Slitastjórn Kaupþings tjáir sig ekki um hvort nauðasamningur sé í uppnámi

Slita­stjórn Kaup­þings hyggst ekki tjá sig um hvort nauða­samn­ingur slita­bús­ins gæti verið í upp­námi ef Vincent Tchenguiz, bresk-íranskur fjár­festir sem höfðað hefur mál gegn búinu, fær heim­ild hjá áfrýj­un­ar­dóm­stóli í Bret­landi til að áfrýja skaða­bóta­kröfu sinni gegn því.

Við­skipta­Mogg­inn greindi frá því í morgun að Tchenguiz hafi fram að helgi til að sækja um áfrýj­un­ar­leyfið. Fái hann það þá er mögu­legt að slitabú Kaup­þings geti ekki klárað nauða­samn­ing sinn fyrir ára­mót. Náist það ekki mun 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur leggj­ast á búið.

Kjarninn óskaði eftir við­brögðum slita­stjórnar Kaup­þings vegna þess­arra tíð­inda. Í svari starfs­manns hennar segir ein­fald­lega: „Slita­stjórn Kaup­þings hyggst ekki tjá sig um þetta“.

Vill fá 455 milljarða króna


Tchenguiz stefndi Grant Thornton í Bret­landi og tveimur starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins, Kaup­þingi og Jóhann­esi Rúnari Jóhanns­syni, sem situr í slita­stjórn bús­ins, fyrir að hafa lagt á ráðin um, haft frum­kvæði að og tekið þátt í, rann­sókn bresku efna­hags­brota­deild­ar­innar Special Fraud Office (SFO), á honum og fyr­ir­tækjum í hans eigu. Þetta hafi leitt til þess að hann var hand­tek­inn á heim­ili sínu í mars 2011 og leitað var á skrif­stofu hans og í fyr­ir­tækjum í hans eigu. Hann vill fá 2,2 millj­arða punda, um 455 millj­arða króna, í bætur vegna þessa.

Til­gang­ur­inn, að sögn Vincent Tchenguiz, var sá að nota rann­sókn SFO á meintum glæpum hans til að knýja hann til að semja um mál­efni sinna félaga gagn­vart Kaup­þingi, afla gagna frá SFO, sem emb­ættið gerði upp­tækt í hús­leit hjá Vincent, sem Kaupþing hefði ella ekki getað aflað og síðan mis­nota þau gögn í sam­skiptum sínum við Vincent Tchenguiz. Hann telur að með þessu hafi Kaupþing viljað kom­ast yfir eignir hans og fyr­ir­tæki sem honum tengd­ust. Þetta átti að skila Kaup­þingi auknum eignum og Grant Thornton í Bret­landi auknum greiðslum, þar sem starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins myndu sjá um skipti á þeim eignum sem teknar yrðu yfir.

Um síð­ustu mán­að­ar­mót hafn­aði breskur und­ir­dóm­stól mála­til­bún­aði Jóhann­esar Rúnars um að þar­lendir dóm­stólar hafi ekki lög­sögu í máli sem athafna­mað­ur­inn Vincent Tchenguiz hefur höfðað gegn honum. Jóhannes Rúnar vildi að málið yrði tekið fyrir á Íslandi þar sem ein­ungis íslenskir dóm­stólar hefðu lög­sögu yfir upp­gjöri slita­bús Kaup­þings, en af því verður ekki.

Dóm­stóll­inn taldi málið varða atburði sem áttu sér stað á breskri grundu og því verði þeir teknir fyrir af bresku rétt­ar­kerfi. Hins vegar var við­ur­kennt að breskir dóm­stólar hafi ekki lög­sögu yfir slita­búi Kaup­þings enda geri íslensk gjald­þrota­lög ráð fyrir því að íslenskir dóm­stólar hafi einir lög­sögu yfir þeim. Þeirri ákvörðun gæti Tchenguiz mögu­lega áfrýjað.

Eignir slita­bús Kaup­þings námu um síð­ustu ára­mót tæpum 800 millj­örðum króna og stór hluti eigna bús­ins bund­inn vegna kröfu Tchenguiz hald­ist hún lif­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár