Stórhertar sóttvarnaráðstafanir í Þýskalandi yfir hátíðarnar

Það verður lít­ill ys og þys í Þýska­landi í aðdrag­anda jóla og yfir hátíð­arnar. Allar versl­anir sem selja annað en nauð­synja­vöru eiga að loka dyrum sínum frá og með mið­viku­degi og sam­gangur fólks á að vera í algjöru lág­marki.

Angela Merkel kanslari á blaðamannafundi í Berlín í gær.
Angela Merkel kansl­ari á blaða­manna­fundi í Berlín í gær. Mynd: EPA

Harðar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir stór­fellda útbreiðslu kór­ónu­veirunnar taka gildi í Þýska­landi á mið­viku­dag. Flestar versl­anir í land­inu nema mat­vöru­versl­anir og apó­tek þurfa að loka og sömu­leiðis öll þjón­usta sem ekki telst nauð­syn­leg, til dæmis hár­greiðslu­stofur. Það verður fátt eðli­legt við jólin í Þýska­landi í ár.

Angela Merkel Þýska­landskansl­ari kynnti þessar ráð­staf­anir á blaða­manna­fundi í gær, sunnu­dag, eftir að hafa fundað með leið­togum þýsku ríkj­anna sextán. Samkvæmt umfjöllun Deutsche Welle er gripið til þess­ara ráða til þess að koma í veg fyrir nið­ur­brot þýska heil­brigð­is­kerf­is­ins, sem hefur verið undir miklu álagi vegna stór­auk­innar smit­tíðni á und­an­förnum dögum og vikum.

Á föstu­dag var sagt frá því að 29.875 til­felli COVID-19 hefðu greinst í land­inu sól­ar­hring­inn á undan, sem er met. Nýgengi smita er orðið of mikið til þess að hægt sé að rekja smit með við­un­andi hætti og heil­brigð­is­kerfið undir miklu álagi víða um landið.

Skólar eru hvattir til þess að senda nem­endur heim og halda áfram í fjar­námi fram að jólum, til þess að koma í veg fyrir eins og hægt er að smit ber­ist um í skólum og síðan áfram inn í stór­fjöl­skyldur sem koma saman á jólum. Skólum er einnig upp­álagt að lengja jóla­frí barn­anna fram til 10. jan­úar, en þá á að hverfa frá þessum hörðu aðgerðum.

For­eldrum verður gert kleift að taka launuð frí til þess að líta eftir börnum sínum á meðan að skólar og dag­gæslur barna loka. Atvinnu­rek­endur eru hvattir til þess að leyfa öllum starfs­mönnum sem geta unnið að heiman, að gera það.

Mest fjórir gestir yfir fjórtán ára aldri í jólaboð

Það verður aðeins slakað á regl­unum yfir helstu helgi­daga jóla, en frá 24.-26. des­em­ber er áætlað að slaka ögn á reglum um sam­gang á milli heim­ila svo nán­ustu fjöl­skyldur geti haldið saman jól.

Þá daga má bjóða fjórum full­orðnum ein­stak­lingum af öðrum heim­ilum innan nán­ustu fjöl­skyldu inn á önnur heim­ili, en ann­ars á sam­gangur á milli heim­ila að vera í algjöru lág­marki.

Ótak­mark­aður fjöldi barna undir 14 ára aldri má fylgja með í þessar heim­sóknir, en þeim sem hyggja á jóla­boð er upp­álagt að ein­angra sig í eina viku fyrir jól og fara hvergi ef ein­kenna verður vart á þeim tíma.

Það er ýmis­legt sem verður óhefð­bundið í Þýska­landi þessi jólin. Sú hefð að drekka rjúk­andi jólaglögg utandyra verður hvíld þessi jól, en öll neysla áfengis á almanna­færi verður bönnuð frá og með mið­viku­deg­inum.

Helgi­at­hafnir í kirkjum og öðrum bæna­húsum mega eiga sér stað ef farið er eftir reglum um sótt­varnir, en allur sam­söngur er bann­aður. Í Þýska­landi rétt eins og á Íslandi tíðkast það að almenn­ingur kaupi sér eigin flug­elda til þess að skjóta upp í loftið er nýtt ár gengur í garð. Það verður ekki leyfi­legt þetta árið.

Búast mátti við þessum hertu sótt­varna­að­gerðum í Þýska­landi, en fyrir helgi sagði Merkel þýska þing­inu í til­finn­inga­ríkri ræðu að eitt­hvað þyrfti að gera. Fjöldi dag­legra dauðs­falla væri orð­inn óásætt­an­legur og hættan á að staðan færi algjör­lega úr bönd­unum raun­veru­leg.

„Ef við hittum of marga núna í aðdrag­anda jóla og það leiðir til þess að jólin verða þau síð­ustu sem við eigum með ömmu okkar og afa, þá hefur okkur mis­tek­ist,“ sagði Merkel og upp­skar lófatak þing­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár