Hafa ekki efni á nauðsynlegum lækningum

Bein kostn­að­ar­þát­taka sjúk­linga vegna heil­brigð­is­þjón­ustu hefur nær tvö­fald­ast á síð­ustu þremur ára­tugum, sam­kvæmt skýrslu ASÍ. Kona með krabba­mein þurfti að greiða hálfa milljón vegna læknis­kostn­aðar. Ráðherra boðar breyt­ingar.

Fjöldi Íslendinga neitar sér um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu ár hvert vegna fjárskorts.
Fjöldi Íslend­inga neitar sér um nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu ár hvert vegna fjár­skorts. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kostn­að­ar­þátt­taka sjúk­linga vegna heil­brigð­is­þjón­ustu hefur nær tvö­fald­ast und­an­farna ára­tugi og tölu­verður fjöldi lands­manna neitar sér um nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu vegna kostn­aðar ár hvert. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) um kostnað almenn­ings vegna læknis- og heil­brigð­is­þjón­ustu. Þeir tekju­lægri neita sér frekar um lækn­is­þjón­ustu en þeir tekju­hærri.

Samkvæmt ASÍ standa heim­ilin undir um 20 pró­sent af öllum heil­brigðis­út­gjöldum með beinni þátt­töku í heil­brigð­is­kerf­inu. Þá er bent á rann­sókn Eurostat, þar sem fram kemur að mun stærri hluti fólks sem sækir sér ekki nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu vegna kostn­aðar er hér á landi en í nágranna­lönd­unum. Um þrjú pró­sent Íslend­inga segj­ast ekki hafa sótt sér nauð­syn­lega lækn­is­þjón­ustu vegna kostn­aðar, sam­an­borið við 0,5 pró­sent á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Krabbameinið kostaði hálfa milljón

Tekið er dæmi af konu sem greind­ist með ill­vígt krabba­mein vorið 2013 og fór í lang­vinna lyfja­með­ferð í kjöl­farið og hefur síðan þurft lyfja­gjafir og rann­sóknir að jafn­aði þrisvar til fjórum sinnum í mán­uði. Á árinu 2013 greiddi hún beint ríf­lega 142.000 krónur í komu­gjöld og rann­sóknir. Á árinu 2014 námu bein útgjöld hennar vegna þess­ara þátta ríf­lega 154.000 en í sept­em­ber það ár þegar veik­inda­réttur hjá atvinnu­rek­anda, rétt­indi í sjúkra­sjóði og réttur til sjúkra­dag­pen­inga frá Sjúkra­trygg­ingum var full­nýttur fékk konan úrskurð­aðan end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri og fór þá að greiða sam­kvæmt gjald­skrá örorku­líf­eyr­is­þega. Á árinu 2015 voru greiðslur vegna komu­gjalda og rann­sókna um 61.000 krónur. Að auki hefur konan haft lyfja­kostnað sem nemur um 50.000 krónum á ári. Meðferð er ólokið. Heild­ar­kostn­aður sjúk­lings­ins vegna veik­inda sinna á þessu þriggja ára tíma­bili nemur því um 500.000 krónum.

Fimmtungur fer ekki til tannlæknis

„Það vekur líka athygli að mik­ill munur er á svörum eftir tekjum en meðal tekju­lægsta hóps­ins hér á landi eru um 6% sem hafa ekki sótt sér lækn­is­þjón­ustu vegna kostn­aðar en 0,6% meðal þeirra tekju­hæstu,” segir í skýrsl­unni. „Þegar skoð­aðar eru tölur um tann­lækna­þjón­ustu er myndin enn verri en nærri fimmt­ungur tekju­lægsta hóps­ins hér á landi seg­ist ekki hafa sótt sér tann­lækna­þjón­ustu vegna kostn­aðar.”

Í skýrsl­unni er farið ítar­lega yfir flest­öll svið íslenskrar heil­brigð­is­þjón­ustu og kostn­að­ar­þátt­taka ólíkra sam­fé­lags­hópa til­tekin í hverjum og einum. Þá eru einnig tekin raun­veru­leg dæmi af sjúk­lingum.

Sífellt meiri áhersla hefur verið lögð á að veita sjúk­lingum þjón­ustu án inn­lagnar á sjúkra­hús og er göngu­deild­ar­þjón­usta stór liður í því. Þjónusta við sjúk­linga sem leggj­ast inn á sjúkra­hús er að jafn­aði gjald­frjáls en sjúk­lingar sem sækja þjón­ustu á bráða­mót­töku eða göngu­deildir sjúkra­húsa greiða fyrir hana, er fram kemur í skýrsl­unni.

Ráðherra segir kerfið kolrangt

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra sagði á borg­ara­fundi RÚV um heil­brigð­is­mál í síð­ustu viku varð­andi kostn­að­ar­þátt­töku sjúk­linga að kerfið væri „kol­rangt” og í því sé vit­laust gefið. Það sé flókið, ógegn­sætt og ekk­ert heild­ar­yf­ir­lit sé til um hvar sjúk­lingar lendi í kerf­inu. Kristján boð­aði á mál­þing­inu nýtt frum­varp sem myndi stokka upp í kerf­inu og byggi á til­lögum þverpóli­tískrar nefndar um Pétur Blöndal, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, veitti for­ystu áður en hann lést.

Kristján sagði að frum­varpið myndi setja þak á greiðslu­hlut­deild sjúk­linga, sem myndi helst nýt­ast þeim sem mest þurfi að borga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár