Deila um hvort Kim Kardashian hafi skemmt kjól sem var í eigu Marilyn Monroe

Í vik­unni voru birtar myndir sem sýna áttu slit á sögu­frægum kjól sem Kim Kar­dashian klædd­ist á Met Gala. Fyr­ir­tækið sem lán­aði kjól­inn segir nýja kyn­slóð hafa kynnst arf­leifð Marilyn Monroe í kjöl­far láns­ins og hafnar því að hann hafi skemmst.

Kim Kardashian og Pete Davidson á Met Gala í maí.
Kim Kar­dashian og Pete Davidson á Met Gala í maí. Mynd: EPA

For­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins Ripley’s Believe It or Not! full­yrða að Kim Kar­dashian hafi ekki valdið tjóni á sögu­frægum kjól sem eitt sinn var í eigu Marilyn Monroe þegar Kar­dashian klædd­ist kjólnum á rauða dregli Met Gala í síð­asta mán­uði. Fyrr í vik­unni bár­ust af því fregnir að kjóll­inn hafi laskast á Met Gala, safn­ar­inn Scott Fortner birti myndir á Instagram reikn­ingi sínum The Marilyn Monroe Collection sem sýndu að margir af gervi­demönt­unum sem prýða kjól­inn hefðu losnað af honum og að aug­ljós slit væru sýni­leg á bak­hluta hans. Fortner starfar við að stað­festa upp­runa muna sem tengdir eru Monroe en hann er jafn­framt eig­andi stærsta einka­safns muna og gripa sem tengj­ast Monroe. Hægt er að sjá Instagram færlsu Fortners neðst í frétt­inni. [links]

Í yfir­lýs­ingu frá Ripley’s Believe It or Not! hafnar fyr­ir­tækið því aftur á móti að kjóll­inn hafi orðið fyrir skemmdum á Met Gala. Hann sé í nákvæm­lega sama ásig­komu­lagi og hann var fyrir hátíð­ina. Kjóllinn er sá dýr­asti sem seldur hefur verið á upp­boði en Ripley’s Believe It or Not! keypti kjól­inn árið 2016 á upp­boði. Kaup­verðið nam 4,8 millj­ónum Banda­ríkja­dala sem á gengi dags­ins í dag sam­svarar 630 millj­ónum króna.

Enginn klæðst kjólnum í 60 ár

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um ráku safn­menn upp stór augu þegar þegar greint var frá því að Kim Kar­dashian hefði mætt á rauða dregil Met Gala í kjólnum sem um ræðir. Marilyn Monroe klædd­ist þessum sama kjól þegar hún söng afmæl­is­söng­inn fyrir John F. Kennedy, þáver­andi Banda­ríkja­for­seta, árið 1962. Að því er fram kemur í umfjöllun the Guardian hafði eng­inn klæðst kjólnum í þessi 60 ár sem liðin eru á milli afmæl­is­veislu for­set­ans og nýaf­stað­innar Met Gala hátíðar. [adspot]

Til marks um alvar­leika máls­ins sendi Alþjóða­ráð safna (ICOM) frá sér yfir­lýs­ingu þar sem imprað er á því að sögu­frægum flíkum ætti eng­inn að klæð­ast, nokkurn tím­ann, hvort sem við­kom­andi er frægur eða ei.

Kar­dashian var einnig gagn­rýnd fyrir það hversu ákveðin hún var í ákvörðun sinni að klæð­ast kjólnum á rauða dregl­inum. Nokkrum vikum fyrir Met Gala kom í ljós að kjóll­inn pass­aði ekki full­kom­lega. Vegna þess að ekki var hægt að gera á honum nokkrar breyt­ingar fór Kar­dashian á stífan meg­r­ún­ar­kúr. Fyrir það var hún harð­lega gagn­rýnd og sögð senda aðdá­endum sínum, sem telja millj­ónir, vafasöm skila­boð.

Í mynd­band­inu hér fyrir neðan sést hvernig starfs­fólk Ripley’s Believe It or Not! reynir að troða Kar­dashian í kjól­inn sem aug­ljós­lega passar ekki utan um bak­hluta Kar­dashian.

Ný kynslóð fengið að kynnast arfleifð Monroe

Í yfir­lýs­ingu Ripley’s Believe It or Not! segir að mark­mið fyr­ir­tæk­is­ins sé bæði að skemmta og fræða gesti og að þær umræður sem sprottið hafa upp í kjöl­far kjóla­láns­ins séu nákvæm­lega til þess fallnar. „Það skiptir ekki máli á hvoru megin þú stendur í rök­ræðum um lánið, sögu­legu gildi kjól­ins hefur ekki verið stofnað í hættu, heldur hefur það verið und­ir­strikað. Nýr hópur ungs fólks hefur nú fengið að kynn­ast sögu og arf­leifð Marilyn Monroe,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. [adspot]

Ripley’s Believe It or Not! þáði ekki greiðslu fyrir lánið og Kar­dashian var ekki greitt fyrir það að klæð­ast kjólnum. Engu að síður er ljóst að þessi upp­á­koma hefur vakið mjög mikla athygli og reynst Ripley’s Believe It or Not! afar góð kynn­ing.

Safnið hefur sett upp sýn­ingu á munum sem tengj­ast Marilyn Monroe í úti­búi sínu í Hollywood. Áður­nefndur kjóll er í aðal­hlut­verki á sýn­ing­unni sem opn­aði í lok maí og stendur yfir allt fram til loka hausts­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár