Mynd: Heiða Helgadóttir

Ætlar að verða númer eitt í heiminum

Með einlægni og afslappaðri framkomu en fyrst og fremst ótrúlegum hæfi­leikum hefur Ólafíu Þórunni Kristins­dóttur tekist að kveikja áhuga jafnvel mestu andsportista á golf­íþróttinni. Hún hefur stokkið upp um meira en 300 sæti á heims­listanum á nokkrum mánuðum og hefur engar áætlanir um að hægja á sér. Hún stefnir þvert á móti í allra fremstu röð og lætur sig dreyma um að verða létta kven­útgáfan af svissnesku tennis­stjörnunni Roger Federer, hennar helstu fyrirmynd.

Það er ekki hlaupið að því að ná í skottið á Ólafíu Þórunni. Það er ekki svo að hún vilji forðast viðtal, heldur hefur hún í meira en nógu að snúast þá fáu daga sem hún staldrar við á landinu. Hún þarf að svara spurningum fjölmiðla, sitja fundi með styrktar­aðilum og halda fyrir­lestur, svona fyrir utan að hitta fjöl­skylduna sem stendur henni nærri og hún hittir allt of sjaldan. Svo þarf hún auðvitað að hitta tann­lækninn sinn, enda enn að jafna sig eftir stóra skurð­aðgerð á kjálka sem hún gekkst undir í desember. Við hittumst einmitt eftir viðtal hennar við tann­lækninn og samtalið hefst því á lýsingum á því hvernig efri kjálkinn var skorinn frá og færður til. „Það var allt losað,“ segir hún og bendir á efri hluta andlits síns. „Nefið á mér var meira að segja losað frá og læknirinn þurfti að sauma nasa­vænginn aftur niður. Sem betur fer sagði hann mér ekki frá þessu fyrir fram. Nefið á mér er ennþá dálítið skrýtið, ég er enn þá dálítið aum en þetta er allt að koma. Núna mætast tennurnar á réttan hátt og svo fæ ég þessi fínu kinnbein í bónus líka, þar sem efri kjálkinn var tekinn fram. Ég er samt ennþá dálítil bolla í andlitinu, því maður verður dálítið þrútinn og bólginn í 4–5 mánuði eftir aðgerð, en eftir svona tvo mánuði verð ég orðin venjuleg aftur!“

Hún segir frá þessu brosandi, eiginlega hálf­hlæjandi, og sú tilfinning vaknar að þarna fari manneskja sem taki áskorunum með jafnaðar­geði og brosi á vör. Það er einmitt þannig sem hún birtist á golf­vellinum og í viðtölum. Úr því að hún lýsir því brosandi hvernig tann­læknirinn fletti upp á henni andlitinu má leiða að því líkum að svona sé hún raun­verulega innréttuð. „Já, ætli ég sé ekki frekar jákvæð. Ég reyni líka að vera í kringum jákvætt fólk sem mér finnst gaman að vera með. Þeir sem eru í einhverri fýlu mega bara eiga sig. Ég er mjög tjilluð, kannski stundum aðeins of tjilluð. Thomas, kærastinn minn, er frá Þýska­landi og hann getur verið mjög agaður og skipulagður. Hann hefur reyndar kennt mér að skipuleggja líf mitt aðeins betur.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár