Franskur verkfræðirisi leiðir hönnunarteymi Borgarlínu

Alþjóð­lega verk­fræði­fyr­ir­tækið Artelia Group og danskir og íslenskir sam­starfs­að­ilar þess urðu hlut­skörpust í hönn­unar­út­boði fyrir fyrstu lotu Borg­ar­línu.

Hönnunarteymið fær það verkefni að taka við þeim tillögum sem koma fram í frumdragaskýrslu Borgarlínu og útfæra verkefnið nánar fram að framkvæmdum, í samstarfi við Vegagerðina.
Hönn­un­arteymið fær það verk­efni að taka við þeim til­lögum sem koma fram í frum­draga­skýrslu Borg­ar­línu og útfæra verk­efnið nánar fram að fram­kvæmdum, í sam­starfi við Vega­gerð­ina. Mynd: Borgarlínan

Franska verk­fræði­fyr­ir­tækið Artelia Group mun leiða hönn­un­arteymi fyrstu lotu Borg­ar­lín­unnar í sam­starfi við dönsku verk­fræði­stof­una MOE, íslensku verk­fræði­stof­una Hnit, dönsku arki­tekta­stof­una Gottlieb Paludan og hina íslensku Yrki arki­tekta. Nið­ur­stöður hönn­unar­út­boðs Borg­ar­lín­unnar voru kynntar í gær.

Ráðist var í útboðið á Evrópska efna­hags­svæð­inu 7. maí í fyrra og til­boð opnuð þann 8. júní, en alls bár­ust til­boð frá átta teymum. Sjá má útboðs­skil­málana í stjórn­ar­tíð­indum Evr­ópu­sam­bands­ins.

Þrjú teymi komust áfram á næsta stig útboðs­ferl­is­ins, en auk teym­is­ins sem varð á end­anum hlut­skarp­ast var um að ræða teymi sem íslenska verk­fræði­stofan Efla leiddi í sam­starfi við danska og breska aðila og teymi sem sænska verk­fræði­stofan Sweco leiddi, en í því voru íslensku fyr­ir­tækin Verkís og Gláma Kím arki­tekar.

Hæfni vóg þyngra en verð

Þessi þrjú teymi fóru í samn­inga­við­ræður og skil­uðu svo aftur til­boðum í haust. Að end­ingu varð teymið sem Artelia Group leiðir hlut­skarp­ast, en sam­kvæmt svari Borg­ar­línu við fyr­ir­spurn Kjarnans voru teymin þrjú metin á grund­velli hæfni og verðs, þar sem hæfnin vóg 70 pró­sent og verðið 30 pró­sent.

Hrafn­kell Á. Proppé for­stöðu­maður verk­efna­stofu Borg­ar­línu segir við Kjarnann að það sé ekki óal­gengt að hæfni vegi 60-80 pró­sent í útboðum sem þessum á móti verð­inu. Verðið sé hins vegar langstærsti ein­staki þátt­ur­inn, á meðan að hæfnin sé metin í mörgum ein­stökum liðum.

[adspot]

Í til­kynn­ingu á vef Borg­ar­línu segir að Artelia Group, sem er með höf­uð­stöðvar sínar í Frakk­land en starf­semi í 40 löndum og yfir 6.100 starfs­menn á heims­vísu, hafi mikla reynslu og þekk­ingu af hrað­vagna­kerfum eins og Borg­ar­línan verður.[links]

Þar segir að fyr­ir­tækið hafi hannað yfir 175 kíló­metra af hrað­vagna­leiðum og 255 kíló­metra af létt­lest­ar­kerfum víða um ver­öld, meðal ann­ars Pau BRT-kerfið í Pýra­nea­fjöll­unum og hrað­vagna­kerfi í borg­inni Lens í Norður-Frakk­landi.

Danska verk­fræði­stofan MOE sá svo um grunn- og for­hönnun fyrir létt­lest­ar­kerfið í Kaup­manna­höfn og arki­tekta­stofan Gottlieb Paludan Architects er í til­kynn­ingu Borg­ar­línu sögð þekkt fyrir að hanna lausnir fyrir inn­viði á borð við létt­lestir, hrað­vagna­kerfi og umferð­ar­mið­stöðvar víða um heim.

„Þá eru Yrki arki­tektar og Hnit lyk­il­að­ilar í teym­inu og með nauð­syn­lega stað­bundna þekk­ingu. Hnit verk­fræði­stofa sér­hæfir sig í alhliða verk­fræði­ráð­gjöf á sviði mann­virkja­gerðar og Yrki arki­tektar bjóða upp á alhliða þjón­ustu á sviði arki­tekt­úrs og skipu­lags,“ segir í til­kynn­ingu Borg­ar­línu.

Verkefni hönn­un­arteym­is­ins er að taka við þeim til­lögum sem koma fram í frum­draga­skýrslu Borg­ar­línu sem kom út í upp­hafi þessa mán­aðar og útfæra verk­efnið nánar fram að fram­kvæmdum, í sam­starfi við Vega­gerð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár