Víðir: Viljum við búa í samfélagi með mjög miklu lögreglueftirliti?

„Ég er ekki nú sér­stak­lega spenntur fyrir því að hér sé lög­reglan að banka á dyr og kanna hvort að fólk sé í sótt­kví eða ekki. Mér finnst það ekki spenn­andi veru­leiki,“ segir Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Mynd: Lögreglan

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, segir að ábend­ingum sem ber­ast um hugs­an­leg brot á sótt­kví sé fylgt eftir og að hægt sé að beita sekt­ar­greiðslum líkt og gert var gagn­vart erlendum ferða­mönnum sem hand­teknir voru í miðbæ Reykja­víkur um helg­ina. Haft var eftir Ásgeiri Þór Ásgeirs­syni yfir­lög­reglu­þjóni á frétt RÚV í dag að fólkið hafi ekki ætlað sér að vera í sótt­kví eftir kom­una til lands­ins og því hafi athæfi þeirra verið metið sem ásetn­ings­brot.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag var Víðir spurður hvort að til­efni væri til að herða eft­ir­lit með þeim sem koma hingað til lands.

[adspot]

„Þetta er grund­vall­ar­spurn­ing um í hvernig sam­fé­lagi við viljum búa,“ svar­aði Víðir. „Viljum við búa í sam­fé­lagi með mjög miklu lög­reglu­eft­ir­liti eða í sam­fé­lagi þar sem við treystum borg­ur­unum?“

[links]Hann sagði að reynt væri að feta milli­veg­inn. Ábend­ingum um hugs­an­leg brot á sótt­kví sé fylgt eftir og ef grunur sé uppi um slíkt sé til rammi sem grípi þau mál, eins og hann orð­aði það, líkt og gerð­ist í til­felli ferða­mann­anna um helg­ina. Þeim var gert að greiða sekt og eru farnir úr landi. Víðir sagði að getan til eft­ir­lits væri til staðar. Sérstakt eft­ir­fylgni­teymi tékkar t.d. á öllum þeim sem ekki skila sér í seinni skimun eftir kom­una til lands­ins.

„Ég veit ekki hvað við eigum að gera meira í eft­ir­liti,“ sagði Víðir. „Ég er nú ekki sér­stak­lega spenntur fyrir því að hér sé lög­reglan að banka á dyr og kanna hvort að fólk sé í sótt­kví eða ekki. Mér finnst það ekki spenn­andi veru­leiki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár