Samherji reynir að komast undan því að taka yfir Eimskip

Samherji ber fyrir sig sér­stakar ástæður vegna COVID-19 og vill fá að losna undan því að gera yfir­tökutil­boð í Eimskip.

Björgólfur Jóhannsson og Þorsteinn Már Baldvinsson.
Björgólfur Jóhanns­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son. Mynd: Samherji

Samherji Holding ehf., annar hluti Samherja-sam­stæð­unnar, hefur sent fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands erindi þar sem félagið óskar eftir und­an­þágu frá yfir­töku­skyldu sem mynd­að­ist eftir að félagið eign­að­ist yfir 30 pró­sent eign­ar­hlut í Eimskip þann 10. mars síð­ast­lið­inn.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands í dag segir að með bréfi til fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands í dag hafi Samherji Holding óskað eftir „und­an­þágu frá yfir­töku­skyld­unni vegna þeirra sér­stöku aðstæðna sem hefðu skap­ast á fjár­mála­mark­aði vegna útbreiðslu Covid-19. Í lögum um verð­bréfa­við­skipti er fjár­mála­eft­ir­lit­inu veitt heim­ild til að veita slíka und­an­þágu ef sér­stakar ástæður mæla með því.“

[adspot]Í beiðni Samherja Holding kemur fram að uppi séu for­dæma­lausar aðstæður vegna þeirrar óvissu sem Covid-19 hafi skapað í efna­hags­um­hverfi Íslands.

Björgólfur Jóhanns­son, starf­andi for­stjóri Samherja Holding, segir að á örfáum dögum hafi allt efna­hags­um­hverfið breyst stór­lega, langt umfram það sem spár gerðu ráð fyrir. „Áhrifin eru afar víð­tæk og keðju­verk­andi á fjár­mála­mark­aði og á efna­hags­lífið í heild sinni. Við teljum ekki skyn­sam­legt að til­boð um yfir­töku fari fram í skugga þess mikla umróts sem nú á sér stað. Við vonum öll að aðstæður verði heppi­legri fyrr en síðar. Trú okkar á fram­tíð Eimskips hefur ekk­ert breyst.“

Málið er nú til skoð­unar hjá fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands, sem getur sett skil­yrði fyrir und­an­þág­unni, t.d. varð­andi frest til að selja hluti sem eru umfram 30 pró­sent eign­ar­hlut og með­ferð atkvæð­is­réttar á því tíma­bili.

Virði bréfa í Eimskip hefur fallið um tæp 12 pró­sent síð­ast­lið­inn mánuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár