Davíð við fréttamann: „Þú ert í forsetaslag við mig“

Davíð Oddsson for­seta­fram­bjóð­andi tengdi aðra fram­bjóð­endur við stjórn­mála­flokka, gegn neitun þeirra, og sak­aði spyril í kapp­ræðum um að vera í „for­setaslag“ við sig.

Davíð við fréttamann: „Þú ert í forsetaslag við mig“
Davíð Oddsson Tekur þátt í kapp­ræðum á Stöð 2 ásamt þremur öðrum fram­bjóð­endum. Mynd: Stöð 2

Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, borg­ar­stjóri og for­sæt­is­ráð­herra, sagði að fólk sæi í hvaða flokki Andri Snær Magnason og Guðni Th. Jóhann­es­son væru í kapp­ræðum á Stöð 2 í kvöld. Báðir neit­uðu þeir að hafa tekið þátt í starfi stjórn­mála­flokka, en Davíð vildi kenna þá við flokka. Sjálfur var hann for­maður Sjálf­stæð­is­flokk­ins um ára­bil.

Andri Snær Magnason, Davíð Oddsson, Guðni Th. Jóhann­es­son og Halla Tóm­as­dóttir tóku þátt í kapp­ræðum fyrir for­seta­kosn­ingar á Stöð 2 í kvöld. Öðrum fram­bjóð­endum var ekki boðið að taka þátt.

Í umræðu um stjórn­mála­þát­töku kváð­ust hvorki Halla Tóm­as­dóttir, Guðni Th, né Andri Snær hafa tekið þátt í flokkapóli­tík. 

„Fólk sér hvar þú ert í flokki,“ svar­aði Davíð, eftir svör Andra Snæs. Þá nefndi hann að Guðni Th. hefði stuðn­ing meðal Sam­fylk­ing­ar­innar.

Sakar spyril um að vera í slag

Davíð sak­aði Þorbjörn Þórð­ar­son, frétta­mann og spyril í þætt­inum, um að vera í for­setaslag við hann.

Ummælin féllu þegar Þorbjörn spurði Davíð nánar út í orð hans um að ef öll mál færu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu myndi fólk „hætta að kjósa til Alþingis.“ 

„Þú ert svona í for­setaslag við mig, ein­hvern. Það er allt í lagi mín vegna,“ sagði Davíð.

Davíð taldi að var­lega þyrfti að fara í að heim­ila að fólk gæti knúið fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur með ákveðnu hlut­falli und­ir­skrifta almenn­ings. „Áhuginn og nauð­syn þess að kjósa til þings minnkar,“ útskýrði hann.

Efaðist um skoðanakönnun

Í skoð­ana­könnun 365 sem kynnt var í þætt­inum kom fram að Guðni Th. væri með 65% fylgi, Davíð 20% fylgi, Andri Snær 8%, Halla 2,5% og aðrir tölu­vert minna. Davíð efað­ist um nið­ur­stöður könn­un­ar­innar, þar sem hún væri ekki í fullu sam­ræmi við aðrar kann­anir. Fylgi Davíðs mæld­ist 18% í könnun MMR sem kynnt var í gær, en í könnun, sem gerð var fyrir stuðn­ings­menn Davíðs, mæld­ist hann með 22%. 

„Ég held að það sé ein­hver skekkja í þessu og bind vonir við það,“ sagði hann og kvaðst treysta á að bæta við sig einu pró­senti á dag fram að kosn­ing­unum eftir mánuð.

Davíð hefur áður efast um nið­ur­stöður skoð­ana­kann­ana. Árið 2009 voru 90% lands­manna and­vígir því að hann gegndi stöðu seðla­banka­stjóra eftir banka­hrunið. Í við­tali við Kast­ljósið hafn­aði hann könn­un­inni og sagði að „þessi skoð­ana­könnun, sem var nefnd þarna líka, sem Baugs­miðl­arnir birtu“ væri ekki þess eðlis að hann tæki mark á henni.

Davíð gagn­rýndi kynn­ingu sama þáttar og sak­aði spyril­inn, Sigmar Guð­munds­son, um ófag­lega umræðu. Hann tók sem dæmi að Sigmar sjálfur gæti verið rúinn trausti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár