Í stof­unni á Grett­is­götu Mynd: Stundin / Heiða Helgadóttir

Vilja ekki selja hótelmönnum

Tón­list­ar­mað­ur­inn Egill Ólafsson og Tinna Gunn­laugs­dóttir, leik­kona og fyrr­ver­andi Þjóð­leik­hús­stjóri, búa í rúm­lega hund­rað ára gömlu húsi við Grett­is­götu í Reykja­vík. Húsið stendur nú eitt innan um nýstár­leg stein­hús, þar sem áður var röð af gömlum timb­ur­húsum, umkringt fyr­ir­hug­uðum hót­el­bygg­ingum og gisti­húsum.

Tinna og Egill taka á móti blaða­manni og ljós­mynd­ara Stund­ar­innar á fal­legu heim­ili sínu við Grett­is­göt­una og bjóða til sætis í fremri stofu húss­ins. Á meðan Tinna hellir upp á kaffi byrjar Egill á því að segja okkur frá hverf­inu. „Við fluttum hingað árið 1981 og höfum því búið hér í 35 ár. Þegar við keyptum húsið vildi hér eng­inn búa. Nú á sú þróun sér stað aftur að hér vill eng­inn búa, eða ætti ég kannski að segja, hér er ekki lengur pláss fyrir venju­lega íbúa,“ segir hann og bendir út um glugga sem snýr að göt­unni, en í fjarska má heyra hvelli og hávaða í vinnu­tækjum og iðn­að­ar­mönnum. „Ég held það séu 28 hótel og gisti­heim­ili í Grett­is­götu. Þegar við fluttum hingað voru hér átta kjör­búðir og fjórar fisk­búðir og íbúi í hverju húsi. Nú eru allar búðir í hverf­inu að verða mjög eins­leitar. Ég er ekki bjart­sýnn  fyrir hönd okkar íbú­anna hér í mið­borg­inni, skipu­lags­yf­ir­völd virð­ast hafa tapað áttum í skipu­lags­málum þessa elsta hluta Reykja­víkur.“ 

Upphafið var gleymd taska

„Þetta hús var nú ekki heill­andi þegar við keyptum það,“ segir Tinna þegar hún er innt eftir því hvað hafi heillað hana við húsið árið 1981. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár