Flokkur

Afplánun

Greinar

„Mér leið eins og pabbi minn hefði dáið nema hvað ég sat uppi með skömmina“
ViðtalBörn fanga

„Mér leið eins og pabbi minn hefði dáið nema hvað ég sat uppi með skömm­ina“

Emma var tíu ára gömul þegar bankað var upp á og henni til­kynnt að faðir hennar hefði verið hand­tek­inn. Næstu árin sat hann í fang­elsi en eftir sat hún, upp­full af skömm og sekt­ar­kennd sem var ekki hennar. Á meðan hún glímdi við umtal og dóma sam­fé­lags­ins, þar sem fólk hringdi heim til hennar til að níð­ast á fjöl­skyld­unni og kenn­ari í mennta­skóla kall­aði hana aðeins föð­ur­nafn­inu, reyndi hún allt til að sanna að hún væri góð mann­eskja.
Ofbeldisfangar án betrunar: „Hérna eru menn með vandamál“
ÚttektFangelsismál

Ofbeld­is­fangar án betr­unar: „Hérna eru menn með vanda­mál“

„Er sál­fræð­ingur að vinna hér?“ spurði fangi á Litla-Hrauni þegar hann var inntur eftir því hvort og þá hvenær hann hefði fengið sál­fræði­við­tal. Einn sál­fræð­ingur sinnir 180 föngum sem afplána dóma á Íslandi og ekk­ert sér­hæft úrræði er fyrir fanga sem sitja inni fyrir lík­ams­árásir. Fang­arnir sögð­ust þó myndu þiggja slíka aðstoð ef hún væri mark­viss og í boði.
Fangelsi án lausnar
Rannsókn

Fangelsi án lausnar

Í fang­els­inu á Hólms­heiði eru konur lok­aðar inni vegna brota sem þær frömdu undir áhrifum áfengis- og vímu­efna. Fá úrræði eru hins vegar til staðar inni í fang­els­inu til þess að mæta þessum vanda, þar sem einn sál­fræð­ingur sinnir öllum föngum í fang­elsum og eng­inn með­ferð­ar­gangur er fyrir konur. Það er ekki heldur neitt sem tekur við þeim þegar þær ljúka afplánun, og þær lýsa því hvernig þær fara beint úr fang­elsi á göt­una og þaðan aftur inn í fang­elsið. Þetta er víta­hringur sem þú fest­ist í, segja þær.
Sverrir Þór finnst ekki í fangelsi í Brasilíu
FréttirHvarf Friðriks Kristjánssonar

Sverrir Þór finnst ekki í fang­elsi í Brasilíu

Sverrir Þór Gunn­ars­son, Sveddi tönn, sem í nóv­em­ber árið 2012 var dæmdur í 22 ára fang­elsi í Brasilíu fyrir smygl á tæpum 50 þús­und e-töflum og er tal­inn einn af höf­uð­paur­unum í alþjóð­legum smygl­hring, virð­ist vera horf­inn í Suður-Ameríku. Einn af þeim sem sagður er sam­starfs­maður Sverris og tal­inn hafa mik­il­vægar upp­lýs­ingar um hvarf Friðriks Krist­jáns­sonar, Guð­mundur Spar­takus Ómarsson, fór af landi brott á dög­unum.
Sagan öll fyrir dómi: Sakaður um að misþyrma tveggja ára barni hrottalega
Fréttir

Sagan öll fyrir dómi: Sakaður um að mis­þyrma tveggja ára barni hrotta­lega

Aðal­með­ferð í máli Kaj Antons Arn­ars­sonar, 24 ára Íslend­ings sem setið hefur í fang­elsi í Stavan­ger frá því í októ­ber á síð­asta ári, er lokið. Kaj Antoni er gefið að sök að hafa mis­þyrmt tveggja ára íslenskum dreng hrotta­lega tvo daga í röð á meðan móðir drengs­ins var við vinnu. Litli dreng­ur­inn átti að vera á leik­skóla en var veikur þessa örlaga­ríku daga. Sagan öll hér á vefnum.

Mest lesið undanfarið ár