Starfsmönnum ekki refsað fyrir ritstuld

Háskól­inn ætl­aði að setja sér starfs­reglur eftir að Hannes var dæmdur en hætti við. Stundin ræddi við rekt­ors­fram­bjóð­endur um afstöðu þeirra.

Ólíkar kröfur til kennara og nemenda
Ólíkar kröfur til kenn­ara og nem­enda Háskóli Íslands tekur ekki hart á mis­notkun heim­ilda þegar starfs­maður ger­ist sekur um slíkt. Um rit­stuld nem­enda er þó kveðið á um í reglum skól­ans. Mynd: Kristinn Magnússon

Ekki er hefð fyrir því að refsa kenn­urum og akademískum starfs­mönnum við Háskóla Íslands fyrir rit­stuld, en sam­kvæmt reglum skól­ans er nem­endum hins vegar „alger­lega óheim­ilt að nýta sér hug­verk ann­arra í rit­gerðum og verk­efnum, nema heim­ilda sé getið í sam­ræmi við við­ur­kennd fræði­leg vinnu­brögð“. Þá hefur hug­vís­inda­svið háskól­ans sett sér sér­stakar reglur um við­ur­lög við heim­ilda­mis­notkun. Engar sam­bæri­legar reglur eru til um störf kenn­ara og akademískra starfs­manna og eftir því sem Stundin kemst næst hefur starfs­manni við skól­ann aldrei verið refsað fyrir rit­stuld. 

Starfs­reglur ekki settar
Þann 13. mars árið 2008 dæmdi Hæsti­réttur Íslands Hannes Hólm­stein Giss­ur­ar­son, stjórn­mála­fræði­pró­fessor við háskól­ann, fyrir brot gegn höf­und­ar­rétti á verkum Halldórs Kiljans Laxness. Rit­stuld­ur­inn fólst í því að Hannes nýtti sér texta skálds­ins lítt breyttan án þess að geta heim­ilda. Hannes fékk að starfa áfram við háskól­ann og fékk ekki áminn­ingu, enda taldi Kristín Ing­ólfs­dóttir rektor að háskól­inn hefði „ekki laga­legt svig­rúm til að veita áminn­ingu með til­svar­andi rétt­ar­á­hrifum“. Ákvörðun hennar var mjög umdeild,  bæði innan og utan skól­ans, enda veitir 21. gr. laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins for­stöðu­mönnum stofn­ana tals­vert svig­rúm til mats á því hvort starfs­menn verð­s­kuldi áminn­ingu.

Fram kom í opnu bréfi sem rektor sendi Hannesi að sett hefði verið af stað vinna innan skól­ans um setn­ingu starfs­reglna til að fyr­ir­byggja að mál af þessu tagi kæmi upp aftur. Enn hafa engar slíkar starfs­reglur litið dags­ins ljós. „Mér skilst að þegar málið var skoðað hafi nið­ur­staðan verið sú að Háskól­inn gæti ekki sett eigin reglur um við­ur­lög sem ganga lengra en lands­lög,“ segir Jón Atli Bene­dikts­son, aðstoð­ar­rektor og rekt­ors­fram­bjóð­andi í tölvu­pósti til Stund­ar­innar, en bendir jafn­framt á að starfs­manna­mál heyra undir for­seta fræða­sviða og rektor. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár