Fréttamál

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Gísla­taka dul­búin sem rót­tæk skyn­sem­is­hyggja

Stjórn­mála­mað­ur­inn Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er sjálf­hverfur maður með stórar hug­myndir um eigið ágæti. Sig­mundur Davíð talar mikið upp eigin verk, að hann nái oft að fram­kvæma nán­ast krafta­verk með ákvörð­unum sínum og þegar á móti blæs þá er það iðu­lega öðrum að kenna. Nánari skoðun á verkum hans leiðir þó iðu­lega til hóf­sam­ari nið­ur­stöðu og álykt­ana um að helstu póli­tísku...
Fréttir

Hösk­uldur: Aldrei orðið vitni að við­líkri for­ingja­dýrkun

Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að hann hafi aldrei orðið vitni við­líkri for­ingja­dýrkun og virð­ist vera hjá „fámennum en dug­legum hópi innan Fram­sókn­ar­flokks­ins“. Það sé þó tölu­verð und­ir­alda í flokknum og hörð gagn­rýni hafi komið fram á for­manns hans, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, á mið­stjórn­ar­fundi á laug­ar­dag. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag. Hösk­uldur, sem tap­aði for­manns­kosn­ingum gegn Sigmundi Davíð...
Fréttir

Sigurður Ingi ætlar ekki að bjóða sig fram gegn Sigmundi Davíð

Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, ætlar ekki að bjóða sig fram gegn Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, ef sá síð­ar­nefndi ákveður að bjóða sig aftur fram til for­manns. Þetta sagði Sigurður Ingi í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í morgun. Sigurður Ingi sagði þar að það væri ekk­ert laun­ung­ar­mál að ýmsar raddir væru uppi innan flokks­ins um hvað...
Fréttir

Blaða­full­trúi for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins vildi að Wintris-við­tal­inu yrði eytt

Blaða­full­trúi for­sæt­is­ráð­herra hringdi í Nils Hanson, aðal­rit­stjóra frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins Uppdrag Granskning sem sýndur er í sænska rík­is­sjón­varp­inu, strax eftir að Sven Bergman, frétta­maður þátt­ar­ins, hafði tekið við­tal við Sigmund Davíð Gunna­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, þann 11. mars og krafð­ist þess að hluta við­tals­ins yrði eytt. Sá hluti sem blaða­full­trú­inn vildi að yrði eytt snéri að spurn­ingum og svörum um Wintris Inc., aflands­fé­lag...
Fréttir

Útfyll­ing CFC-eyðu­blaða verður „ófrá­víkj­an­leg“

Embætti rík­is­skatt­stjóra er nú með í und­ir­bún­ingi að vél­taka CFC-eyðu­blöð sem aflands­fé­laga­eig­endur eiga að fylla út og skila með skatt­fram­tölum sínum. „Þegar því verki verður lokið mun útfyll­ing eyðu­blað­anna verða ófrá­víkj­an­leg.“ Skatt­fram­töl þar sem reynir á eign­ar­hald lög­að­ila erlendis eru þannig í dag að vél­ræn yfir­ferð þeirra er ekki fram­kvæm­an­leg. Þetta kemur fram í svari Skúla Eggerts Þórð­ar­sonar rík­is­skatt­stjóra við...
Fréttir

Sig­mundur birtir skatta­upp­lýs­ingar

Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son greiddu um 300 millj­ónir íslenskra króna í skatta á tíma­bil­inu 2007 til 2015. Fram kemur í Morg­un­blað­inu í dag að fé­lag­inu Wintris, í eigu Önnu Sig­ur­laug­ar, eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra, hafi aldrei verið leynt og eign­ir þess hafa aldrei verið í skatta­skjóli. Morg­un­blaðið vitnar í gögn frá Sigmundi Davíð sem unnin eru af KPMg þar...
Erlent

Panama­skjala­upp­ljóstr­ar­inn sendir frá sér yfir­lýs­ingu

Upp­ljóstr­ar­inn sem kom Panama­skjöl­unum til fjöl­miðla úr panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca vill að vernd upp­ljóstr­ara verði lög­fest í heim­inum. Hann seg­ist í yfir­lýs­ingu reiðu­bú­inn að aðstoða stjórn­völd við skatt­rann­sóknir. Heim­ild­ar­mað­ur­inn, sem kemur ekki fram undir nafni, seg­ist ekki vera njósn­ari. Ástæða þess að hann kom um 11,5 milljón gögnum til þýska dag­blaðs­ins Süddeutche Zeitung og ICIJ, alþjóða­sam­taka rann­sókn­ar­blaða­manna, var sú...
Fréttir

Hefði ekki fengið und­an­þágu frá höftum til að greiða í Panama­sjóð

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefði ekki fengið und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að safna í eft­ir­launa­sjóð sinn sem vistaður er í aflands­fé­lagi í Panama ef hann hefði óskað eftir slíkri hjá Seðla­bank­anum. Inn­lendum aðilum er óheim­ilt að flytja fjár­muni af reikn­ingum sínum hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki hér á landi yfir á reikn­ing í sinni eigu hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki erlendis í þeim til­gangi...
Aðsent

Ágúst Már Ágústsson

Orðspor Íslands í þýsku­mæl­andi fjöl­miðlum

Því hefur verið haldið fram að orðstír Íslands hafi skað­ast í kjöl­far þess að upp­lýst var um eigur íslenskra stjórn­mála­manna í hinum svoköll­uðu Panama skjölum og vegna við­bragða ráða­manna við þessum upp­ljóstr­unum. Ein leið til að meta þennan skaða er að greina umfjöllun erlendra fjöl­miðla um Ísland sem mælistiku um almenn­ings­á­lit erlendis. Þessi grein­ing nær til fjöl­miðla í Þýska­landi og...

Mest lesið undanfarið ár