Rök gríma getur aukið sýkingarhættu – aðeins skal nota hverja grímu í 4 tíma

Rök og skítug gríma gerir ekk­ert gagn og getur aukið sýk­ing­ar­hættu. Einnota gríma, sem notuð er oftar en einu sinni, gerir ekk­ert gagn og getur aukið sýk­ing­ar­hættu. Ekki er mælt með almennri grímunotkun á almanna­færi hér á landi.

Ekki er mælt með notkun gríma á almannafæri. Þeim ber að henda í almennar sorptunnur eftir notkun.
Ekki er mælt með notkun gríma á almanna­færi. Þeim ber að henda í almennar sorp­tunnur eftir notkun. Mynd: EPA

Frá hádegi í dag, föstu­dag, taka hertar aðgerðir vegna hraðrar útbreiðslu COVID-19 hér á landi síð­ustu daga gildi. Það verður aftur regla að halda 2 metra fjar­lægð en við aðstæður þar sem ekki er hægt að hafa tveggja metra fjar­lægð á að nota hlífð­ar­grímu sem hylur munn og nef.

Í leið­bein­ing­unum, sem birtar voru í gær­kvöldi, nokkrum klukku­tímum eftir að hertar aðgerðir voru kynntar, er ítrekað að þegar hægt sé að tryggja 2 metra á milli ein­stak­linga þurfi ekki að nota hlífð­ar­grímu „og ekki er mælt með almennri notkun grímu á almanna­færi“.

Þá er eft­ir­far­andi tekið skýrt fram að hlífð­ar­gríma kemur aldrei í stað almennra sýk­inga­varna sem alltaf skal við­hafa: hand­hreinsun, almennt hrein­læti og þrif á snerti­flötum. Þá kemur hlífð­ar­gríma ekki í stað 2 metra regl­unnar t.d. í versl­unum og skemmti­stöðum

Hlífð­ar­grímur á að nota hér á landi við eft­ir­far­andi aðstæður:

  • Í öllu áætl­un­ar­flugi, inn­an­lands og milli landa.
  • Í far­þega­ferjum ef ekki er hægt að hafa 2 metra fjar­lægð milli ein­stak­linga. Athugið að ekki er þörf fyrir grímu ef far­þegar sitja í eigin far­ar­tæki, lok­uðu, í ferj­unni.
  • Í öðrum almenn­ings­sam­göngum, ef ekki eru gerðar ráð­staf­anir til að 2 metra fjar­lægð sé milli ein­stak­linga. Sér­stak­lega er mik­il­vægt að nota grímu í rútum frá flug­velli, eftir sýna­töku á landa­mærum og á lengri leiðum með hóp­ferða­bílum, en í inn­an­bæj­ar­sam­göngum þar sem ferð er gjarnan 15-30 mín­útur. Fyrst og fremst, ættu ein­stak­lingar í áhættu­hópum að nota grímu.
  • Við þjón­ustu við ein­stak­linga sem krefst návígis, s.s. snyrt­ingu, nudd, sjúkra­þjálfun, við tann­lækn­ingar, við augn­lækn­ingar og við heima­hjúkrun.
  • Í öllum öðrum aðstæðum gilda reglur um fjölda­tak­mark­anir og 2 metra fjar­lægð milli ein­stak­linga og geta hlífð­ar­grímur ekki komið í stað þess.

Ekki er gerð krafa um að börn fædd 2005 og síðar beri grímur.

Eiga að grípa dropa

Hlutverk hlífð­ar­grímu er að grípa dropa sem koma úr önd­un­ar­vegi þess sem ber hana svo þeir dreif­ist ekki um umhverfið. „Þetta gerir að verkum að notuð hlífð­ar­gríma er mjög menguð af örverum sem eru alla jafna í munn­vatni,“ segir í leið­bein­ing­unum. Því þarf að gæta ítrasta hrein­lætis við notkun grím­urnar, snerta þær sem minnst og skipta um grímu þegar hún er orðin rök eða skemmd á ein­hvern hátt. Alltaf þarf að þvo eða spritta hendur eftir snert­ingu við not­aðar hlífð­ar­grímur.

Æski­leg­ast er að nota einnota hlífð­ar­grímur sem hent er eftir notkun í almennt sorp og þvo hendur eða spritta eftir snert­ingu við grímuna. Æskilegt er að miða að hámarki við fjórar klukku­stundir upp­safn­aða eða sam­fellda notkun og henda þá grímunni.

Margnota grímur úr taui má einnig nota en nauð­syn­legt er að þær séu úr efni sem má þvo og þarf að lág­marki að þvo þær dag­lega. Sama gildir um margnota grímur og einnota grímur, þær meng­ast að utan og því á að snerta þær sem allra minnst og þvo eða spritta hendur á eftir. Nánari leið­bein­ingar um slíkar grímur eru vænt­an­legar.

Að lokum er áréttað:

  • Ekki er mælt með almennri grímunotkun á almanna­færi
  • Rök og skítug gríma gerir ekk­ert gagn og getur aukið sýk­ing­ar­hættu
  • Einnota gríma, sem notuð er oftar en einu sinni, gerir ekk­ert gagn og getur aukið sýk­ing­ar­hættu
  • Hlífð­ar­gríma, sem hylur ekki bæði nef og munn, gerir ekk­ert gagn
  • Hlífð­ar­gríma, sem er höfð á enni eða undir höku, gerir ekk­ert gagn
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár