Flokkur

Innlent

Greinar

Viðtal

Gott að geta rætt um dauð­ann

Séra Bragi Skúlason, sjúkra­hús­prestur á Land­spít­al­anum, veitir þjón­ustu þeim sem grein­ast með lífs­hættu­lega sjúk­dóma og hefur verið við­staddur mörg and­látin. Hann segir að dauð­vona fólk tak­ist á við erf­iða, til­finn­inga­lega líðan - fólk getur verið ósátt, það getur fundið fyrir reiði og ótta og verið að takast á við ákveðin upp­gjör. „Því finnst eins og lífið sé að hlaupa frá því og að það hafi ekki náð að gera það sem það ætl­aði sér í líf­inu. Allt þetta kemur inn á borð hjá mér. Það sama er að segja um trú­ar­leg spurs­mál - hvernig er dauð­inn, hvert við­kom­andi fer þegar hann deyr og sumir velta fyrir sér hvort von sé um að annað líf taki við þegar þeir kveðja.“
Viðtal

Grátur son­ar­ins stöðv­aði sjálfs­vígið

Tíu dögum fyrir síð­ustu jól tók Kristian Guttesen ákvörðun um að deyja. Hann var kom­inn á enda­stöð. Hann sendi eig­in­konu sinni skila­boð og sagði henni frá ætl­un­ar­verki sínu, kynnti sér hvernig best væri að hnýta heng­ing­ar­hnút og var að leita sér að krók þegar rónni var raskað. Rúmlega árs­gam­all sonur hans vakn­aði af síð­deg­islúrnum og skyndi­lega breytt­ust aðstæður.
FréttirGjaldeyrishöft

Gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina fyrir skort á sam­ráði: Sam­ráðs­nefnd ekki með í ráðum

Katrín Jak­obs­dóttir gagn­rýnir stjórn­ar­meiri­hlut­ann fyrir skort á sam­ráði við gerð aflandskrónu­frum­varps Bjarna Bene­dikts­sonar. Hún segir ólík­legt að gjald­eyr­is­höft verði afnumin fyrir kosn­ingar í haust. „Stað­reyndin er sú að frum­varpið mun ekki aflétta höftum af íslenskum almenn­ingi, fyr­ir­tækjum og líf­eyr­is­sjóðum og enn liggur ekki fyrir hvenær það verður gert.“
Úttekt

Fátæku börnin

Sautján ára stúlka sem býr við sára fátækt seg­ist finna fyrir for­dómum frá jafn­öldrum vegna aðstæðna hennar. Hún á aðeins eitt par af skóm og götótt föt. Samkvæmt skýrslu UNICEF má gera ráð fyrir að 6.100 börn líði skort hvað varðar fæði, klæði og hús­næði hér á landi. Þar af líða tæp­lega 1.600 börn veru­legan skort. Barna­fá­tækt stafar af því að for­eldrar hafa ekki fram­færslu sem dugar til að mæta grunn­þörfum barna sinna – og þar standa líf­eyr­is­þegar verst. Erfiður hús­næð­is­mark­aður setur einnig stórt strik í reikn­ing­inn en meg­in­þorri örorku­líf­eyr­is­þega býr við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað og flestir eru á leigu­mark­aði. Stundin ræddi við ein­stæðar mæður á örorku­líf­eyri um bar­átt­una við að tryggja börnum þeirra áhyggju­lausa æsku.

13 mín. lestur

FréttirForsetakosningar 2016

Davíð segir Guðna ófæran um að taka ákvarð­anir - sýndi sjálfur van­rækslu og athafna­leysi

Davíð Oddsson, for­seta­fram­bjóð­andi og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, hefur líkt sér við slökkvi­liðs­mann, en segir að Guðni Th. Jóhann­es­son taki ákvarð­anir „tutt­ugu árum síðar“ vegna þess að hann sé sagn­fræð­ingur. Davíð gagn­rýnir Guðna vegna orða hans um Icesave-málið, en sjálfur sýndi Davíð van­rækslu með athafna­leysi í aðdrag­anda banka­hruns­ins, að mati rann­sókn­ar­nefndar Alþingis.

Mest lesið undanfarið ár