Fimmtíu staðfest smit í landinu

Fimmtíu manns eru nú með stað­fest virkt smit af kór­ónu­veirunni sem veldur COVID-19. 287 eru komnir í sótt­kví. Slíkur fjöldi hefur ekki verið með COVID síðan í byrjun maí.

Fimmtíu manns eru nú með stað­fest virkt smit af kór­ónu­veirunni sem veldur COVID-19. 287 eru komnir í sótt­kví. Slíkur fjöldi hefur ekki verið með COVID síðan í byrjun maí.

Í gær­morgun voru 39 manns í ein­angrun og hafði þá stað­festum smitum fjölgað um 10 á milli daga Þá voru 215 í sótt­kví en í dag er fjöld­inn orð­inn 287. Einn sjúk­lingur með COVID-19 liggur á Land­spít­al­anum.

[links]Öll smitin sem greindust í gær eru inn­an­lands­smit sem þýðir að hinir sýktu smit­uð­ust hér á landi. 21 nýtt til­felli hefur bæst við á tveimur sól­ar­hringum.

Yfir 70 þús­und sýni hafa verið tekin inn­an­lands frá því að far­ald­ur­inn kom upp í lok febr­úar. Um 62 þús­und sýni hafa verið tekin á landa­mær­unum frá því skimun þar hófst 15. júní. Yfir 23 þús­und hafa farið í sótt­kví á ein­hverjum tíma­punkti síð­ustu mán­uði.

Íslensk erfða­grein­ing greindi 1.350 sýni í gær og af þeim reynd­ist eitt jákvætt fyrir veirunni. 265 sýni voru tekin til grein­ingar á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala. Tíu sýn­anna reynd­ust jákvæð.

Á Íslandi hafa nú alls 1.885 greinst með COVID-19.

[adspot]

Fjöldasamkomur fleiri en 100 bannaðar

Á hádegi í dag, föstu­dag, taka gildi hertar tak­mark­anir á sam­komum vegna far­sótt­ar­innar. Meg­in­breyt­ingin felst í því að fjölda­tak­mörkun á sam­komum lækkar úr 500 í 100 og 2 metra reglan tekur aftur gildi á milli ein­stak­linga sem ekki deila heim­ili.

Í aug­lýs­ingu heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mark­an­irnar kemur fram að í þeim felist að fjölda­sam­komur þar sem fleiri en 100 ein­stak­lingar koma saman eru óheim­ilar, hvort sem er í opin­berum rýmum eða einka­rýmum. Er þá m.a. vísað til:

a. Ráð­stefna, mál­þinga, úti­funda o.þ.h.

b. Kennslu, fyr­ir­lestra og prófa­halds, sbr. þó 1. mgr. 8. gr.

c. Skemmt­ana, svo sem tón­leika, leik­sýn­inga, bíó­sýn­inga, íþrótta­við­burða og einka­sam­kvæma.

d. Kirkju­at­hafna hvers konar, svo sem vegna útfara, gift­inga og ferm­inga, og ann­arra trú­ar­sam­koma.

e. Annarra sam­bæri­legra við­burða með fleiri en 100 ein­stak­lingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnu­stöðum og í allri starf­semi að ekki séu á sama tíma fleiri en 100 ein­stak­lingar inni í sama rými.

Í starf­semi sem eðlis síns vegna krefst meiri nálægðar en tveggja metra, svo sem í heil­brigð­is­þjón­ustu, á hár­greiðslu­stofum, nudd­stofum og í almenn­ings­sam­göngum, skal nota and­lits­grímu sem hylur nef og munn þar sem fjar­lægð milli ein­stak­linga verður ekki við­komið.

Tak­mark­an­irnar verða end­ur­skoð­aðar dag­lega en þær gilda ann­ars til 13. ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár