„Sögufrægum flíkum ætti enginn að klæðast, nokkurn tímann“

Fyrr í mán­uð­inum mætti Kim Kar­dashian á Met Gala í sögu­frægum kjól sem var í eigu Marilyn Monroe. Svo mjög voru for­verðir óánægðir með upp­á­tækið að ICOM, alþjóða­ráð safna, sá ástæðu til að senda frá sér yfir­lýs­ingu.

Kim Kardashian á rauða dregli Met Gala fyrr í þessum mánuði. Skömmu eftir að þessi mynd var tekin skipti hún yfir í endurgerð kjólsins til þess að koma í veg fyrir skemmdir á þeim upprunalega.
Kim Kar­dashian á rauða dregli Met Gala fyrr í þessum mán­uði. Skömmu eftir að þessi mynd var tekin skipti hún yfir í end­ur­gerð kjóls­ins til þess að koma í veg fyrir skemmdir á þeim upp­runa­lega. Mynd: EPA

Hann á afmæli, hann herra for­seti. Hann á afmæli í dag,“ söng Marilyn Monroe seið­andi röddu í 45 ára afmæl­is­veislu Johns F. Kennedys sem haldin var í Madison Square Garden í maí árið 1962. Monroe var ögn sein inn á svið og virk­aði tauga­ó­styrk í fyrstu en atriðið hafði verið æft í þaula og fór nákvæm­lega eins og stefnt var. Það geisl­aði af henni á svið­inu líkt og þeim þús­undum gervi­dem­anta sem kjóll hennar var alsettur.

Margt hefur dunið á í henni ver­öld síðan þessi veisla var haldin. Þau Kennedy og Monroe gengu bæði á vit for­feðra sinna langt fyrir aldur fram ekki löngu seinna. Monroe lést innan við þremur mán­uðum síðar af völdum of stórs skammts af svefn­lyfjum og Kennedy var myrtur í Dallas í nóv­em­ber árið 1963. Ekki liðu mörg ár í við­bót þar til Madison Square Garden, þriðja við­burða­húsið til að bera það nafn, var rifið. Eftir stendur kjóll­inn glæsi­legi sem Monroe klædd­ist og ratar enn í fyr­ir­sagnir.

Saga bandarískrar tísku í brennidepli á Met Gala

Það vakti mikla athygli þegar Kim Kar­dashian klædd­ist umræddum kjól á rauða dregli Met Gala fyrr í þessum mán­uði og við­brögðin voru ýmist jákvæð eða nei­kvæð. Í umfjöllun Time Magazine segir að kjóll­inn og allt yfir­bragð Kar­dashian hafi verið full­komið fyrir þema Met Gala sem í þetta skipti hverfð­ist um sögu banda­rískrar tísku.

„Hvað er það banda­rís­kasta sem þú getur hugsað þér? Það er Marilyn Monroe,“ sagði Kim Kar­dashian í við­tali við Vogue um ákvörðun sína að mæta til hátíð­ar­boðs­ins í kjólnum. „Í mínum huga er þessi við­burður, þegar Marilyn söng afmæl­is­söngin fyrir JFK það sem er mest eft­ir­minni­legt og ein­kenn­andi fyrir hana.“

Kar­dashian kaus að ganga lengra heldur en að klæð­ast kjólnum á Met Gala. Hún leit­að­ist eftir umbreyt­ingu og til þess að kór­óna ger­við varði hún 14 klukku­stundum í stólnum hjá hár­greiðslu­meist­ara sem aflit­aði á henni hárið. Hún var Marilyn Monroe þegar hún gekk rauða dreg­il­inn í skín­andi kjólnum.

Þrátt fyrir að 14 klukku­stunda hár­litun kunni að hljóma eins og þol­raun, þá er hér ekki öll sagan sögð af umbreyt­ing­ar­ferl­inu. Kjólnum, sem alla jafna er geymdur við kjörað­stæður, var flogið með einka­þotu frá Flórída til Kali­forníu nokkrum mán­uðum fyrir Met Gala til þess að Kar­dashian gæti fengið að máta hann. Hún hafði þá fengið að máta end­ur­gerð kjóls­ins sem pass­aði full­kom­lega.

Þegar upp­runa­legi kjóll­inn var kom­inn á áfanga­stað á heim­ili Kar­dashian þá pass­aði hann ekki. Hún þurfti því að taka ákvörðun um hvort hún myndi finna sér nýjan sér nýjan kjól eða aðlaga sig að kjólnum. Hún kaus síð­ari kost­inn, fór á stífan megr­un­ar­kúr og sam­kvæmt umfjöllun BBC missti hún 7,3 kíló á þremur vikum til þess að passa í kjól­inn. Fyrir það hefur hún verið harð­lega gagn­rýnd, hún sé fyr­ir­mynd millj­óna og með því að grenna sig svo skarpt hafi hún sent aðdá­endum sínum afar vara­söm skila­boð.

Svipaðar beiðnir frá fræga fólkinu algengar

En gagn­rýnin sneri að fleiru en megr­un­ar­kúr Kim Kar­dashian. Forverði og safn­menn rak í rogastans yfir því að Kar­dashian hefði verið leyft að klæð­ast þessum kjól og sér­fræð­ingar úr safna­heim­inum hafa gagn­rýnt upp­á­tækið harð­lega. Sarah Scarturro sem var for­stöðu­maður for­vörslu tísku­gripa á Met safn­inu hraun­aði yfir Kar­dashian í færslu á Instagram. Þegar hún gegndi starfi yfir­for­varðar hjá Costume Institue á Met safn­inu hafi hún reglu­lega fengið fyr­ir­spurnir um hvort frægt fólk og fyr­ir­sætur gætu fengið ómet­an­lega muni úr safn­inu að láni. Þeim var ætíð hafnað. Til marks um alvar­leika máls­ins sendi Alþjóða­ráð safna (ICOM) frá sér yfir­lýs­ingu þar sem imprað er á því að sögu­frægum flíkum ætti eng­inn að klæð­ast, nokkurn tím­ann, hvort sem við­kom­andi er frægur eða ei.

Kim Kardashian og Pete Davidsson á rauða dregli Met Gala. Samkvæmt umfjöllun Buzzfeed News passaði kjóllinn ekki betur en svo að ómögulegt var að renna honum alveg upp að aftan. Því hafi Kim valið að hylja bakhlutann með hvítum loðfeld.
Kim Kar­dashian og Pete Dav­ids­son á rauða dregli Met Gala. Samkvæmt umfjöllun Buzzfeed News pass­aði kjóll­inn ekki betur en svo að ómögu­legt var að renna honum alveg upp að aftan. Því hafi Kim valið að hylja bak­hlut­ann með hvítum loð­feld.

Í yfir­lýs­ing­unni er bent á siða­reglur ICOM þar sem finna má bæði fag­leg við­mið og lág­marks­staðla fyrir safna­starf­semi. „Þó svo að ekki öll söfn eigi aðild að ICOM, þá hafa reglur og ábend­ingar alþjóða­ráðs­ins um bestu starfs­hætti verið við­ur­kenndar og þeim fylgt af mörgum stofn­unum út um allan heim,“ segir í yfir­lýs­ing­unni sem vísar í kjöl­farið á við­mið­un­ar­reglur ICOM um varð­veislu klæðn­aðar.

„Samkvæmt við­muð­un­ar­regl­unum þá skal með­höndlun gripa haldið í lág­marki til þess að tryggja sem besta varð­veislu þeirra; gripir skulu ekki hreins­aðir eða þvegnir af öðrum en þjálf­uðum for­vörðum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. Þar er einnig tekið fram að við með­höndlun þurfi að nota bómull­ar­hanska. Einnig er gerð sú krafa til þess sem með­höndlar gripi af þessum toga að við­kom­andi hafi ekki notað ilm­vatn, húð­krem eða farða fyrir með­höndlun og mælst er til þess að við­kom­andi klæð­ist ekki skart­gripum á meðan með­höndlun stendur til að koma í veg fyrir að lausir þræð­ist fest­ist í þeim.

Safngripir viðkvæmir fyrir ljósmyndaflassi

Aðrir þættir sem snúa að við­eig­andi varð­veislu gripa eru raka-, birtu- og hita­stig en passa þarf upp á gildi þeirra í þeim rýmum þar sem gripir eru sýndir eða geymdir. Í til­kynn­ing­unni er auk þess sér­stak­lega bent á að forð­ast skuli sterka lýs­ingu, þá ekki síst frá leift­ur­ljósum mynda­véla. Augljóst mál er að fáar flíkur hafa setið undir jafn miklu ljós­mynda­flassi líkt og kjóll­inn sögu­frægi á Met Gala.

„Þegar kemur að for­vörslu er mik­il­væg­ast að hafa eft­ir­far­andi í huga: „Fyr­ir­byggj­andi for­varsla er betri heldur en við­gerðir. Röng með­höndlun eyði­leggur muni að eilífu.“,“ segir enn fremur í yfir­lýs­ingu ICOM sem greini­lega lítur málið alvar­legum augum. „Þó svo að kjóll­inn sé í eigu einka­að­ila, þá er nauð­syn­legt að horfa á hann og menn­ing­ar­sögu­lega arf­leifð hans sem sam­eign alls mann­kyns, burt­séð frá því hver á hann. Sem fag­fólk á sviði safna mæl­umst við til þess að öll söfn forð­ist það að lána fólki sögu­frægan fatnað þar sem slíkir gripir standa fyrir efn­is­menn­ingu síns tíma og þá gripi ber að varð­veita fyrir kom­andi kyn­slóðir.“

Þar að auki er á það bent í yfir­lýs­ing­unni að kjóll­inn er saum­aður úr efni sem er ekki lengur fram­leitt og því ekki hægt að gera við hann eða bæta mögu­legar skemmdir. Efnið er svo­kallað soufflé silki en fram­leiðsla á efn­inu var bönnuð eftir að í ljós kom hversu eld­fimt það er.

Safn ekki það sama og safn

Íslend­ingar ættu að kann­ast við eig­anda kjóls­ins sem er fyr­ir­tækið Ripley's Believe It or Not! Umsvif fyr­ir­tæk­is­ins í afþrey­ing­ar­iðn­aði eru ansi mikil. Það gefur út bækur sem bera nafn fyr­ir­tæk­is­ins þar sem segir frá ótrú­legum atburðum og hvers kyns undrum, sjón­varps­þætt­irnir Ripley's Believe It or Not! voru sýndir á Skjá 1 í nokkur ár á fyrsta ára­tug þess­arar aldar og þá rekur fyr­ir­tækið söfn út um víða ver­öld, til að mynda í Kaup­manna­höfn og Amster­dam en flest eru söfnin í Norður-Ameríku.

Eitt af söfnum Ripley's believe it or not í Baltimore í Bandaríkjunum.
Eitt af söfnum Ripley's beli­eve it or not í Baltimore í Banda­ríkj­unum.

Það er nokkur ein­földun að kalla þau söfn sem Ripley's Believe It or Not! rekur út um allan heim söfn. Starf­semi þess­ara safna stang­ast nefni­lega á við safna­skil­grein­ingu ICOM, þar sem þau eru rekin í ágóða­skyni og fyr­ir­tækið er því eðli máls­ins sam­kvæmt ekki aðili að ICOM.

Á und­an­förnum árum hefur ICOM unnið að end­ur­skoðun á safna­skil­grein­ingu sinni og mun ný skil­grein­ing vera lögð fyrir alls­herj­ar­þing ICOM sem haldið verður í Prag í ágúst. Núver­andi skil­grein­ing var sam­þykkt á alls­herj­ar­þingi ICOM í Vín árið 2007 og er svohljóð­andi: „Safn er stofnun með fastan rekstur sem ekki er rekin í ágóða­skyni heldur til þjón­ustu við sam­fé­lagið og til fram­gangs þess, er opin almenn­ingi og safnar, varð­veitir, rann­sakar, miðlar og sýnir – til skoð­unar, mennt­un­ar­auka eða ánægju – það sem til vitnis er um fólk og umhverfi þess, bæði áþreif­an­legt og óáþreif­an­legt.“

Þrátt fyrir að eiga yfir­grips­mikla saf­n­eign ólíkra muna sem margir hverjir eru mjög mik­il­vægir í menn­ing­ar­sögu­legu til­liti, líkt og kjóll­inn hennar Marily, þá er Ripley's Believe It or Not! þegar öllu er á botn­inn hvolft fyr­ir­tæki en ekki safn. Því geta starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins strangt til tekið gert hvað sem þeir vilja við safn­grip­ina.

Í lok maí hefst sýn­ing á munum sem tengj­ast Marilyn Monroe í úti­búi Ripley's Believe It or Not! í Hollywood. Meðal þeirra gripa sem verður til sýnis er kjóll­inn marg­um­tal­aði sem mun vafa­laust trekkja að. Kjóllinn er í heims­meta­bók Guinness vegna þess að hann er dýr­asti kjóll sem seldur hefur verið á upp­boði. Þegar Ripley's Believe It or Not! keypti kjól­inn árið 2016 nam kaup­verðið 4,8 millj­ónum Banda­ríkja­dala sem sam­svarar um það bil 640 millj­ónum króna á gengi dags­ins í dag. Í kjöl­far allrar þeirrar umræðu sem spunn­ist hefur í kringum kjól­inn á síð­ustu vikum er óhætt að full­yrða að virði hans hafi auk­ist. Það verður því for­vitni­legt að sjá hvort fyr­ir­tækið muni á end­anum selja kjól­inn og hafa af honum millj­óna dala hagnað – það er nokkuð sem söfn innan ICOM gætu ekki leyft sér að gera við merka muni í sinni saf­n­eign.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár