„Ósamhverf og óskýr“ fjármálastefna

Hætta er á laus­ung í stjórn opin­berra fjár­mála með nýrri fjár­mála­stefnu ef hag­vöxtur verður meiri en búist var við, sam­kvæmt nýju áliti fjár­mála­ráðs.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Fjár­mála­ráð telur að til­lögð fjár­mála­stefna rík­is­stjórn­ar­innar sé „ósam­hverf og óskýr“ þar sem hún leyfir mik­inn halla­rekstur í kreppu en veiti ekki aðhald ef hag­vöxtur er meiri en búist var við. Þetta kemur fram í umsögn fjár­mála­ráðs sem lagt var fram á Alþingi í dag.

Vill rýmka skilyrði til að bregðast við kreppunni

Umsögnin var lögð fram vegna breyt­inga sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra lagði til á fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í síð­ustu viku til að bregð­ast við atvinnu­leysi sem gæti orðið til vegna yfir­stand­andi efna­hag­skreppu.

Breyt­ing­arnar snúa fyrst og fremst að því að núver­andi fjár­mála­stefnu, sem gildir fyrir árin 2018-2022, verði breytt þannig að halli á rekstri hins opin­bera verði að hámarki 7-16 pró­sent af lands­fram­leiðslu.

Þetta bil er að með­töldu ákveðnu svig­rúmi sem fer eftir því hvernig efna­hags­á­standið þró­ast á næstu þremur árum, en rík­is­sjóður hefur heim­ild til þess að auka opin­ber útgjöld ef hag­vöxtur er minni en búist var við.

Hætta á lausung

Samkvæmt umsögn fjár­mála­ráðs á til­lög­unum er vanda­samt að byggja stefnu­mörkun opin­berra fjár­mála á hag­spám á þessum tímum, þar sem meiri óvissa ríkir um hag­þróun en nokkru sinni áður. Þessi óvissa end­ur­speglist í því breiða bili sem rík­is­út­gjöldum er gefin í til­lagðri fjár­mála­stefnu.

Einnig vill fjár­mála­ráð meina að ekki komi nægi­lega skýrt fram hvert aðhaldið á rík­is­fjár­málum sé verði efna­hags­þró­unin hag­felld­ari en nú er gert ráð fyrir og segir stefn­una vera ósam­hverfa og óskýra að því leyti. „Ef áfallið verður minna er viss hætta á að laus­ung skap­ist í fjár­mála­stjórn­inni,“ segir í umsögn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár