Bjarni Benediktsson styður skoðun á sölu Landsbankans í Borgun

Hópur fjár­festa sem keypti hlut Lands­bank­ans á lágu verði í nóv­em­ber 2014 af rík­is­bank­anum sér fram á að hagn­ast veru­lega á fjár­fest­ingu sinni. Hlut­ur­inn var seldur bak­við luktar dyr.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir sjálf­sagt að skoða hvernig salan á 31,2 pró­sent eign­ar­hlut Lands­bank­ans í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun gekk fyrir sig seint á árinu 2014 og hann styðji þá skoðun. Þá verði hins vegar að fara eftir réttum boð­leiðum og óska eftir því við Banka­sýslu rík­is­ins, sem heldur á hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum, eða stjórn bank­ans að koma fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd til að gera grein fyrir söl­unni, líkt og þeir hafi áður gert. Þetta kom fram í svari Bjarna við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn frá Árna Páli Árnasyni, for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, á Alþingi í morgun. Árni Páll hefur kallað eftir því opin­ber­lega að sala Lands­bank­ans á hlut sínum í Borgun verði rann­sökuð.

Milljarða hagnaður vegna kaupa Visa Inc. á Visa Europe

Morg­un­blaðið greindi frá því í gær­morgun að íslensku greiðslu­korta­fyr­ir­tækin Borgun og Valitor muni hagn­ast um vel á annan tug millj­arða króna vegna kaupa Visa Inc. á Visa Europe á um þrjú þús­und millj­arða króna. Búist er við því að kaupin klárist á næstu mán­uðum.

Borgun mun fá hlut­deild í sölu­verð­inu þar sem fyr­ir­tækið er á meðal þrjú þús­und útgef­enda Visa- korta í Evrópu. Þessi tíð­indi hafa vakið upp mikla umræðu þar sem Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun í nóv­em­ber 2014 á 2,2 millj­arða króna til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar. Hlut­ur­inn var ekki aug­lýstur og fór ekki í gegnum form­legt sölu­ferli. Þess í stað var hlut­ur­inn seldur á bak­við luktar dyr til fjár­festa­hóps sem leitað hafði eftir því að kaupa hann. Hann sam­an­stóð af stjórn­endum Borgunar og með­fjár­festum þeirra. Á meðal þeirra sem til­heyrðu fjár­festa­hópnum var Einar Sveins­son. Einar er föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Þeir voru auk þess við­skipta­fé­lagar um ára­bil, en Bjarni hætti afskiptum að við­skiptum í lok árs 2008. Verðið sem Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun slf., sem greiddi fyrir hlut­inn þótti lágt bæði í inn­lendum og erlendum sam­an­burði. Félagið greiddi um 2,2 millj­arða króna fyrir hlut­inn en hagn­aður Borgunar 2013 var um einn millj­arður króna.

Á sama tíma og verið var að afgreiða kaupin hafði verið gert opin­bert að Visa Inc. væri í við­ræðum um að kaupa Visa Europe. Verðið þá var áætlað um 1.300 millj­arðar króna sam­kvæmt fréttum banda­rískra miðla á þeim tíma, eða rúm­lega helm­ingur þess sem nú er talið að greitt verði fyrir hlut­inn. Engu að síður lá fyrir und­ir­rituð vilja­yf­ir­lýs­ing um að við­skiptin myndu fara fram, með til­heyr­andi greiðslum til allra þeirra útgef­enda Visa-korta í Evrópu sem rétt áttu á hlut­deild í sölu­hagn­að­inum. Á meðal þeirra var Borgun. Samt var ekki gert ráð fyrir því að Lands­bank­inn myndi fá hlut­deild í þeirri greiðslu ef kaup Visa inc. myndu ganga eftir þegar selt var til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar.

Á aðal­fundi Borgunar 2015, sem fór fram tæpum þremur mán­uðum eftir að kaupin voru frá­gengin, var ákveðið að greiða hlut­höfum Borgunar hf. 800 millj­ónir króna í arð. Það var í fyrsta sinn sem arður var greiddur úr fyr­ir­tæk­inu frá árinu 2007.

Bretar reyndu að kaupa

Kaup VISA Inc. á Visa Europe voru sam­þykkt í byrjun nóv­em­ber 2015. Það er því nokkuð síðan að þau voru gerð opin­ber og stjórn­endur Borgunar hafa vitað vel að þau standi til. Í byrjun des­em­ber síð­ast­lið­inn reyndi breska greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið UPG að kaupa allt hlutafé Borgunar hf. en Íslands­banki, sem á 63,5 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu, vildi ekki selja. Tilboðið sem UPG gerði var, sam­kvæmt frétt Vísis um málið, mun hærra en það sem Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun greiddi fyrir sinn hlut í nóv­em­ber 2015.

Bjarni biður menn að vera ekki með sleggjudóma

Bjarni Bene­dikts­son sagði í ræðu­stóli Alþingis í dag að magt hefði þegar komið fram um við­skiptin með eign­ar­hlut Lands­bank­ans í Borgun, meðal ann­ars það að að „virð­is­aukin í Borgun virð­ist hafa orðið af veru­legu leyti til eftir sölu Lands­bank­ans á sínum hlut í Borgun. Vegna þess að eftir að salan átti sér stað ákvað félagið að fara í útrás á erlenda mark­aði sem að er stór hluti þeirrar skýr­ingar sem er að baki auknu virði hluta­bréf­anna eða eign­ar­hlut­ar­ins, hlut­deild­ar­innar, í Visa Europe. Að öðru leyti hef ég í sjálfu sér engar for­sendur til að fara inn í þetta mál. En ég styð að sjálf­sögðu ef menn vilja skoða með ein­hverjum hætti hvernig þessi mál hafa gengið fram í rík­is­fyr­ir­tæki. Þá verða menn bara að fara eftir réttum boð­leiðum, óska eftir því við Banka­sýsl­una eða eftir atvikum stjórn bank­ans. Ég er ekki í nokkrum ein­asta vafa um það að stjórn bank­ans eða stjórn­endur eru reiðu­búnir að koma fyrir þing­nefnd­ina [stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd], eins og þeir hafa áður gert, og gera grein fyrir þessum hlutum.“

Hann bað menn líka um að gefa sér tíma til að skoða málið og að vera ekki með sleggju­dóma. Það ætti að gefa stjórn­endum Lands­bank­ans tæki­færi á að koma fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd eins og þeir hefðu áður gert til að útskýra mál sitt. „Á end­anum held ég að það væri ágætt að menn hug­leiddu það hversu mik­il­vægt það er í öllu þessu ljósi til þess að draga úr tor­tryggni að koma þessum eign­ar­hlutum út til almenn­ings. Þá geta menn verið alveg viss um að það sé ekki ein­hvers­staðar verið að toga í spotta eins og sífellt er verið að halda fram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár