Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna, hefur tilkynnt að hann sækist eftir því að leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi kosningum. Hann starfaði áður sem öldrunarlæknir og sat í bæjarstjórn Kópavogs frá 2006-2017.
Ólafur Þór var í öðru sæti á lista flokksins í síðustu kosningum þegar Rósa Björk Brynjólfsdóttir leiddi Vinstri græn í Kraganum. Hún studdi hins vegar ekki myndun núverandi ríkisstjórnar og sagði sig úr flokknum í fyrra. Skömmu síðar gekk hún til liðs við Samfylkinguna og verður í framboði fyrir hana í Reykjavík í komandi kosningum, sem fram fara í september.
Fastlega er búist við því að Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra og varaformaður Vinstri grænna, muni einnig sækjast eftir því að leiða í Kraganum, en hann er ekki kjörinn þingmaður eins og stendur. Nokkuð ljóst þykir að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra muni áfram vera í fyrsta sæti á listum Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmunum og líklegt að Guðmundur Ingi muni því ekki sækjast eftir sæti þar.
Það stefnir því í oddvitaslag í Kraganum hjá Vinstri grænum.
[adspot]Í tilkynningu frá Ólafi Þór segir að hann hafi á þingi beitt sér sérstaklega fyrir málefnum eldra fólks og velferðarmálum almennt. „Ég hef lagt fram fjölda þingmála í þá veru, m.a. um réttindi eldra fólks, þjónustu við aldraða og stöðu þeirra í samfélaginu. Þá hef ég einnig lagt mikla áherslu á heilbrigðismál, uppbyggingu öflugs opinbers heilbrigðiskerfis og eflingu heilsugæslunnar. Ég hef víðtæka reynslu af heilbrigðis og velferðarmálum, eftir að hafa starfað á þeim vettvangi í um 30 ár. Þá hef ég einnig starfað sem bæjarfulltrúi í stóru sveitarfélagi og hef því skilning á þörfum sveitarfélaganna og íbúa þeirra, og mikilvægi góðrar þjónustu við íbúa. Umhverfismál og hvernig þau snerta þéttbýlið sérstaklega hafa einnig verið mér hugleikin, t.a.m. loftgæði í þéttbýli, Borgarlína, umferðarmál og skipulagsmál í þéttbýli yfirleitt.“
Verkefnin séu víða við frekari uppbyggingu velferðarsamfélagsins. „Við þurfum að ljúka byggingu Landspítalans, halda áfram að efla heilsugæsluna og byggja upp öldrunarþjónustu í samvinnu við sveitarfélögin. Það er nauðsynlegt að stíga djörf skref í umhverfismálum og náttúruvernd. Loftslagsmál eru mál sem varða okkur öll og framtíð barnanna okkar og komandi kynslóða.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir