Willum: Staða Framsóknarflokksins á höfuðborgarsvæðinu er alvarleg

Formaður fjár­laga­nefndar telur að Framsókn hafi ekki tek­ist að tala fyrir borg­ara­legum mál­efnum, en fylgi flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mælist nú tæp­lega sex pró­sent. Hann vill RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði og á fjár­lög.

Willum Þór Þórsson
Willum Þór Þórsson Mynd: Bára Huld Beck

Willum Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar, segir stöðu flokks síns á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vera alvar­lega. Þetta kemur fram í við­tali við hann í hlað­varp­inu Arn­ar­hóli, þar sem hann var spurður út í nýlega birta umfjöllun Kjarnans á fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu byggða á síð­ustu tveimur könn­unum MMR. [links]Samkvæmt þeim er fylgi flokks­ins á svæð­inu, þar sem um ⅔ hluta lands­manna búa, 5,9 pró­sent. Það er minna fylgi en Mið­flokk­ur­inn og Vinstri græn og aðeins rétt meira fylgi en Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem hefur aldrei boðið fram til þing­kosn­inga og á eftir að kynna hverjir verða í fram­boði fyrir flokk­inn í næstu kosn­ing­um, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Willum segir að Fram­sókn­ar­flokknum hafi ekki tek­ist að tala nægi­lega skýrt fyrir borg­ara­legum mál­efnum, en til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins telj­ast stærstu þétt­býl­iskjarnar lands­ins innan þriggja stærstu kjör­dæma þess. Það sjá­ist til að mynda á því að flokk­ur­inn náði ekki inn manni í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, þegar hann fékk 3,2 pró­sent atkvæða. Hann er með sitt­hvorn full­trú­ann í sveit­ar­stjórnum Kópavogs og Hafn­ar­fjarðar og ein­ungis tvo af 35 þing­mönnum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Willum er annar þeirra og Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er hinn.

Að sögn Willums þarf að horfast í augu við þessa þróun og breyta henni. „Við þurfum að virkja ungt fólk. Ég held að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eigi að geta höfðað til ungs fólks og við erum með mjög flott ungt fólk núna í gras­rót­inni sem ég bind miklar vonir við að tak­ist að safna ungu fólki sem að tak­ist þetta. Við þessi sem að eldri erum, þótt ég sé ungur í póli­tík, þá kannski erum við fast­ari í form­inu en svo að við getum höfðað til unga fólks­ins með jafn trú­verð­ugum hætti og unga fólkið sjálft.“

5,9 prósent fylgi á höfuðborgarsvæðinu

Í gögnum MMR sem sýna með­al­tals­stöðu Fram­sókn­ar­flokks­ins úr síð­ustu tveimur könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins eftir ýmsum bak­grunns­breytum kemur fram að heilt yfir virð­ist flokk­ur­inn á svip­uðum slóðum og í síð­ustu kosn­ing­um. Fylgi við hann mælist 10,1 pró­sent og hann er sá stjórn­ar­flokkur sem hefur tapað minnstu fylgi á rík­is­stjórn­ar­sam­starf­in­u.

Flokk­ur­inn hefur styrkt stöðu sína á Norð­ur­landi, Aust­ur­landi, Suð­ur­landi og á Suð­ur­nesj­un­um frá könn­unum sem gerðar voru í kringum síð­ustu kosn­ingar sem fram fóru haustið 2017.

[adspot]Fylgið hefur hins vegar dalað á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum sam­kvæmt tölum MMR og á lang­fjöl­menn­asta svæði lands­ins, höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem tveir af hverjum þremur íbúum Íslands búa. Þar, í kjör­dæmum þar sem vara­for­mað­ur­inn og mennta­mála­ráð­herr­ann ann­ars vegar og for­maður fjár­laga­nefndar hins veg­ar, leiða lista flokks­ins mælist fylgi hans nú 5,9 pró­sent. Í könn­unum MMR fyrir og eftir síð­ustu kosn­ingar mæld­ist það átta pró­sent á svæð­inu sem er í takt við það fylgi sem Fram­sókn fékk í kosn­ing­unum 2017 í Krag­anum ann­ars vegar og í Reykja­vík suður hins veg­ar, þar sem flokk­ur­inn náði inn þing­mönn­um. Í Reykja­vík norður fékk flokk­ur­inn 5,3 pró­sent atkvæða og engan mann kos­inn.

Vandi einkarekinna fjölmiðla óumdeildur

Í við­tal­inu ræðir Willum ýmis önnur mál, til að mynda stöð­una á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði, en mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sam­flokks­kona hans, hefur ítrekað og án árang­urs reynt að leggja fram frum­varp til að koma á mót stuðn­ings­kerfi við einka­rekna fjöl­miðla. Ástæðan hefur verið and­staða á meðal hluta þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks sem hafa barist hart gegn mál­inu.

Nýverið var greint frá því í Morg­un­blað­inu að til stæði að skoða nýjar leiðir í stuðn­ingi við fjöl­miðla og að þar yrði skatt­kerfið notað. Heim­ildir Kjarnans herma að þar sem verið að kanna útfærslu á afslætti eða end­ur­greiðslu á trygg­inga­gjaldi. Það í sam­ræmi við frum­varp sem Óli Björn Kárason og þrír aðrir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks lögðu fram í des­em­ber í fyrra til að und­ir­strika and­stöðu sína við fjöl­miðla­frum­varp mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Willum segir í við­tal­inu að honum finn­ist blasa við að stjórn­mála­menn, og hann þar með tal­inn, finni sann­gjarna lausn á þess­ari stöðu. „Vandi einka­rek­inna fjöl­miðla er óum­deildur. Meðal ann­ars vegna þess að RÚV er ráð­andi á aug­lýs­inga­mark­aði.“

Það sé ekki vilji hans að opin­bert fyr­ir­tæki hafi ráð­andi stöðu á neinum mark­aði. „Það hlýtur að vera lang mesta sann­girni í því að RÚV fari af aug­lýs­inga­mark­aði og hrein­lega á fjár­lög.“

Ein lausn sem gæti verið í stöð­unni sé að halda RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði en að tekj­unum af því væri dreift á alla miðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár