Hve marga rafbíla þyrfti að kaupa fyrir alla notendur Strætó?

Hópur sem telur Borg­ar­línu of dýra fram­kvæmd og vill byggja meira undir einka­bíla viðr­aði nýlega þá hug­mynd að færa öllum not­endum Strætó lít­inn raf­bíl að gjöf. Það væri ódýr­ara og betra fyrir lofts­lagið. Kjarninn skoð­aði hversu marga raf­bíla þyrfti til.

Það þyrfti líklega um 17.500 rafbíla fyrir alla þá sem nýttu sér strætó að jafnaði á degi hverjum áður en faraldurinn skall á.
Það þyrfti lík­lega um 17.500 raf­bíla fyrir alla þá sem nýttu sér strætó að jafn­aði á degi hverjum áður en far­ald­ur­inn skall á. Mynd: Skjáskot úr myndbandi ÁS

Í nýlegu mynd­bandi frá hópi sem kallar sig Áhugahóp um sam­göngur fyrir alla var því velt upp, annað hvort í gríni eða alvöru, hvort kaupa mætti raf­bíla fyrir alla þá sem nota stræt­is­vagna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag í stað þess að ráð­ast í upp­bygg­ingu Borg­ar­línu.

Í mynd­band­inu var vísað til þess að „gár­ungar“ hefðu bent á að ódýr­ara og lofts­lagsvænna væri að kaupa lít­inn raf­bíl handa öllum sem nota stræt­is­vagna en að ráð­ast í fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu á hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.[links]

„Gárungar hafa bent á að mun auð­veld­ari leið til að menga minna og þar með færa okkur nær lofts­lags­mark­mið­unum, væri að afhenda stræt­is­vagnaf­ar­þegum lít­inn raf­bíl að gjöf, gegn því að þeir hætti að taka Strætó. Það myndi kosta álíka og umrædd Borg­ar­lína og væri mun skyn­sam­ari fjár­fest­ing út frá lofts­lags­mark­mið­unum séð,“ sagði í mynd­bandi hóps­ins.

Kjarn­anum lék for­vitni á að vita hversu marga raf­bíla þyrfti að kaupa og hvað það gæti kostað. Blaða­maður hafði sam­band við Strætó til þess að fá upp­lýs­ingar um fjölda þeirra sem nýta sér þjón­ustu almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Um 17.500 notendur á venjulegum vetrardegi fyrir veiru

Samkvæmt svari frá Strætó, sem mið­ast við jan­úar og febr­úar árið 2020, voru að með­al­tali tæp­lega 44 þús­und inn­stig í stræt­is­vagna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hægt er að gefa sér að um það bil 20 pró­sent þess­ara inn­stiga hafi verið vegna skipt­inga á milli strætó­leiða. Þá væri um að ræða 35 þús­und ferðir hjá 17.500 ein­stak­lingum.

Gróf nið­ur­staða sam­göngu­sér­fræð­inga Strætó er því að það þyrfti um 17.500 raf­bíla til þess að koma til móts við þá sem nýta Strætó til að fara ferða sinna á virkum dögum í jan­úar og febr­úar í venju­legu árferði. Svarið mið­ast við aðstæður í venju­legu árferði, þegar ekki er heims­far­aldur, en eins og oft hefur komið fram hefur strætófar­þegum fækkað umtals­vert vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

Síðan er það opin spurn­ing hvernig not­enda­hópur Strætó ætti að vera skil­greindur, með til­liti til þess hverjir ættu að fá gef­ins raf­bíl. Samkvæmt könnun sem Zenter gerði fyrir Strætó í nóv­em­ber árið 2019 sögð­ust 15,4 pró­sent íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nota Strætó að minnsta kosti einu sinni í viku.

[adspot]

Þeir sem tóku þátt í könn­un­inni voru allir yfir 18 ára aldri og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Strætó eru hlut­falls­lega fleiri börn og ung­lingar sem nota Strætó oftar en einu sinni í viku en þeir sem full­orðnir eru. Ef gefa ætti 15 pró­sentum allra íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu raf­bíl myndi það kalla á kaup yfir 35 þús­und raf­bíla. Margir not­endur Strætó eru þó ekki með aldur til að keyra.

Algengt verð á nýjum litlum raf­bíl er um það bil fjórar millj­ónir króna, en þeir ódýr­ustu sem eru á íslenskum mark­aði eru á um 3,7 millj­ónir króna, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum Veldu raf­bíl.

Ef við gefum okkur að yfir­völd fengju ágætan magn­af­slátt og 17.500 raf­bílar væru keyptir á þrjár millj­ónir króna handa dag­legum not­endum Strætó myndi það kosta rúma 52 millj­arða. Ef hins vegar það væri keyptur raf­bíll fyrir alla þá sem nota stræt­is­vagna eitt­hvað í hverri viku myndi það kosta helm­ingi meira, eða 105 millj­arða króna.

105 eða 210 kílómetra löng bílaröð

Þessir bílar myndu síðan að sjálf­sögðu taka sitt pláss í umferð­inni og borg­ar­um­hverf­inu, eins og aðrir bílar.

Ef 17.500 raf­bílum (4 metra löngum) væri raðað upp í röð með tveggja metra bil á milli myndi bíla­röðin vera 105 kíló­metra löng. Ef raf­bíl­arnir væru 35 þús­und tals­ins yrði bíla­röðin 210 kíló­metrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár