum um frum­varp um greiðslu­skjóla­leið­ina nokkrum dögum áður en það varð að lögum.

[links]Blaðið greindi meðal ann­ars frá því að umsagn­ar­að­ilar teldu margir hverjir að hluti frum­varps­ins gæti verið í and­stöðu við eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrár­innar. Fyrirséð væri að reyna myndi á lögin fyrir dóm­stólum.

Í umfjöllun blaðs­ins var meðal ann­ars farið yfir umsögn lög­manns­stof­unnar Advel. Í henni var vakin sér­stök athygli á því að fjár­hags­leg end­ur­skipu­lagn­ing ætti ekki að standa til boða hvaða skuld­ara sem er, aðeins fyr­ir­tækjum sem eru raun­veru­lega rekstr­ar­hæf. Engin ástæða væri til að tefja gjald­þrota­skipti á ólíf­væn­legum atvinnu­fyr­ir­tækjum ef skuld­ar­inn hefði frjálsar hendur til þess að nýta sér aðgengi að máls­með­ferð til fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar „getur það gert það að verkum að þegar hefð­bundin gjald­þrota­skipti loks hefj­ast, þá kunna verð­mæti þrota­bús­ins að hafa rýrnað veru­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár