Flokkur

Innlent

Greinar

FréttirLögregla og valdstjórn

Vopnaður lög­reglu­maður keypti sér sam­loku

Lög­reglu­þjónn var með skamm­byssu í belt­inu á meðan hann keypti sér að borða á veit­inga­stað á Lauga­veg­inum um helg­ina. Starfs­maður segir að sér hafi verið mjög brugðið og sendi fyr­ir­spurn á Lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna máls­ins. Stjórn­andi sér­sveit­ar­innar segir engar fastar reglur í gildi um vopna­burð lög­reglu­manna í mat­máls­tímum. Atvikið er til athug­unar hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Fréttir

Bjarni seg­ist óaf­vit­andi hafa haft félag í skatta­skjóli - Ólöf með umboð fyrir félag á Jóm­frú­areyjum

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, átti þriðj­ungs­hlut í félagi á Seychelles-eyjum. „Nei, ég hef ekki verið með neinar eignir í skatta­skjólum eða neitt slíkt,“ sagði hann í fyrra. Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra var með umboð fyrir félag í Bresku jóm­frú­areyj­unum. Hún segir það hafa verið vegna ráð­gjafar Lands­bank­ans.
Viðtal

Ára­langri bar­áttu við kerfið hvergi lokið

Ástríður Páls­dóttir hefur staðið í ára­langri bar­áttu við íslenska ríkið frá því eig­in­maður hennar, Páll Her­steins­son, lést á Land­spít­al­anum árið 2011. Ástríður sakar starfs­fólk Land­spít­al­ans um van­rækslu í aðdrag­anda and­láts hans, en hér­aðs­dómur var ekki sama sinnis. Hún hyggst áfrýja mál­inu til Hæsta­réttar auk þess sem hún hefur lagt fram tvær aðrar kærur á hendur tveimur heil­brigð­is­starfs­mönnum.
FréttirForsetakosningar 2016

For­seta­fram­bjóð­endur orðnir þrettán

Alls hafa þrettán manns lýst því yfir að þeir muni bjóða sig fram til for­seta í kosn­ing­unum þann 25. júní næst­kom­andi. Þar af hafa sjö bæst í hóp­inn frá því Stundin lét gera könnun á við­horfi almenn­ings til þeirra fram­bjóð­enda sem þegar höfðu stigið fram, auk þeirra sem nefndir höfðu verið í umræð­unni. Hér eru sjö nýj­ustu fram­bjóð­end­urnir:

Mest lesið undanfarið ár