Fólki af erlendum uppruna fjölgar mikið á Akureyri

Fólki með erlent rík­is­fang á Akureyri fjölg­aði um 23 pró­sent frá þriðja árs­fjórð­ungi 2016 til þriðja árs­fjórð­ungs 2017 eða úr 600 í 740 manns.

Akureyri
Akureyri Mynd: Birgir Þór Harðarson

Miklar og örar breyt­ingar hafa átt sér stað á upp­runa íbúa Norð­ur­lands eystra. Á und­an­förnum miss­erum hafa færri erlendir rík­is­borg­arar verið búsettir á Akureyri en að jafn­aði á land­inu öllu eða ein­ungis 3,4 pró­sent íbúa miðað við 1. jan­úar árið 2017.

Mikil breyt­ing hefur orðið á því en í lok þriðja árs­fjórð­ungs árs­ins 2017 voru 4 pró­sent íbúa af erlendu bergi brotnir. Fólki með erlent rík­is­fang fjölg­aði um 23 pró­sent frá þriðja árs­fjórð­ungi 2016 til þriðja árs­fjórð­ungs 2017 eða úr 600 í 740 manns.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var á vegum Íslands­banka.

Í skýrsl­unni kemur fram að Akur­eyr­ar­bær hafi tekið við 23 flótta­mönnum frá Sýrlandi í jan­úar 2016 og því skýrist fjölg­unin ein­ungis að hluta vegna þess verk­efnis.

„Á Húsavík, nánar til­tekið í Norð­ur­þingi, var hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara hins vegar mun hærra í árs­byrjun 2017 eða 15,5 pró­sent íbúa sem er umfram lands­með­al­tal sem var 9,8 pró­sent í árs­byrjun 2017. Spreng­ing hefur orðið í íbúa­fjölda Húsa­víkur á þessu ári. Fólki með erlent rík­is­fang fjölg­aði um 82,5 pró­sent frá þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2016 til þriðja árs­fjórð­ungs 2017, eða úr 400 í 730 manns sem end­ur­speglar þær fram­kvæmdir sem hafa átt sér stað á Bakka.

Athygli vekur að á sama tíma fækkar fólki í sveit­ar­fé­lag­inu með íslenskt rík­is­fang eða um rúm­lega einn af hundraði, það er að segja um 30 manns. Ólíklegt er að allir þeir erlendu íbúar sem nú eru skráðir til heim­ilis í Norð­ur­þingi muni búa þar til fram­búðar,“ segir í skýrsl­unni.

Fjórir af hverjum tíu nýjum útlendingum setjast að í Reykjavík

Kjarninn hefur fjallað um fjöldun fólks af erlendum upp­runa á Íslandi en í frétt síðan í nóv­em­ber síð­ast­liðnum kemur fram að fjórir af hverjum tíu erlendum rík­is­borg­urum sem sest hafa að á Íslandi það sem af var árinu 2017 hafi gert það í Reykja­vík. Alls hafi erlendum rík­is­borg­urum sem búa í höf­uð­borg­inni fjölgað um 5.580 á tæpum fimm árum. Á síð­asta ári einu saman fjölg­aði þeim um 2.460. Því hafi tæp­lega helm­ingur þeirrar fjölg­unar sem orðið hefur á erlendum íbúum Reykja­víkur átt sér stað á síð­asta ári.

Önnur svæði eru einnig vin­sæl á meðal nýrra íbúa lands­ins sem fæðst hafa í öðrum löndum. Þannig stefnir í að hlut­fall erlendra íbúa í Reykja­nesbæ verði um eða yfir 30 pró­sent á allra næstu árum.

Svo eru það sveit­ar­fé­lögin þar sem útlend­ing­arnir eru sjald­séðir. Af stórum þétt­býl­is­kjörnum lands­ins sker Garðabær sig úr. Þar eru ein­ungis fjórir af hverjum hund­rað íbúum erlendir rík­is­borg­arar.

Fjölgað um 60 prósent á fimm árum

[links]Erlendum rík­is­borg­urum hefur fjölgað gíf­ur­lega á Íslandi á und­an­förnum árum. Sú aukn­ing hefur verið sér­stak­lega mikil í ár. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2017 jókst fjöldi þeirra um 6.310. Það er aukn­ing á fjölda erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi um 21 pró­sent frá því sem var um þar­síð­ustu ára­mót. Frá 2010 til sept­em­ber­loka 2017 hafði erlendum rík­is­borg­urum fjölgað um 9.318 í 36.585, eða um 74 pró­sent.

Þessi hópur nýrra íbúa lands­ins dreif­ist ekki jafnt milli sveit­ar­fé­laga á land­inu. Lang­flestir setj­ast að í höf­uð­borg­inni Reykja­vík. Í lok árs 2012 bjuggu 9.380 erlendir rík­is­borg­arar í Reykja­vík. Í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins voru þeir orðnir 14.960 tals­ins. Þeim hefur því fjölgað um 60 pró­sent á innan við fimm árum. Langmest hefur aukn­ingin verið þeim tíma sem liðin er af árinu 2017, en erlendum rík­is­borg­urum sem búa í Reykja­vík hefur fjölgað um 2.460 á þeim tíma. Það þýðir að fjórir af hverjum tíu útlend­ingum sem flytja til lands­ins það sem af er ári búa í höf­uð­borg­inni.

Raunar er líka umtals­verður munur milli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins ann­ars vegar og lands­byggð­ar­innar hins vegar þegar kemur að fjölgun útlend­inga. Fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem búa á lands­byggð­inni er nú 14.410 og hefur tvö­fald­ast frá því í byrjun árs 2011. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru útlend­ing­arnir nú 22.290 tals­ins og hefur fjölgað um 60 pró­sent á tæp­lega sjö árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár