Félög Björns Inga komin með 71 prósent hlut í útgáfufélagi DV

Sigurður G. Guð­jóns­son og Þor­steinn Guðnason eru ekki lengur skráðir eig­endur í útgáfu­fé­lagi DV. Sá hlutur sem áður var skráður á þá er nú í eigu félags Björns Inga Hrafns­sonar. Við­ur­lögum vegna rangra upp­lýs­inga um eig­endur hefur aldrei verið beitt.

Björn Ingi Hrafnsson.
Björn Ingi Hrafns­son. Mynd: Skjáskot

Félag í eigu Björns Inga Hrafns­sonar hefur tekið yfir eign­ar­hluti Sigurðar G. Guð­jóns­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns og félags­ins Tryggva Geirs ehf., í eigu Þor­steins Guðna­sonar, í Press­unni ehf., aðal­eig­anda DV og fleiri miðla. Félagið, sem heitir Kringu­eignir ehf., er nú skráð fyrir 31,85 pró­sent hlut í Press­unni. Önnur félög sem eru í eigu Björns Inga og Arnars Ægis­sonar, fram­kvæmda­stjóra Pressunnar, eiga 39,15 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu. Því eiga félög í eigu Björns Inga nú 71 pró­sent hlut í Press­unni, sem á 84,23 pró­sent hlut í DV.

Breyt­ing­arnar voru skráðar á heima­síðu Fjöl­miðla­nefndar um helg­ina.

Sagðist ekki eiga hlut sem hann var skráður fyrir

Áður en að breyt­ing­arnar voru til­kynntar voru Sigurður og félag Þor­steins skráð fyrir sam­tals 28 pró­sent hlut í Press­unni. Auk þess var ekki gerð grein fyrir eig­endum að 3,85 pró­sent hlut. Þær eig­enda­upp­lýs­ingar voru, sam­kvæmt heima­síðu Fjöl­miðla­nefndar, upp­færðar 12. jan­úar 2016.

Sigurður sagði í Facebook-sam­tali þann 8. maí að hann ætti alls ekki þennan hlut sem hann hefði verið skráður fyrir. Óskað hefði verið eftir aðstoð hans við að inn­heimta skuld sem Reynir Trausta­son, fyrrum aðal­eig­andi og rit­stjóri DV, og félög á hans vegum hefðu stofnað til við aðila og sett hluta­bréf sín að veði. „Það tókst og ég afhenti umbjóð­anda mínum hlut­ina. Hvað hann gerð­i við þá eftir það hef ég bara ekki hug­mynd,“ sagði Sigurður.

Í lögum um fjöl­miðla frá árinu 2011 er m.a ákvæði þar sem segir að „skylt er að veita Fjöl­miðla­nefnd öll gögn og upp­lýs­ingar svo að rekja megi eign­ar­hald og/eða yfir­ráð til ein­stak­linga, almennra félaga, opin­berra aðila og/eða þeirra ­sem veita þjón­ustu fyrir opin­bera aðila og getur Fjöl­miðla­nefnd hvenær sem er kra­f­ist þess að fram­an­greindar upp­lýs­ingar skuli veitt­ar.“

Í 22. grein lag­anna er fjallað um til­kynn­ing­ar­skyldu um eig­enda­skipt­i að fjöl­miðla­veitu. Þar seg­ir: „Við sölu á hlut í fjöl­miðla­veitu bera selj­and­i og kaup­andi ábyrgð á því að til­kynn­ing um söl­una sé send Fjöl­miðla­nefnd. Til­kynn­ing um söl­una skal hafa borist Fjöl­miðla­nefnd innan tveggja virkra daga frá gerð kaup­samn­ings“. Í lög­unum segir einnig að Fjöl­miðla­nefnd skuli leggja ­stjórn­valds­sekt á bæði selj­anda og kaup­anda komi í ljós að þeir hafi van­rækt að til­kynna um eig­enda­skipti á hlut í fjöl­miðli.

Fjölmiðlanefnd hefur ekki beitt viðurlögum við lögbrotum

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Fjöl­miðla­nefndar um hvort að yfir­lýs­ingar Sigurðar og sú staða hann væri enn skráður eig­andi að hlut í Press­unni sem hann kann­að­ist sjálfur ekki við að eiga, stæð­ist ofan­greind ákvæði lag­anna.

Heiðdís Lilja Magn­ús­dóttir, starfs­maður Fjöl­miðla­nefndar, segir að nefndin hafi óskað skýr­inga á þessu hjá Birni Inga, fyr­ir­svars­manna útgáfu­fé­lags­ins Pressunnar, bréfleiðis þann 9. maí og að sú beiðni hafi verið ítrekuð sím­leiðis skömmu síðar. Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á eign­ar­haldi hafi síðan borist að morgni 20. maí og var heima­síða nefnd­ar­innar upp­færð eftir hádegi sama dag. Hún segir að frum­kvæð­is­skylda til að til­kynna um breyt­ingar á eign­ar­haldi hvíli á fjöl­miðl­unum sjálfum. „Við sölu á hlut í fjöl­miðla­veitu bera selj­andi og kaup­andi ábyrgð á því að til­kynn­ing um söl­una sé send Fjöl­miðla­nefnd og skal hún hafa borist nefnd­inni innan tveggja virkra daga frá gerð kaup­samn­ings.“

Aðspurð hvort það hafi engar afleið­ingar ef breyt­ingar á eign­ar­haldi eru til­kynntar utan þess tveggja daga ramma sem lögin heim­ila til að veita nefnd­inni réttar upp­lýs­ingar segir Heiðdís Lilja að Fjöl­miðla­nefnd hafi til þessa ekki beitt stjórn­valds­sektum. Hún geti ekki sagt til um það hversu mikið þyrfti til að koma svo þeirri heim­ild yrði beitt. „Þá yrði jafnt yfir alla að ganga en gild­is­svið laga um fjöl­miðla tekur jafnt til smárra ein­yrkja úti á landi sem stærri fjöl­miðla.“ Heiðdís Lilja gerði ráð fyrir að málið yrði rætt á næsta fundi Fjöl­miðla­nefndar.

Kröfum var breytt í hlutafé

Haustið 2014 áttu sér stað mikil átök um yfir­ráð yfir DV. ­Feðgarnir Reynir Trausta­son og Jón Trausti Reyn­is­son, ásamt sam­starfs­mönn­um sín­um, höfðu þá átt og stýrt DV um nokk­urt skeið en fengið fjár­hags­lega ­fyr­ir­greiðslu víða til að standa undir þeim rekstri, meðal ann­ars hjá Gísla Guð­munds­syni, fyrrum eig­anda B&L. Þeim kröfum var síðan breytt í hluta­fé ­sem dugði til að taka yfir DV. Í átök­unum kom maður að nafni Þor­steinn Guðna­son fram fyrir hönd þeirra krafna.

DV var skömmu síðar selt til hóps undir for­yst­u ­Björns Inga Hrafns­son­ar. Kaupin voru gerð í nafni félags sem heitir Pressan ehf. Kaup­verðið hefur ekki verið gert opin­bert en Kjarninn greindi frá því fyrr á þessu ári að skuldir félags­ins hefðu hækkað umtals­vert á árinu 2014. Lang­tíma­skuldir sem voru engar í árs­lok 2013 voru orðnar 148 millj­ónir króna í lok árs 2014. Auk þess tvö­föld­uð­ust skamm­tíma­skuldir Pressunnar og voru orðn­ar 124 millj­ónir króna í lok árs. Því skuld­aði félagið sam­tals 272 millj­ónir króna í lok árs 2014, sem er fjórum sinnum meira en þær 68 millj­ónir króna sem félagið skuld­aði í lok árs árið áður.

Engar opin­berar upp­lýs­ingar eru til um hvaðan umrædd lán komu að öðru leyti en það að Björn Ingi Hrafns­son hefur upp­lýst um að hluti af ­kaup­verð­inu á DV hafi verið greitt með selj­enda­láni frá þeim sem breyttu kröf­um sínum í hlutafé í miðl­inum þegar hann var tek­inn yfir haustið 2014.

Fannst kaup í Pressunni „spennandi tækifæri“

Skömmu eftir að yfir­takan á DV gekk í gegn var greint frá nokkrum nýjum hlut­höfum. Þann 29. des­em­ber 2014 var til að mynda birt frétt á vef­miðl­inum Press­unni. Þar var greint frá því að Sigurður G. Guð­jóns­son hæsta­rétt­ar­lög­maður hefði „keypt nýtt hlutafé í Press­unni sem var gefið út af til­efni af kaupum félags­ins á stærstum hluta hluta­fjár í DV. Eftir kaupin á Sigurður G. um tíu pró­sent hlut í Press­unni“. Í frétt­inni var eft­ir­far­andi haft eftir Sigurði: „Mér fannst þetta spenn­andi tæki­færi og ákvað að vera með[... ]Ég þekki fjöl­miðla­rekstur á Íslandi mjög vel, var einn stofn­enda Blaðsins á sínum tíma og tel tæki­færi fel­ast í því að setja saman mis­mun­andi fjöl­miðla, nýta mögu­leika í sam­legð og halda um leið sér­kennum hvers um sig“.

Sú yfir­lýs­ing Sigurðar um aðkomu sína að rekstri fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Pressunnar er af öðrum toga en sú skýr­ing sem hann gaf fyrir því að vera skráður fyrir tíu pró­sent hlut í félag­inu 8. maí síð­ast­lið­inn. Þá sagði hann, líkt og áður segir, að hann hefði ekki átt við­kom­andi eign­ar­hlut heldur hafi verið „óskað eftir aðstoð minni við að inn­heimta skuld sem Reyn­ir ­Trausta­son og félög á hans vegum höfðu stofnað til við aðila og sett hluta­bréf sín að veði. Það tókst og ég afhenti umbjóð­anda mínum hlut­ina. Hvað hann gerð­i við þá eftir það hef ég bara ekki hug­mynd."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár