Samkomulag þar sem allir telja sig sigurvegara

Búið er að semja við kröfu­hafa Glitnis, Kaup­þings og gamla Lands­bank­ans um lausn á þeim risa­stóra vanda sem slitabú þeirra valda íslensku hag­kerfi. Í lausn­inni felst að kröfu­haf­arnir mæta ákveðnum skil­yrðum sem íslensk stjórn­völd settu til að verja greiðslu­jöfnuð þjóð­ar­bús­ins og íslenska hags­muni. Samkvæmt útreikn­ingum Kjarnans, sem sér­fræð­ingar hafa farið yfir, er búist við að þessir samn­ingar geti skilað rík­is­sjóði á bil­inu 300 til 400 millj­örðum króna sem not­aðir verða til að greiða niður skuldir hins opin­bera. Í haust verður síðan ráð­ist í upp­boð á um 300 millj­arða króna aflandskrón­u­snjó­hengju sem mun skila enn fleiri krónum í kass­ann.

Fyrir Ísland mun þessi sátt við kröfu­haf­ana hafa miklar afleið­ingar. Höft verða losuð með þeim afleið­ingum að Íslend­ingar þurfa ekki lengur að taka far­seðil með sér í bank­ann til að kaupa gjald­eyri, geta keypt sér bíl, sum­ar­hús eða hluta­bréf í öðru landi og mega geyma sparnað í öðrum gjald­eyri en íslensku krón­unni, svo fátt eitt sé nefnt. Þá er fast­lega búist við því að losun hafta muni hafa jákvæð áhrif á erlenda fjár­fest­ingu á Íslandi.

Auk þess mun árlegur vaxta­kostn­aður íslenska rík­is­ins, sem í ár er áætl­aður um 77 millj­arðar króna, lækka um allt að þriðj­ung. Þeim pen­ingum getur ríkið eytt í eitt­hvað annað.

En það eru ekki bara Íslend­ingar sem eru glaðir með nið­ur­stöð­una. Það eru kröfu­hafar föllnu bank­anna líka. Raunar er hún mjög í takt við það sem þeir hafa lengi áætlað að þyrfti til svo hægt væri að loka mál­inu og greiða út úr hinum risa­stóru slita­búum Glitnis, Kaup­þings og gamla Lands­bank­ans.

Af hverju var samið núna?


Allt frá árinu 2012, þegar slitabú Gitnis og Kaup­þings sóttu um und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að klára nauða­samn­inga sína, hafa kröfu­hafar þeirra verið til­búnir að semja um lausn á mál­inu. Ýmsir þættir, sem verða betur raktir síðar í þess­ari grein, hafa hins vegar orðið þess vald­andi að það hefur ekki verið mögu­legt fram til þessa.

Undir lok síð­asta árs dró til tíð­inda í ferl­inu þegar sam­þykkt var að lengja í hinu svo­kall­aða Lands­banka­bréfi milli nýja Lands­bank­ans og slita­bús þess gamla. Sam­komu­lagið snérist um leng­ingu á 228 millj­arða króna skuld nýja Lands­bank­ans við búið og fékk slita­búið und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að greiða útistand­andi for­gangs­kröfur í kjöl­farið. Upp­haf­lega átti bréfið að vera greitt fyrir árið 2018. Með leng­ing­unni lag­að­ist áætl­aður gjald­eyr­is­jöfn­uður á næstu árum og við það varð auð­veld­ara að stíga skref í átt að frek­ari losun hafta. Það kom líka fljótt í ljós að nú átti að gefa veru­lega í.

[caption id="attachment_10261" align="alignnone" width="631"] Skrifað var undir nýtt sam­komu­lag milli nýja og gamla Lands­bank­ans í maí 2014. Seðla­bank­inn sam­þykkti í des­em­ber að veita slita­búi Lands­bank­ans und­an­þágu frá fjár­magns­höftum.[/caption]

Skrifað var undir nýtt samkomulag milli nýja og gamla Landsbankans í maí 2014. Seðlabankinn samþykkti í desember að veita slitabúi Landsbankans undanþágu frá fjármagnshöftum.
Skrifað var undir nýtt sam­komu­lag milli nýja og gamla Lands­bank­ans í maí 2014. Seðla­bank­inn sam­þykkti í des­em­ber að veita slita­búi Lands­bank­ans und­an­þágu frá fjár­magns­höftum.

Viðræður milli kröfu­hafa föllnu bank­anna og full­trúa stjórn­valda um mögu­leg skref í átt að upp­gjöri búanna hófust síðan í des­em­ber 2014. Sigurður Hann­es­son og Benedikt Gíslason, vara­for­menn fram­kvæmda­hóps um losun hafta, sem leiddu þær við­ræður, hafa í við­tölum lagt á það áherslu að þetta hafi verið upp­lýs­inga­fundir þar sem ekki hafi verið til umræðu að semja um þau skil­yrði sem stjórn­völd settu fyrir því að hægt yrði að ljúka gerð nauða­samn­inga föllnu bank­anna.

Það er í sjálfu sér rétt í þeim skiln­ingi að skil­yrðin voru ófrá­víkj­an­leg. Samn­ings­nið­ur­staða mátti ekki ógna greiðslu­jöfn­uði og umfang þeirra inn­lendu eigna sem slita­búin þurftu að gefa eftir var því end­an­legt ef sam­komu­lag átti að nást.

Hvernig skil­yrð­unum yrði mætt var hins vegar í höndum kröfu­haf­anna. Þeir lögðu fram til­lögur þess efnis, full­trúar stjórn­valda brugð­ust við og til­lög­urnar vor­u­lag­aðar að þeim við­brögðum. Í við­tali við Kjarnann á fimmtu­dag sagði Lee Buchheit, ráð­gjafi fram­kvæmda­hóps­ins sem var lyk­il­maður í þeirri nið­ur­stöðu sem kynnt var fyrir viku síðan, að hlut­verk fram­kvæmda­hóps­ins í við­ræð­unum við kröfu­haf­ana hafi verið að koma á fram­færi sýn stjórn­valda á vand­ann og hvernig fram­lag kröfu­hafa til lausnar á vand­anum þyrfti að verða. „Það leiddi til þess að kröfu­haf­arnir lögðu fram ýmsar til­lögur um lausn sem fram­kvæmda­hóp­ur­inn bar síðan saman við þá kríteríu sem hann hafði sett sem skil­yrði að yrði að upp­fylla til að hann gæti sam­þykkt til­lögur þeirra. Þeim nið­ur­stöðum var síðan komið aftur til kröfu­haf­anna sem gerðu slikt hið sama og þannig gekk þetta fram og til baka. Á end­anum þá lögðu kröfu­haf­arnir fram til­lögu sem fram­kvæmda­hóp­ur­inn taldi að hann gæti mælt með við stýrinefnd­ina að yrði sam­þykkt.“

Hverjir tóku þátt í viðræðunum?


Fyrir hönd Íslands voru þær í höndum fram­kvæmda­hóps um losun hafta, undir for­mennsku Glenn Kim og vara­for­mann­anna Sigurðar Hann­es­sonar og Bene­dikts Gísla­sonar, og ráð­gjafa þeirra. Þar var, líkt og fyrr segir, hlut­verk Lee Buchheit stórt.

Hópur stærstu kröfu­hafa föllnu bank­anna var val­inn til að taka þátt í þessum við­ræðum. Í lyk­il­hlut­verki var Barry Russell, frá lög­manns­stof­unni Akin Gump. Russell starfar fyrir skulda­bréfa­eig­endur allra bank­anna, og þar af leið­andi alla stærstu kröfu­haf­ana í hópi vog­unar- og fjár­fest­inga­sjóða. Hann hefur verið við­loð­andi slitabú Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans nán­ast frá hruni og þekkir því ferlið betur en lík­ast til flestir aðrir.

Í við­tali við Við­skipta­blaðið í síð­ustu viku sagði Benedikt Gíslason að Russell hafi unnið nauð­syn­legt starf í sam­skiptum fram­kvæmda­hóps og kröfu­hafa. „Þeir voru allir með sama lög­fræði­lega ráð­gjafann. Ég held að sá ráð­gjafi hafi staðið sig vel í að reyna að koma sínum umbjóð­endum í skiln­ing um það að mark­miðin væru ekki til umræðu, en ólíkar leiðir að sama mark­miði gætu gengið [...] Þetta sam­tal var upp­byggi­legt og að mínu mati átti Barry Russell þátt í því að gera það þannig.“

Auk Russell tók Matt Hinds, frá ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Talbot Hughes&McKillop, mik­inn þátt en hann hefur árum saman starfað sem ráð­gjafi slita­stjórnar Glitnis. Sömu sögu er að segja af ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­inu Blackstone, sem vinnur fyrir Kaupþing, og erlenda fjár­mála­ráð­gjafa gamla Lands­bank­ans.

Auk þess voru full­trúar þriggja til fjög­urra stærstu kröfu­hafa hvers banka fyrir sig þátt­tak­endur í við­ræð­unum. Þeirra á meðal er langstærsti kröfu­hafi fall­inna íslenskra fjár­mála­fyr­ir­tækja, Davidson Kempner Capital Mana­gement. Kröfur vog­un­ar­sjóðs­ins eru að mestu í gegnum írska sjóð­inn Burlington Loan Mana­gement. Sá sem hefur séð um mál sjóðs­ins á Íslandi heitir Jeremy Lowe, og hefur oft gengið undir nafn­inu "Herra Ísland" á meðal þeirra sem þurfa að eiga sam­skipti við hann, í ljósi umfangs þeirra krafna sem hann sýslar með. Þá áttu sjóð­irnir Taconic Capital Advisors LP, Silver Point Capital og Solus Alt­ernative Asset Mana­gement full­trúa við borðið.

[caption id="attachment_31307" align="alignnone" width="1024"] Lee Buchheit er bjart­sýnn á að þeir kröfu­hafar sem hafa ekki tekið þátt í við­ræð­unum und­an­farna mán­uði muni spila með og sam­þykkja nauða­samn­ings­til­lögur í haust.[/caption]

Lee Buchheit er bjartsýnn á að þeir kröfuhafar sem hafa ekki tekið þátt í viðræðunum undanfarna mánuði muni spila með og samþykkja nauðasamningstillögur í haust.
Lee Buchheit er bjart­sýnn á að þeir kröfu­hafar sem hafa ekki tekið þátt í við­ræð­unum und­an­farna mán­uði muni spila með og sam­þykkja nauða­samn­ings­til­lögur í haust.

Þegar við­ræður hófust af alvöru í byrjun mars til­kynnti Lee Buchheit full­trúum kröfu­haf­anna að íslensk stjórn­völd hefðu fundið leið sem tryggði hags­muni Íslands og að sú leið væri lög­leg. Hún héti stöð­ug­leika­skattur. Í við­ræð­unum í kjöl­farið hljóp umfang hans á 35 til 39 pró­sentum. Á end­anum varð nið­ur­staðan 39 pró­sent og sú tala var kynnt á fund­inum í Hörpu á mánu­dag fyrir viku.

Í kjöl­farið sagði hann að íslensk stjórn­völd myndu hins vegar einnig vera reiðu­búin að end­ur­skoða lög um nauða­samn­inga til að flýta fyrir ferl­inu, ef ákveðnum skil­yrðum yrði mætt.

Ríkti trúnaður milli aðila?


Þegar þetta lá fyrir voru allir sem að við­ræð­unum komu, en það var fámennur hópur báðum megin, látnir und­ir­rita trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingar. Trún­að­ur­inn var mjög mik­il­vægur, meðal ann­ars vegna þess að kröfur á föllnu bank­anna ganga kaupum og sölum. Þær upp­lýs­ingar sem voru undir í við­ræð­unum voru aug­ljós­lega verð­mynd­andi. Þeir sem tóku þátt í við­ræð­unum skuld­bundu sig einnig til að eiga ekki í neinum við­skiptum með kröfur á búin á meðan að þær stóðu yfir. Einn við­mæl­anda Kjarnans segir að leyndin hafi verið svo mikil að þeir sem tóku þátt „máttu ekki einu sinni segja frá því að sam­töl væru að eiga sér stað.“

Íslands­megin var líka lögð mikil áhersla á trún­að­inn. Ef þeir sér­fræð­ingar, innan og utan stjórn­ar­ráðs­ins, sem komu að vinn­unni brutu gegn inn­herja­reglum sem tóku gildi 1. nóv­em­ber 2014 gátu þeir átt yfir höfði sér fang­els­is­vist.

Ljóst er á sam­tölum við aðila beggja vegna borðs­ins að tölu­verðar áhyggjur voru af því að upp­lýs­ingar um ferlið væru að leka út til fjöl­miðla, og jafn­vel til valdra aðila á fjár­mála­mark­aði sem gætu mögu­lega nýtt sér þær inn­herj­a­upp­lýs­ingar til að hagn­ast. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði til að mynda að trún­að­ar­brestur eftir fund í sam­ráðs­nefnd um losun hafta í des­em­ber, sem í sitja full­trúar allra stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á Alþingi, hefði leitt til þess að upp­lýs­inga­gjöf hafi verið breytt þannig að flæði upp­lýs­inga var tak­markað.

[caption id="attachment_31626" align="alignnone" width="640"] Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði að trún­að­ar­brestur eftir fund í sam­ráðs­nefnd um losun hafta í des­em­ber, sem í sitja full­trúar allra stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á Alþingi, hefði leitt til þess að upp­lýs­inga­gjöf hafi verið breytt þannig að flæði upp­lýs­inga var tak­markað.[/caption]

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði að trúnaðarbrestur eftir fund í samráðsnefnd um losun hafta í desember, sem í sitja fulltrúar allra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi, hefði leitt til þess að upplýsingagjöf hafi verið breytt þannig að flæði upplýsinga var takmarkað.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði að trún­að­ar­brestur eftir fund í sam­ráðs­nefnd um losun hafta í des­em­ber, sem í sitja full­trúar allra stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á Alþingi, hefði leitt til þess að upp­lýs­inga­gjöf hafi verið breytt þannig að flæði upp­lýs­inga var tak­markað.

Þá hefur fram­kvæmda­hópur um losun hafta legið undir ámæli víða, meðal ann­ars á meðal þing­manna og innan fjár­mála­geirans, fyrir að leka upp­lýs­ingum um fram­gang áætl­un­ar­innar og helsta inn­tak hennar, til val­inna fjöl­miðla. Undir þetta hafa full­trúar kröfu­hafa, sem Kjarninn hefur rætt við, tekið. Þeir segja að það hafi blasað við að Íslands­megin hafi allt míg­lekið. Það hafi hins vegar hætt eftir að trún­að­ar­yf­ir­lýs­ing­arnar voru lagðar fram. Sá hópur sem hafi séð um loka­sprett­inn fyrir Íslands hönd hafi ekki lekið neinu. Þ.e. þar til meg­in­at­riði áætl­unar stjórn­valda birt­ust í DV föstu­dag­inn áður en áætl­unin var kynnt í Hörpu.

Í við­tali við Kjarnann í síð­ustu viku sagð­ist Lee Buchheit kann­ast við umræð­una um leka úr starf­inu. „Lekar voru smá­vægi­legt vanda­mál í fyrstu skref­unum eftir að ég kom inn, en ekki alvar­legt vanda­mál. Það voru engir alvar­legir lekar eftir að trún­að­ar­yf­ir­lýs­ing­arnar voru und­ir­rit­aðar snemma á þessu ári. En fyrir þann tíma voru nokkrir lekar.“

Var kylfu og gulrót beitt?


Svo virð­ist sem ekki sé almenni­legur sam­hljómur milli aðila máls­ins hvort samið hafi verið um nið­ur­stöðu. Lee Buchheit segir að samið hafi verið við kröfu­hafa hvernig þeir mættu þeim stöð­ug­leika­skil­yrðum sem Ísland setti. Benedikt Gíslason og Sigurður Hann­es­son, sem voru vara­for­menn hóps­ins sem Buchheit var að vinna fyrir, segja hins vegar í við­tal­inu við Við­skipta­blaðið að þeir hafi ekki staðið í neinum samn­inga­við­ræðum. „Við stóðum ekki í neinum samn­inga­við­ræðum. Ein­hverjir aðrir kunna að hafa haldið á ein­hverjum tíma­punkti að slíkt stæði til boða, en þeim varð mjög fljótt ljóst að sú væri ekki raunin. Þannig að upp­lýs­inga­skiptin sneru af okkar hálfu meira um það að leggja mat á það hvort þeirra hug­myndir og aðferða­fræði féllu að okkar skil­yrðum eða ekki, og að reyna að leiða þá að nið­ur­stöðu sem sam­rým­ist hags­munum Íslands.“

Þarna er hins vegar um ákveðin orð­heng­ils­hátt að ræða. Það liggur fyrir að þau skil­yrði sem stjórn­völd settu slita­bú­unum til að ljúka nauða­samn­ingum voru óum­semj­an­leg, enda voru þau samin til að vernda íslenskan stöð­ug­leika og gjald­eyr­is­jöfnuð. Það var hins vegar nauð­syn­legt að semja um hvernig kröfu­haf­arnir mættu skil­yrð­unum. Þeim til­lögum var síðan kastað fram og til baka og því kasti lauk með að þær lausnir sem lagðar voru fram sunnu­dag­inn 7. júní og mánu­dag­inn 8. júní þóttu upp­fylla skil­yrðin.

[caption id="attachment_31627" align="alignnone" width="640"] Benedikt Gíslason og Sigurður Hann­es­son (á mynd) segja í við­tal­inu við Við­skipta­blaðið að þeir hafi ekki staðið í neinum samn­ings­við­ræðum við kröfu­hafa.[/caption]

Benedikt Gíslason og Sigurður Hannesson (á mynd) segja í viðtalinu við Viðskiptablaðið að þeir hafi ekki staðið í neinum samningsviðræðum við kröfuhafa.
Benedikt Gíslason og Sigurður Hann­es­son (á mynd) segja í við­tal­inu við Við­skipta­blaðið að þeir hafi ekki staðið í neinum samn­ings­við­ræðum við kröfu­hafa.

Yfir vofði auð­vitað álagn­ing stöð­ug­leika­skatts um næstu ára­mót, sem hefði höggvið mun stærra skarð í eignir kröfu­haf­anna en sam­komu­lag um lausn við stjórn­völd. Álagning er loka­úr­ræði sem ágætt var að hafa til að ýta á eftir nið­ur­stöðum, en eng­inn vildi sér­stak­lega beita því ljóst var að kröfu­hafar myndu alltaf láta reyna á lög­mæti hans fyrir dóm­stólum. Það hefði getað tafið losun hafta umtals­vert.

Raunar höfðu kröfu­haf­arnir kallað eftir því að stjórn­völd legðu fram skil­yrði fyrir þá til að mæta allt frá því að þeir ósk­uðu eftir und­an­þágum frá höftum til að ljúka nauða­samn­ingum haustið 2012. Síðan þá hafa þeir sent inn nokkur til­boð sem oft­ast var ekki svarað. Það hafði því aldrei verið dregin nein lína í sand­inn.

Hvað segja kröfuhafarnir?


Þegar línan var loks dregin þá var hún mjög í takt við það sem kröfu­haf­arnir bjugg­ust við. Þeir höfðu sjálfir greint greiðslu­jöfnuð Íslands og mögu­leika sína til að taka út íslenskar eignir í gegnum gjald­eyr­is­markað strax á árinu 2012. Frá þeim tíma hafa flestir lyk­il­menn í kröfu­hafa­hópnum gert sér grein fyrir að það yrði alltaf mjög erfitt að koma íslensku eign­unum út. Þær yrði að gefa eftir, að minnsta kosti að stóru leyti.

Miðað við þessa sýn þeirra hefði verið hægt að klára nauða­samn­ing fyrir nokkrum árum síðan. Það hafi hins vegar verið ljóst að íslensk stjórn­völd hafi ekki verið til­búin með sínar grein­ingar á stöð­unni þá. Á fyrri hluta þessa kjör­tíma­bils hafi einnig vantað traust á milli lyk­il­stofn­anna, nefni­lega fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins og Seðla­banka Íslands. Van­traust for­ystu­manna á Má Guð­munds­son hafi end­ur­spegl­ast í ummælum þeirra á opin­berum vett­vangi, í gagn­rýni banka­ráðs­manna Fram­sóknar- og Sjálf­stæð­is­flokks á störf hans og óviss­unni sem skap­að­ist sum­arið 2013 um hvort Már yrði end­ur­skip­aður í emb­ætti seðla­banka­stjóra. Við­mæl­endur Kjarnans segja að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, eigi stóran hlut í því að þessu van­trausti var eytt og nægi­leg sam­staða skap­að­ist til að fara af fullri alvöru í hafta­losun.

[caption id="attachment_31624" align="alignnone" width="640"] Van­traust for­ystu­manna á Má Guð­munds­son hafi end­ur­spegl­ast í ummælum þeirra á opin­berum vett­vangi, í gagn­rýni banka­ráðs­manna Fram­sóknar- og Sjálf­stæð­is­flokks á störf hans og óviss­unni sem skap­að­ist sum­arið 2013 um hvort Már yrði end­ur­skip­aður í emb­ætti seðla­banka­stjóra.[/caption]

Hvaða leið var farin?


Í ein­földu máli var því samið um að kröfu­hafar mættu ákveðnum skil­yrðum sem stjórn­völd settu þeim. Þeir munu gefa eftir nokkur hund­ruð millj­arða króna af inn­lendum eignum sínum og fá erlendu eign­irnar í stað­inn. Tillögum þess efnis var skilað inn til fram­kvæmda­hóps um losun hafta sunnu­dag­inn 7. júní og mánu­dag­inn 8. júní, rétt áður en blaða­manna­fundur um hafta­á­ætl­un­ina var haldin í Hörpu. Fram­kvæmda­hóp­ur­inn og stýrinefnd sem situr yfir honum (í henni eru Már Guð­munds­son seðla­bank­stjóri, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og full­trúar for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins) hafa sam­þykkt að til­lög­urnar upp­fylli stöð­ug­leika­skil­yrðin og munu mæla með því að und­an­þága fáist frá höftum á grund­velli þeirra.

Vantraust forystumanna á Má Guðmundsson hafi endurspeglast í ummælum þeirra á opinberum vettvangi, í gagnrýni bankaráðsmanna Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks á störf hans og óvissunni sem skapaðist sumarið 2013 um hvort Már yrði endurskipaður í embætti seðlabankastjóra.
Van­traust for­ystu­manna á Má Guð­munds­son hafi end­ur­spegl­ast í ummælum þeirra á opin­berum vett­vangi, í gagn­rýni banka­ráðs­manna Fram­sóknar- og Sjálf­stæð­is­flokks á störf hans og óviss­unni sem skap­að­ist sum­arið 2013 um hvort Már yrði end­ur­skip­aður í emb­ætti seðla­banka­stjóra.

Því vakti það tölu­verða furðu margra, í ljósi þess að sam­komu­lag við öll þrjú stóru slita­búin lá fyrir, að öll kynn­ingin í Hörpu fór í að útskýra stöð­ug­leika­skatt, sem að öllum lík­indum verður aldrei lagður á. Engin kynn­ing hefur verið haldin á inni­haldi þeirra sam­komu­laga sem gerð hafa verið til að hjálpa almenn­ingi við að skilja þau. Raunar var enskri útgáfu af þeim bara hent inn á enska hluta vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins nokkrum klukku­tímum eftir að kynn­ing­unni í Hörpu lauk. Lélegri þýð­ingu á sam­an­tekt til­lagn­anna var síðan bætt við dag­inn eftir.

[caption id="attachment_31384" align="alignnone" width="1045"] Það vakti tölu­verða furðu margra, í ljósi þess að sam­komu­lag við öll þrjú stóru slita­búin lá fyrir, að öll kynn­ingin í Hörpu fór í að útskýra stöð­ug­leika­skatt, sem að öllum lík­indum verður aldrei lagður á.[/caption]

Það vakti töluverða furðu margra, í ljósi þess að samkomulag við öll þrjú stóru slitabúin lá fyrir, að öll kynningin í Hörpu fór í að útskýra stöðugleikaskatt, sem að öllum líkindum verður aldrei lagður á.
Það vakti tölu­verða furðu margra, í ljósi þess að sam­komu­lag við öll þrjú stóru slita­búin lá fyrir, að öll kynn­ingin í Hörpu fór í að útskýra stöð­ug­leika­skatt, sem að öllum lík­indum verður aldrei lagður á.

Það er vert að taka það fram að þótt stærstu kröfu­hafar Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans hafi allir skilað til­lögum sem stýrinefnd um losun hafta hefur sam­þykkt að upp­fylli stöð­ug­leika­skil­yrðin sem þarf til að klára nauð­samn­inga slita­búa föllnu bank­anna er enn eftir tölu­verð vinna við að klára málið. Slita­stjórn­irnar þurfa að leggja til­lög­urnar fyrir kröfu­hafa­fund og þar þarf auk­inn meiri­hluti allra kröfu­hafa að sam­þykkja þær svo nauða­samn­ing­arnir klárist.

Hver „á“ leiðina?


Það er tölu­vert sleg­ist um eign­ar­rétt­inn á þeirri lausn sem varð ofan á í hafta­los­un­ar­ferl­inu. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn leggur eðli­lega mikla áherslu á að hann eigi mesta heið­ur­inn að þessu. Hann hafi bjargað þjóð­inni frá Icesave, bjargað heim­il­unum með stóru skulda­nið­ur­fell­ing­unni og sé nú að berja hrægamma­sjóð­ina til að gefa eftir stór­kost­legar fjár­hæðir. Skila­boðin eru ein­föld: Framsókn stendur við það sem flokk­ur­inn segir.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Bjarni Bene­dikts­son virð­ast hóg­vær­ari í því að berja sér á brjóst vegna hinnar góðu nið­ur­stöðu í mál­inu, þótt Bjarni hafi leikið lyk­il­hlut­verk í að ná henni.

[quote font="0" align="right"]For­svars­menn fyrri rík­is­stjórnar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna reynir af veikum mætti að segja að þetta sé nið­ur­staðan sem alltaf hafi verið unnið að í hennar tíð, samn­ingar við kröfu­hafa.[/quote]

For­svars­menn fyrri rík­is­stjórnar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna reyna af veikum mætti að segja að þetta sé nið­ur­staðan sem alltaf hafi verið unnið að í þeirra tíð, samn­ingar við kröfu­hafa. Sú leið sem unnið var að í stýrinefnd um afnám gjald­eyr­is­hafta, sem leidd var af Katrínu Júl­í­us­dóttur þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, á fyrstu mán­uðum árs­ins 2013 var að ríkið myndi kaupa bank­anna báða til baka á því sem er ekki hægt að kalla annað en sví­virði­lega lágu verði.

Með því er átt við að greitt yrði 20-30 pró­sent af bók­færðu innra virði bank­anna fyrir þá. Heilla­væn­leg­ast var talið að fá líf­eyr­is­sjóði lands­ins með í þetta sam­komu­lag, þeir myndu kaupa hluta af bönk­unum á móti rík­inu gegn því að þeir flyttu hluta af erlendum eignum sínum heim til að greiða fyrir þann hluta. Í kjöl­farið var hug­myndin sú að gera upp­gjörs­samn­ing milli rík­is­ins og líf­eyr­is­sjóð­anna og skipta á milli þeirra ágóð­anum. Aðrar krónu­eignir Glitnis og Kaup­þings áttu síðan að kaup­ast upp af rík­inu eftir samn­inga sem áttu að tryggja tug­pró­senta afslátt af þeim. Þeim ávinn­ingi ætl­aði ríkið ekki að deila með líf­eyr­is­sjóðum eða neinum öðrum. Ljóst er hins vegar að allt of seint var farið af stað til að raun­hæft væri að ljúka mál­inu fyrir kosn­ingum. Rík­is­stjórn­ina skorti ein­fald­lega póli­tískt umboð, og styrk­leika, til að klára mál af þess­ari stærð­argráðu á þeim fáu mán­uðum sem voru til kosn­inga. Þegar vinstri stjórnin fór frá í maí 2013 var þessi leið þó enn sú sem þótti æski­leg­ast að fara.

Innan Seðla­bank­ans vilja menn síðan meina að í grunn­inn sé lausnin sem nú hefur verið samið um byggð á áætlun hans um losun hafta frá árinu 2011, og sér­stak­lega upp­færðri áætlun frá árinu 2013 sem fékk hið skemmti­lega nafn „Project Bingó“.

Góður "díll" fyrir kröfuhafa


Miðað við ork­una sem er sett í að selja þá hug­mynd að kröfu­hafar hafi verið kné­settir af hörku íslenskra stjórn­mála­manna mætti ætla að í hópi þeirra væru mikil von­brigði ríkj­andi. Það er þó alls ekki þannig.

Bloomberg sagði í síð­ustu viku frá því að grein­endur telji sam­komu­lagið sem kröfu­hafar hafi gert við íslensk stjórn­völd vera gott. Þar var haft eftir Anthony Liu, grein­anda hjá Exotix Partners LLP, miðl­ara­fyr­ir­tæki í London, að það hafi komið honum á óvart að sam­komu­lagið hafi ekki verið ósann­gjarn­ara.

Verð á skulda­bréfum á föllnu íslensku bank­anna er einnig talið lík­legt til að hækka í kjöl­far aðgerða við losun hafta sem rík­is­stjórnin kynnti á mánu­dag þar sem kröfu­höfum var boðið að semja í stað þess að lagður væri á þá stöð­ug­leika­skattur. Þau urðu því verð­mæt­ari eftir sam­komu­lagið en þau voru fyrir.

Í frétt Bloomberg sagði að greiðslur kröfu­hafa sem byggja á þeim sam­komu­lögum sem náðst hafa um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda geti kostað slita­búin allt niður í 2,75 millj­arða dala, um 365 millj­arða króna, í sam­an­burði við þá 5,1 millj­arði dala, um 676 millj­arða króna, sem þeir hefðu þurft að greiða ef stöð­ug­leika­skatt­ur­inn hefði verið lagður á.

Liu sagði að slitabú Glitnis, sem borgar mest allra slita­búa til rík­is­ins miðað við fyr­ir­liggj­andi sam­komu­lög, sé að fá „besta díl­inn“. Væntar end­ur­heimtur í bú bank­ans hafa vana­lega verið um 30 pró­sent af nafn­virði en Liu telur að þær muni nú hækka í um 35 pró­sent.

Hafa lengi vitað hver mörkin voru


Kröfu­haf­arnir vissu flestir fyrir nokkuð löngu síðan að nákvæm­lega sú staða sem var uppi á síð­asta ári og fyrri hluta þessa árs myndi verða. Í grein­ingu frá ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Birwood Limited, sem var gefin út í apríl 2013, er meðal ann­ars fjallað sér­stak­lega um mögu­lega áhrif síð­ustu alþing­is­kosn­inga á upp­gjör slita­bú­anna. Sú grein­ing er mjög nálægt þeirri lausn sem kynnt var með við­höfn í Hörpu á mánu­dag.

Þar segir að þorri íslenskra stjórn­mála­flokka hafi tekið hóf­sama eða rót­tæka and-kröfu­hafa­stöðu í aðdrag­anda þeirra. Fyrir hafi legið að upp­gjör þrota­búa bank­anna yrði samn­ings­at­riði að kosn­ingum loknum. Samkvæmt grein­ing­unni voru allar líkur á því að Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur mynd­uðu rík­is­stjórn að loknum kosn­ingum, sem varð raunin, og því miðar grein­ingin við að helstu stefnu­mál þeirra verði ráð­andi.

Þar stendur orð­rétt: „leið­togar beggja flokka hafa skrifað og talað um plan til að fjár­magna áform rík­is­stjórnar við að leysa mál sem tengj­ast auk­inni skuld­setn­ingu almenn­ings með því að minnka krónu­eignir gömlu bank­anna hlut­falls­lega og hafa gefið í skyn að blönduð aðferð af „kylfum og gul­rótum“ sé nauð­syn­leg þegar samið er við kröfu­hafa gömlu bank­anna. [...] Sú aðferð sem lík­leg­ast verður notuð af íslenskum stjórn­völdum mun fela í sér að gömlu bank­arnir gefi eftir hluta af eignum sínum í íslenskum krónum. Í stað­inn munu gömlu bank­arnir fá und­an­þágu frá fjár­magns­höft­unum fyrir erlendar eignir og mögu­lega þær krónu­eignir sem verða eftir. Slík áætlun mun draga úr end­ur­heimtum kröfu­hafa en gæti verið eina leiðin fyrir slita­stjórn til að klára nauða­samn­ings­gerð og í kjöl­farið greiða út innan skyn­sam­legs tímara­mma. Að okkar mati verður í fyrsta lagi hægt að ná þeim nauða­samn­ingi um sum­arið 2014.

Upp­hæð­irnar sem hafa verið nefndar í þessu sam­hengi eru á milli 300-400 millj­arðar króna".

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár