Djarfasta kosningaloforð Trumps fuðraði upp

Vonir Donalds Trump um að bólu­efni gegn COVID-19 komi á markað fyrir kosn­inga­dag vest­an­hafs eru að nær engu orðnar og lyfja­fyr­ir­tækin ætla ekki að láta póli­tískan þrýst­ing ráða för.

Prófanir á bóluefni Oxford-háskóla eru tímabundið í biðstöðu.
Prófanir á bólu­efni Oxford-háskóla eru tíma­bundið í bið­stöðu. Mynd: EPA

„Við munum fá bólu­efni fljót­lega, kannski fyrir mjög sér­staka dag­setn­ingu. Þið vitið hvaða dag­setn­ingu ég er að tala um,“ sagði Donald Trump Banda­ríkja­for­seti í byrjun vik­unnar. Hann ítrek­aði svo enn einu sinni að bólu­efnið kæmi á markað fljótt – kannski þegar í októ­ber­mán­uði.

Þarna er for­seti áhrifa­mesta ríkis heims að lofa löndum sínum vernd gegn veiru á undra skömmum tíma. Skemmri tíma en áður hefur nokkru sinni þekkst að bólu­efni hafi verið þróað á. Þarna er líka for­seti áhrifa­mesta ríkis heims að lofa kjós­endum þess­ari vernd. Því hin „mjög sér­staka dag­setn­ing“ sem hann nefndi er kjör­dag­ur­inn 3. nóv­em­ber.

„Þetta er kapp­hlaupið um bólu­efnið – enda­markið nálg­ast“ segir í nýrri kosn­inga­her­ferð Trumps. Í aug­lýs­ing­unni er mynda­vél­inni rennt yfir tóm með­alaglös sem á stendur: „COVID-19 kór­ónu­veiru bólu­efni“.

[adspot]

Hvorki Trump né nokkur annar getur með vissu sagt hvenær bólu­efni gegn COVID-19 verður til­búið. Þó að vonir allra standi vissu­lega til þess að það verði til­búið sem fyrst hafa vís­inda­menn ítrekað bent á að ekki sé hægt að flýta þró­un­ar­ferl­inu um of. Þegar sé verið að reyna að fram­leiða bólu­efni við veiru­sýk­ingu hraðar en nokkru sinni hefur verið gert. En að eng­inn afsláttur verði gef­inn þegar kemur að vinnu­brögðum og öryggi efn­is­ins.

Trump hafði varla sleppt orð­inu á blaða­manna­fund­inum á mánu­dag en skýrt var frá því að til­raunum með það bólu­efni sem þykir lofa hvað bestu, var hætt tíma­bundið þar sem einn sjálf­boða­lið­inn sem tekur þátt til­raun­inni fór að sýna óvænt og alvar­leg ein­kenni út frá tauga­kerf­inu. Heim­ildir New York Times herma að veik­indin lýsi sér í bólgum sem hafi áhrif á mænu manns­ins.

Enn er óvíst hvort ein­kennin tengj­ast bólu­efni sem breska lyfja­fyr­ir­tækið AstraZeneca er að þróa í sam­starfi við vís­inda­menn við Oxford-háskóla. Ef í ljós kemur að bólu­efnið hafi eitt­hvað að gera með veik­indi sjálf­boða­lið­ans myndi það valda stóru bakslagi í þróun þess. Hins vegar hefur sú ákvörðun lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins að hætta þegar í stað til­raunum á meðan málið verður rann­sakað til hlýtar lík­lega aukið til­trú almenn­ings á því ferli sem lyf og bólu­efni þurfa að fara í gegnum áður en þau eru sett á markað.

Þegar Donald Trump sagði að ferlið yrði stutt og að bólu­efnis væri að vænta á næstu vikum vökn­uðu enn á ný þær áhyggjur að póli­tískur þrýst­ingur gæti orðið til þess að efni sem ekki væri nægi­lega prófað og mögu­lega ekki öruggt yrði mark­aðs­sett í flýti. En aðeins örfáir mán­uðir eru síðan kór­ónu­veiran SARS-CoV-2 tók sér fyrst ból­festu í manns­lík­ama. COVID-19, sjúk­dóm­ur­inn sem hún veldur, er því enn ráð­gáta að mörgu leyti.

For­stjórar níu stórra lyfja­fyr­ir­tækja, meðal ann­ars AstraZenica, drógu veru­lega úr þessum áhyggjum í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu sem þeir sendu út í vik­unni. Þar hétu þeir því að „stóla á vís­indin“ og hétu því að skuld­binda sig áfram til þess að þróa og prófa mögu­legt bólu­efni gegn COVID-19 í sam­ræmi við ítr­ustu siða­reglur og á grunni heil­brigðra, vís­inda­legra lög­mála.

Vissu­lega urðu margir fyrir von­brigðum með að AstraZeneca hafi þurft að hætta tíma­bundið próf­unum með bólu­efni sitt. En hins vegar þykir sú ákvörðun styrkja trú fólks á því að vel eigi að standa að verki. Anthony Fauci, helsti sér­fræð­ingur Banda­ríkj­anna í smit­sjúk­dómum og einn af ráð­gjöfum Trumps, kall­aði ákvörð­un­ina „örygg­is­ventil“. Paul Duprex, yfir­maður bólu­efna­rann­sókna við Háskól­ann í Pitts­burgh, segir að klínískar próf­anir séu nokkuð oft stöðv­aðar. „Tíma­bundin stöðvun klínískrar rann­sóknar er val­kvæð en sýnir í raun að ferlið er að virka. Það er ekki keyrt áfram á fullu án þess að hafa bremsur.“

Lyfja­fyr­ir­tækið hefur fengið óháða nefnd sér­fræð­inga til að leggja mat á það hvort að ein­kenni sjálf­boða­lið­ans teng­ist bólu­efn­inu eða ekki. Sjúkra­saga sjálf­boða­lið­ans verður könnuð ofan í kjöl­inn og farið verður í gegnum ógrynni upp­lýs­inga úr rann­sókn­inni. Í kjöl­farið verður svo tekin ákvörðun um hvort og þá hvenær rann­sóknin heldur áfram. Ekki er vitað hversu langan tíma sér­fræð­ing­arnir þurfa til að kom­ast að nið­ur­stöðu. Þá er lík­legt að banda­ríska lyfja­eft­ir­litið muni einnig safna gögnum og leggja sitt mat á málið. Á meðan þess­ari rann­sókn stendur verður fleirum ekki gefið bólu­efnið.

Líf­töl­fræð­ing­ur­inn Susan Ellen­berg, sem hefur átt sæti í mörgum eft­ir­lits­nefndum vegna lyfja­þró­unar, segir í við­tali við Washington Post að hún hafi litlar áhyggjur af stöðvun prófan­anna. „Í raun er ég rólegri en áður. Þetta segir mér að fólk er að gæta sín mjög mikið.“

Til­raunir með bólu­efni AstraZeneca voru komnar á loka­stig. Á því stigi tekur stór hópur sjálf­boða­liða þátt, sem sam­anstendur af fólki frá ólíkum löndum, á mis­mun­andi aldri, öllum kynjum og þar fram eftir göt­unum. Sjálf­boða­lið­inn sem veikt­ist var í hópi 10 þús­und sjálf­boða­liða í Bret­landi sem tóku þátt í próf­un­unum á bólu­efn­inu.

Í sumar voru próf­an­irnar einnig stöðv­aðar, þó að það hafi ekki farið hátt. Þá hafði annar sjálf­boða­liði veikst en óháð nefnd sér­fræð­inga komst að því að veik­indi hans höfðu ekki orsakast af bólu­efn­inu heldur vegna ógreinds tauga­sjúk­dóms sem sjálf­boða­lið­inn var með.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár