Ritstjórinn Davíð: Tíu skringilegustu ummælin

Morg­un­blaðið hefur ham­ast á minni­hluta­hópum, kallað áhrifa­konu „glugga­skraut“ og erlendan þjóð­höfð­ingja „múlatta“ síðan Davíð Oddsson sett­ist í rit­stjóra­stól.

Ritstjórinn Davíð: Tíu skringilegustu ummælin

Davíð Oddsson hefur að eigin sögn aðeins tekið sér viku sum­ar­frí frá því að hann var ráð­inn rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins. Þannig hefur hann frá 2009 unnið baki brotnu í Hádeg­is­móum og skrifað hund­ruð Stak­steina, Reykja­vík­ur­bréfa og leið­ara. Í leið­ara­skrifum und­an­far­inna ára hafa ýmis óvenju­leg og umdeild sjón­ar­mið verið viðruð, meðal ann­ars ummæli sem lykta af ras­isma og kven­fyr­ir­litn­ingu. Frá því Davíð hóf kosn­inga­bar­áttu sína hefur hann grafið upp sjö ára gömul ummæli frá Guðna Th. Jóhann­essyni, mót­fram­bjóð­anda sínum, um Icesave-málið og látið í veðri vaka að þau lýsi sjón­ar­miðum sem ekki séu for­seta sæm­andi. Í ljósi þess er við hæfi að líta á ýmis nýlegri ummæli sem Davíð ber sjálfur ábyrgð á.

„For­set­inn getur til dæmis stöðvað það að umræðu­bann sé í land­inu um til­tekna þætti. Hann getur stöðvað þöggun, hann getur verið í far­ar­broddi þess að hvetja til umræðu,“ sagði Davíð við opnun kosn­inga­skrif­stofu sinnar þann 13. maí síð­ast­lið­inn. Þá vaknar spurn­ingin: Hvernig umræðu hefur rit­stjór­inn Davíð Oddsson staðið fyrir og átt frum­kvæði að und­an­farin ár? 

Stundin rifj­aði upp sér­kenni­leg­ustu leið­ara­skrifin sem birst hafa í Morg­un­blað­inu í rit­stjóra­tíð Davíðs Odds­sonar. Skrifin eru nafn­laus en á ábyrgð beggja rit­stjór­anna, Davíðs og Haralds Johann­es­sen. Þá eru margar grein­anna skrif­aðar með þeim hætti að auð­veld­lega má greina rit­stíl Davíðs Odds­sonar. 

 

1. Obama kallaður „múlatti“

Þann 28. júlí 2014 var fjallað um Barack Obama Banda­ríkja­for­seta í Reykja­vík­ur­bréfi og hann kall­aður „múlatti“. „Þar sem Obama er blökku­maður (múlatti raunar) var ljóst að af þeirri ástæðu einni myndi hugs­an­legt kjör hans marka þátta­skil,“ stóð í bréf­inu. Við­brögðin létu ekki á sér standa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár