Um þrjátíu prósent virkra smita nú á norðanverðum Vestfjörðum

Þrjú ný COVID-19 smit greindust á land­inu í gær, öll á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala, þar sem yfir tvö­hund­ruð sýni voru rann­sökuð. Enginn af þeim 449 ein­stak­lingum sem Íslensk erfða­grein­ing skimaði reynd­ist smit­aður.

Þrjú ný COVID-19 smit greindust á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala í gær, en ekk­ert hjá Íslenskri erfða­grein­ingu. Þetta kemur fram á vefnum covid.is. Alls voru 229 sýni tekin til grein­ingar á sýkla- og veiru­fræði­deild­inni og 449 hjá Íslenskri erfða­grein­ingu.

Smitin eru því í heild­ina orðin 1.795 tals­ins, en virk smit eru nú 149 tals­ins á land­inu öllu. Ellefu manns eru á sjúkra­húsi og einn þeirra er á gjör­gæslu, en þær fregnir bár­ust frá Land­spít­ala í gær að þar er eng­inn sjúk­lingur lengur í önd­un­ar­vél. 784 ein­stak­lingar eru í sótt­kví þessa stund­ina.

Lög­reglan á Vest­fjörðum hafði greint frá því fyrr í dag að tvö ný smit hefðu greinst í Bol­ung­ar­vík í gær, bæði í þekktum smit­hópum, þannig að þeir smit­uðu voru þegar í sótt­kví.

Um þrjá­tíu pró­sent virkra smita á land­inu eru nú á norð­an­verðum Vest­fjörðum. Þar, eða nánar til tekið í Ísa­fjarð­arbæ, Súðavík og Bol­ung­ar­vík, munu sótt­varna­ráð­staf­anir áfram verða harð­ari en ann­ars staðar á land­inu eftir 4. maí.

Það felur í sér að sam­komu­bannið verður miðað við tutt­ugu manns í stað fimm nú og það mun einnig gilda fyrir börn í leik- og grunn­skólum og í íþrótta- og æsku­lýðs­starfi. Starf­semi sem krefst snert­ingar eða mik­illar nálægðar milli fólks verður einnig áfram óheimil.

Gylfi Ólafsson, for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða, sagði í hádeg­is­fréttum RÚV að far­ald­ur­inn á norð­an­verðum Vest­fjörðum væri ein­fald­lega einni til tveimur vikum á eftir far­aldr­inum í land­inu almennt, en stefnt væri að því að kom­ast á lands­lín­una hvað varðar aflétt­ingar sam­komu­banns þann 11. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár