Fréttamál

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Greinar

Sýslumaður vitnaði í Braga og sagði ásakanir „tilhæfulausar“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sýslu­maður vitn­aði í Braga og sagði ásak­anir „til­hæfu­lausar“

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu full­yrti í dag­sekt­ar­úr­skurði gegn móður að ekk­ert benti til þess að faðir hefði brotið gegn dætrum sínum þrátt fyrir að for­stöðu­maður Barna­húss teldi vís­bend­ingar frá list­með­ferð­ar­fræð­ingi um kyn­ferð­is­brot trú­verð­ugar. „List­með­ferð­ar­fræð­ingum er ekki að mér vit­andi ætlað það hlut­verk að rann­saka grun um meint kyn­ferð­is­brot,“ segir lög­maður föð­ur­ins.
Hélt því leyndu fyrir Alþingi að Bragi hefði „farið út fyrir starfssvið sitt“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Hélt því leyndu fyrir Alþingi að Bragi hefði „farið út fyrir starfs­svið sitt“

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið komst að þeirri nið­ur­stöðu að Bragi Guð­brands­son hefði farið út fyrir starfs­svið sitt þegar hann beitti sér fyrir því að faðir fengi að umgang­ast dætur sínar þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um að hann hefði mis­notað þær kyn­ferð­is­lega.
Föðurafinn skrifaði greinargerð til varnar Braga þegar kvörtunin kom fram
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Föð­ur­af­inn skrif­aði grein­ar­gerð til varnar Braga þegar kvörtunin kom fram

„Augljóst að honum rann þessi ömur­lega fram­koma til rifja,“ segir faðir máls­að­ila. Móðirin vildi ekki að dætur sínar mættu á sam­veru­stund með dauð­vona ömmu sinni í ljósi þess að fað­ir­inn ætl­aði að vera við­staddur, en skömmu áður hafði barna­vernd Hafn­ar­fjarðar vísað máli föð­ur­ins og stúlkn­anna til Barna­húss og lög­reglu.

Mest lesið undanfarið ár