Telja rétt að stórauka framlög til nýsköpunar til að mæta afleiðingum faraldursins

Þingmenn í minni­hluta fjár­laga­nefndar telja að stór­auka þurfi fram­lög til nýsköp­un­ar­verk­efna í fjár­fest­ing­ar­átaki rík­is­ins. Sumir segja að bæta mætti auknu fé til verk­legra fram­kvæmda, en fjár­mála­ráð­herra ótt­ast að „troða“ of miklu fé í verk­taka­geir­ann.

„Hér höfum við, með okkar besta fólki í stjórnkerfinu, safnað saman hugmyndum að framkvæmdum sem hægt er að ráðast í á þessu ári,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra á Alþingi í gær, í fyrri umræðu um sérstakt tímabundið fimmtán milljarða fjárfestingarátak ríkisins, sem er hluti af viðspyrnupakka ríkisstjórnarinnar vegna efnahagslegra áhrifa COVID-19 faraldursins.

Í fjárfestingarátakinu kennir ýmissa grasa, en sundurliðun á þeim verkefnum sem áætlað er að ráðast í var birt á vef Alþingis á miðvikudagskvöld. Mest af þessu fé er eyrnamerkt samgönguverkefnum, eða rúmir sex milljarðar króna, 41 prósent af heildarpakkanum.

Stefnt er að því að ráðast í þetta fimmtán milljarða króna átak á grundvelli samsvarandi fjárheimildar sem finna má í fjáraukalagafrumvarpi sem lagt var fram á þinginu fyrir tæpri viku síðan, en einnig er stefnt að fimm milljarða fjárfestingum á vegum fyrirtækja í eigu ríkisins.

„Átakinu er ætlað að stuðla að arðbærum fjárfestingum sem auki eftirspurn eftir vinnuafli og framleiðslugetu hagkerfisins. Gert er ráð fyrir því að ráðist verði í fjölbreytt verkefni á málefnasviðum flestra ráðuneyta. Mikilvægt er að verkefnin skapi eftirspurn eftir ólíkum tegundum starfa, jafnt kvenna sem karla og að þau dreifist um landið,“ segir í greinargerð með þingsályktunartillögunni.

Í umræðum í þinginu í gær kom það fram í máli nokkurra þingmanna að fimmtán milljarðar væru ekki nægilega há upphæð, meira þyrfti til á þessum tímapunkti. Samtök iðnaðarins kölluðu einnig eftir því, í umsögn sinni um fjáraukalagafrumvarpið, að strax á þessu ári yrði ráðist í framkvæmdir í samgöngum og byggingum sem næmu að minnsta kosti 30-35 milljörðum umfram núverandi áætlanir.

Fjármálaráðherra svaraði gagnrýni í þessa átt með þeim hætti að hann hefði áhyggjur af því að erfitt yrði að koma 30-40 milljörðum króna úr ríkissjóði „í vinnu“ á þeim níu mánuðum sem eftir lifa árs og fá hagstæð verð, ef menn ætluðu að „troða peningum ofan í verktakageirann.“

„Við gætum misst stjórn á framboði og eftirspurn,“ sagði Bjarni.

Óttast að verið sé að gera of lítið

Ágúst Ólafur Ágústs­son þing­maður Sam­fylk­ingar og nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd, ótt­ast þrátt fyrir þetta að ekki sé verið að gera nóg. Hann bendir sér­stak­lega á, í sam­tali við Kjarnann, að auð­velt væri að marg­falda fram­lögin sem áætluð eru til nýsköp­unar. Samkvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni stjórn­ar­innar er áætlað að fram­lög í Rann­sókna­sjóð og Inn­viða­sjóð verði sam­an­lagt aukin um 400 millj­ónir og þá er gert ráð fyrir 400 milljón króna auka­fram­lagi til Tækni­þró­un­ar­sjóðs.

„Ríkið þarf að stíga miklu fastar inn í nýsköp­un­ar­um­hverfið,“ segir þing­mað­ur­inn og bætir við að hann telji að afnema ætti þak á end­ur­greiðslur á þró­un­ar­kostn­aði og leggja meiri fjár­muni í end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar. „Ráð­herr­arnir segja að þeir vilji frekar gera of mikið en of lítið, en ég ótt­ast að þeir séu að gera hið gagn­stæða,“ segir Ágúst Ólafur.

„Óafsakanlegt“ að ekki sé hægt að styðja verðug nýsköpunarverkefni

Annar nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd, Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata, tekur í sama streng hvað fram­lög til nýsköp­unar varðar. Hann bendir á það sem fram kom í umsögn Samtaka iðn­að­ar­ins um fjár­auka­laga­frum­varpið, að ein­ungis 27% þeirra verk­efna sem fengu hæstu ein­kunn í mati Tækni­þró­un­ar­sjóðs fengu úthlutun úr sjóðnum. Samtök iðn­að­ar­ins sögðu þetta benti til ónýttra tæki­færa og Björn Leví er sam­mála því.

„Svo­leiðis gat er óaf­sak­an­legt,“ segir þing­mað­ur­inn, „því við vitum öll ábatann af þeim verk­efnum.“ Hann bætir við að ef atvinnu­leysi fari á flug á næstu mán­uðum væri gott að setja rann­sóknar- og nýsköp­un­ar­verk­efni af stað, sem gætu skapað fjölda fjöl­breyttra starfa ofan á þau störf sem skap­ast við við­halds- og fram­kvæmda­verk­efnum sem áætlað er að ráð­ast í.

Hvað heild­ar­upp­hæð fjár­fest­ing­ar­átaks­ins varðar segir Björn Leví að honum þyki fimmtán millj­arðar, eða tutt­ugu, ágætt fyrsta skref, enda hafi stjórn­völd boðað að ráð­ist verði í frekara fjár­fest­ing­ar­á­tak á árunum 2021-2023.

„En það eru göt þarna, sem mætti stoppa upp í,“ segir Björn og bætir við að stjórn­völd þyrftu að hans mati að gera meira, í við­spyrnu sinni vegna efna­hags­legra áhrifa heims­far­ald­urs­ins, til þess að vernda við­kvæm­ustu hópa sam­fé­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár