Vopnaður lögreglumaður keypti sér samloku

Lög­reglu­þjónn var með skamm­byssu í belt­inu á meðan hann keypti sér að borða á veit­inga­stað á Lauga­veg­inum um helg­ina. Starfs­maður segir að sér hafi verið mjög brugðið og sendi fyr­ir­spurn á Lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna máls­ins. Stjórn­andi sér­sveit­ar­innar segir engar fastar reglur í gildi um vopna­burð lög­reglu­manna í mat­máls­tímum. Atvikið er til athug­unar hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra.

Myndin tengist fréttinni ekki beint
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint (úr safni) Mynd: Pressphotos

Um helg­ina gekk vopn­aður lög­reglu­maður inn á veit­inga­stað­inn Lemon á Lauga­vegi og keypti sér sam­loku. Eyþóri Inga Eyþórs­syni, starfs­manni á staðnum, var eðli­lega mjög brugðið. „Þessi sami lög­reglu­maður kemur reglu­lega inn á stað­inn, en að þessu sinni tók ég eftir að hann var með skamm­byssu í belt­inu. Mér fannst það frekar scary,“ segir hann í sam­tali við Stundina. Eyþór ákvað að senda Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyr­ir­spurn um málið. Daginn eftir fékk hann eft­ir­far­andi svar: „Þetta er eitt­hvað sem LRH kemur ekki að. Tel senni­legt að þetta hafi verið lög­reglu­maður frá rík­is­lög­reglu­stjóra og þá hefur vopna­burð­ur­inn verið tengdur ein­hverju til­fallandi verk­efni.“

Stundin hafði sam­band við Harald Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra sem sagði lög­reglu­menn rík­is­lög­reglu­stjóra vera sér­sveit­ar­menn og þeir væru alla jafna vopn­aðir við sín störf. Hins vegar séu í gildi skýrar 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár