„Þetta er alls ekki búið“

„Við megum ekki slaka á,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. „Þetta er alls ekki búið.“ Var­úð­ar­ráð­staf­anir séu „klár­lega“ komnar til að vera í ein­hverja mán­uði í við­bót.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Í gær greindust 39 ein­stak­lingar með COVID-19 hér á landi. Það er nokkur aukn­ing frá því í fyrra­dag sem skýrist þó mögu­lega af því að færri sýni voru tekin í gær en dag­ana á undan.

Frá 15. sept­em­ber hafa 446 greinst með COVID-19 hér á landi. Talsverð sveifla er á milli daga sem að sögn Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis skýrist að ein­hverju leyti í sveiflu í fjölda sýna sem tekin eru frá degi til dags.

Lang­flestir þeir sem greindust í gær, þar á meðal fjórtán manna áhöfn línu­báts, var í sótt­kví við grein­ingu. Þar sem línu­bát­ur­inn var úti á sjó er hópsmit kom upp um borð er að sögn Þórólfs litið svo á að áhöfnin hafi verið í sótt­kví.

Sótt­varna­læknir sagði þar sem meiri­hluti fólks sem væri að grein­ast væri í sótt­kví við grein­ingu væri sam­fé­lags­legt smit ekki útbreitt. Það væri ánægju­legt og „senni­lega erum við á réttri leið en ekki má mikið út af bregða svo að hóp­sýk­ingar komi upp,“ sagði Þórólfur á upp­lýs­inga­fundi dags­ins.

Fimm liggja á sjúkra­húsi vegna COVID-19, þar af einn á gjör­gæslu­deild.

Fimm pró­sent þeirra sem fara í sótt­kví hafa greinst með sýk­ingu síðar og á næst­unni munum við því fara að greina tölu­verðan fjölda sem nú er í sótt­kví með sýk­ing­una, sagði Þórólfur. Undir það þurfum við að vera búin. „Sam­fé­lags­smitin eru að ganga hægt niður og það er ánægju­legt.“

Hins vegar væri fjölgun í inn­lögnum á sjúkra­hús áhyggju­efni þó að það væri óvið­búið. Toppnum í veik­indum verður mögu­lega náð á næstu dögum, sagði hann um þann hóp sem nú hefur sýkst þar sem ein­kenni koma oft­ast fram í annarri viku frá grein­ingu.

[links]Þórólfur sagði að ennþá væri mjög brýnt að allir við­hafi ítar­legar sýk­inga­varnir og sagði enn fremur lík­legt að við­hafa þurfi var­úð­ar­ráð­staf­anir næstu mán­uð­ina. Hann sagð­ist hins vegar ekki telja ástæðu til að grípa til hertra aðgerða inn­an­lands núna en ítrek­aði að það væri þó í sífelldri end­ur­skoðun. „Við megum ekki slaka á,“ sagði hann, „þetta er alls ekki búið.“

Brýnt væri að nýta á þekk­ingu sem við hefðum fengið í far­aldr­inum í vetur. Það hefði hann m.a. gert hvað varðar aðgerðir sem gripið er til. Nú eru álíka margir í ein­angrun vegna COVID og voru um 20. mars en þá voru aðgerðir mun harð­ari en nú.

Tíu dagar frá síðustu aðgerðum

Staðan er núna sú að sam­fé­lags­smitum sé að fækka en að búast megi við fleiri smitum meðal þeirra sem eru í sótt­kví á næst­unni. Sagði hann skyn­sam­legt að beita aðgerðum hóf­lega svo að sam­fé­lags­skað­inn verði sem minnstur. En ef á þurfi að halda verði aðgerðir hertar á ný. „Núna erum við komin tíu daga frá síð­ustu aðgerðum hér og við sjáum góðan árangur núna. Þá er til­efni til að bíða með harð­ari aðgerðir.“

Hvað aðgerðir við landa­mærin varðar sagði Þórólfur það sitt mat, út frá sótt­varna­sjón­ar­miðum, að halda ætti áfram þeim aðgerðum sem eru í gildi núna; tvö­faldri skimun með sótt­kví á milli. Far­ald­ur­inn væri að breið­ast hratt út í mörgum löndum í kringum okkur og nú væri farið að grípa til harð­ari aðgerða við landa­mæri ýmissa landa en gert er hér.

Hann benti hins vegar á að það væri stjórn­valda að ákveða hvernig fyr­ir­komu­lagið verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár