Tchenguiz sótti um leyfi til að áfrýja - Gæti tafið gerð nauðasamnings Kaupþings um tvö ár

Vincent Tchenguiz, bresk-íranskur fjár­festir sem höfðað hefur mál gegn slita­búi Kaup­þings, sótti á föstu­dag um heim­ild hjá áfrýj­un­ar­dóm­stóli í Bret­landi til að áfrýja skaða­bóta­kröfu sinni gegn búinu. Þetta hefur Kjarninn fengið stað­fest hjá ráð­gjöfum Tchenguiz. Samþykki dóm­ari að leyfa Tchenguiz að áfrýja gæti það sett nauða­samn­ing Kaup­þings í algjört upp­nám og tafið slit bús­ins um allt að tvö ár. Það myndi þýða að nauða­samn­ingur muni ekki geta klár­ast fyrir ára­mót og því legg­ist 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur á eignir þess, sam­kvæmt áætlun stjórn­valda um losun hafta sem kynnt var í byrjun júní.

Kaupþing hefur þegar samið við íslensk stjórn­völd um að mæta þeim stöð­ug­leika­skil­yrðum sem sett voru fram í áætlun þeirra um losun hafta. Tillögur að því sam­komu­lagi voru lagðar fram áður en að áætl­unin var kynnt með látum í Hörpu í byrjun júní. Samkvæmt útreikn­ingum Kjarnans, sem sér­fræð­ingar hafa farið yfir, fela þeir samn­ingar í sér að Kaupþing greiði íslenska rík­inu ríf­lega 100 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag, miðað við að sölu­and­virði Arion banka sé 80 pró­sent af bók­færðu virði eigin fjár hans í dag.

Bókfært virði eigna Kaup­þings í lok árs 2014 var hins vegar 799,9 millj­arðar króna. Ef 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur yrði lagður á þær allar þá myndi hann skila íslenska rík­inu yfir 300 millj­örðum króna.

Kjarninn leit­aði eftir við­brögðum frá slita­stjórn Kaup­þings vegna mögu­legrar áfrýj­unar Tchenguiz fyrir helgi og hvort mála­rekst­ur­inn setji nauða­samn­ing bús­ins í upp­nám. Svar hennar var ein­falt: „Slita­stjórn Kaup­þings hyggst ekki tjá sig um þetta“.

[caption id="attachment_31634" align="alignnone" width="640"] Tilkynnt var um aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda við losun hafta í byrjun júní síð­ast­lið­inn. Kynning á aðgerð­unum for fram í Hörpu og var sýnd i beinni útsend­ingu.[/caption]

Tilkynnt var um aðgerðaráætlun stjórnvalda við losun hafta í byrjun júní síðastliðinn. Kynning á aðgerðunum for fram í Hörpu og var sýnd i beinni útsendingu.
Tilkynnt var um aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda við losun hafta í byrjun júní síð­ast­lið­inn. Kynning á aðgerð­unum for fram í Hörpu og var sýnd i beinni útsend­ingu.

 

Vill fá 460 milljarða króna


Tchenguiz stefndi Grant Thornton í Bret­landi og tveimur starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins, Kaup­þingi og Jóhann­esi Rúnari Jóhanns­syni, sem situr í slita­stjórn bús­ins, fyrir að hafa lagt á ráðin um, haft frum­kvæði að og tekið þátt í, rann­sókn bresku efna­hags­brota­deild­ar­innar Special Fraud Office (SFO), á honum og fyr­ir­tækjum í hans eigu. Þetta hafi leitt til þess að hann var hand­tek­inn á heim­ili sínu í mars 2011 og leitað var á skrif­stofu hans og í fyr­ir­tækjum í hans eigu. Hann vill fá 2,2 millj­arða punda, um 460 millj­arða króna, í bætur vegna þessa.

Til­gang­ur­inn, að sögn Vincent Tchenguiz, var sá að nota rann­sókn SFO á meintum glæpum hans til að knýja hann til að semja um mál­efni sinna félaga gagn­vart Kaup­þingi, afla gagna frá SFO, sem emb­ættið gerði upp­tækt í hús­leit hjá Vincent, sem Kaupþing hefði ella ekki getað aflað og síðan mis­nota þau gögn í sam­skiptum sínum við Vincent Tchenguiz. Hann telur að með þessu hafi Kaupþing viljað kom­ast yfir eignir hans og fyr­ir­tæki sem honum tengd­ust. Þetta átti að skila Kaup­þingi auknum eignum og Grant Thornton í Bret­landi auknum greiðslum, þar sem starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins myndu sjá um skipti á þeim eignum sem teknar yrðu yfir.

Engin efnisleg niðurstaða liggur fyrir


Í lok júní hafn­aði breskur und­ir­dóm­stól mála­til­bún­aði Jóhann­esar Rúnars um að þar­lendir dóm­stólar hafi ekki lög­sögu í mál­inu gegn honum. Jóhannes Rúnar vildi að málið yrði tekið fyrir á Íslandi þar sem ein­ungis íslenskir dóm­stólar hefðu lög­sögu yfir upp­gjöri slita­bús Kaup­þings, en af því verður ekki. Kjarninn hefur óskað eftir upp­lýs­ingum hjá slita­búi Kaup­þings um hver það er sem greiðir fyrir málsvörn Jóhann­esar Rúnars í mál­inu en það hefur ekki viljað veita upp­lýs­ingar um það.

[caption id="attachment_13100" align="alignnone" width="624"] Jóhannes Rúnar Jóhanns­son situr í slita­stjórn Kaup­þings.[/caption]

Jóhannes Rúnar Jóhannsson situr í slitastjórn Kaupþings.
Jóhannes Rúnar Jóhanns­son situr í slita­stjórn Kaup­þings.

Kjarninn hefur dóm­inn undir höndum og það er vert að taka fram að í honum er ekki tekin nein efn­is­leg afstaða til efn­is­at­riða máls­ins heldur ein­ungis hvort dóm­stóll­inn hafi lög­sögu yfir þeim sem stefnt var. Þetta var sér­stak­lega tekið fram í nið­ur­stöðu dóm­ar­ans.

Dóm­stóll­inn taldi málið hins vegar varða atburði sem áttu sér stað á breskri grundu og því verði þeir teknir fyrir af bresku rétt­ar­kerfi. Hins vegar var við­ur­kennt að breskir dóm­stólar hafi ekki lög­sögu yfir slita­búi Kaup­þings enda geri íslensk gjald­þrota­lög ráð fyrir því að íslenskir dóm­stólar hafi einir lög­sögu yfir þeim. Þeirri ákvörðun gat Tchenguiz mögu­lega áfrýjað.

Stór hluti eigna búsins gæti endað hjá Tchenguiz vinni hann málið


Tchenguiz sótti um leyfi til að gera nákvæm­lega það, að áfrýja mál­inu, á föstu­dag. Dómari mun nú þurfa að taka ákvörðun um hvort Tchenguiz fái að gera það. Ef það leyfi fæst, og málið fer aftur fyrir dóm­stóla, áætla ráð­gjafar Tchenguiz að mála­rekst­ur­inn geti tekið allt að tvö ár. Og að slit Kaup­þings tefj­ist um þann tíma.

Ástæðan er ein­fald­lega sú að eignir slita­bús Kaup­þings voru um síð­ustu ára­mót, líkt og áður sagði, um 800 millj­arðar króna. Ef krafa Tchenguiz, sem er upp á 460 millj­arða króna, helst lif­andi er ljóst að stór hluti eigna bús­ins verði bund­inn vegna hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár