Lögleg spilling dýrkeyptari en sú ólöglega

Lawrence Lessig hélt erindi á kvöld­fundi á dög­unum en hann hefur verið ötull tals­maður þess að losna við svo­kall­aða stofn­ana­spill­ingu. Kjarninn fór á fund­inn og kann­aði málið.

Háskóla­pró­fess­or­inn og fyr­ir­les­ar­inn Lawrence Lessig var staddur á Íslandi fyrir skömmu og hélt tölu síð­ast­liðið mánu­dags­kvöld um póli­tíska spill­ingu. Hann er pró­fessor í stjórn­skip­un­ar­rétti við Harvard háskóla en hefur verið í rann­sókn­ar­leyfi á Íslandi og kynnt sér stjórn­ar­skrárum­ræð­una meðal ann­ars. Hann er einnig vin­sæll fyr­ir­les­ari og hefur komið fram í ýmsum póli­tískum spjall­þáttum vest­an­hafs. Hann var fram­bjóð­andi í for­vali Demókrata fyrir síð­ustu kosn­ingar en dró fram­boð sitt til baka í nóv­em­ber á síð­asta ári. Hann hefur lagt áherslu á spill­ingu í tali sínu, ekki síst þá sem leyn­ist í póli­tískum kerfum og stofn­unum.

Beinir athyglinni að löglegri spillingu

Lessig segir að hefð­bundið sé að hugsa um spill­ingu niður á við; glæp­sam­lega spill­ingu utan laga og sið­ferðis. Hann telur mik­il­vægt að byrja að hugsa öðru­vísi um spill­ingu og að fólk fari að hugsa um hana upp á við. „Spilling þar sem við hugsum ekki um glæp­sam­leg athæfi eða glæpa­menn. Áherslan þar sem ekki er horft á það sem er rangt,“ segir hann. Hann seg­ist vilja beina athygl­inni að lög­legri spill­ingu. Þeir sem taka þátt í slíkri spill­ingu gera ekki neitt ólög­legt en eru samt sem áður hluti af mein­inu.

[quote font="0" align="right“]Við erum ekki að tala um mútu­gjöf. Við erum ekki að tala um brot á neinum reglum sem til eru[/quote]

Þetta hefur áhrif á allar stofn­anir í sam­fé­lagi okkar og sér­stak­lega þær lýð­ræð­is­legu. Þess vegna kallar Lessig þetta ástand stofn­ana­spill­ingu. Til þess að úrskýra mál sitt ber hann lýð­ræð­is­stofn­anir við átta­vita. Segull er í lík­ing­unni eins og stofn­ana­spill­ing sem hægt er að nota til að rugla átt­irnar. Þessi stofn­ana­spill­ing er eins og fyrr segir ekki endi­lega glæp­sam­leg. „Við erum ekki að tala um mútu­gjöf. Við erum ekki að tala um brot á neinum reglum sem til eru,“ segir Lessig. Hann á frekar við sér­stök áhrif sem hægt sé að hafa á stofn­anir.

Stofnanaspilling veikir kerfið

Hann segir að um stofn­ana­spill­ingu sé að ræða ef hún í fyrsta lagi veikir stofn­an­irnar sjálfar og í öðru lagi dragi úr trausti almenn­ings á þær. Lessig tekur sem dæmi lyfja­iðn­að­inn þar sem læknar eru fengnir til að meta lyf. Fólk spyr sig í fram­hald­inu hvort það breyti hegðun lækn­anna og vinnu­brögðum að fá borgað fyrir að kynna lyf og rýri þar af leið­andi traust til þeirra sem fag­manna. Sama á við um ýmsa fræði­menn og stjórn­mála­menn í Banda­ríkj­unum en margir fá borgað fyrir að halda fyr­ir­lestra og svo fram­vegis.

Lessig talar einnig um mats­fyr­ir­tæki í þessu sam­bandi. Mats­fyr­ir­tæki sjá um að meta stofn­anir, fyr­ir­tæki og efna­hags­kerfi landa og segja til um áhætt­una sem felst í fjár­fest­ingum á þeim. Hann segir að oft van­meti mats­fyr­ir­tæki þessa áhættu sem gerð­ist til dæmis í Banda­ríkj­unum árið 2008 og átti mik­inn hlut í hrun­inu á þessum tíma. Lessig segir að það skjóti í raun skökku við þar sem þessi mats­fyr­ir­tæki voru upp­runa­lega stofnuð til að vera áreið­an­legar heim­ildir um áhættu í fjár­fest­ingum. Allt í einu hafi þessi mats­fyr­ir­tæki ekki verið þessi trausta heim­ild vegna þess að við­skipta­líkanið var breytt. Núna væru það fyr­ir­tækin sjálf sem réðu mats­fyr­ir­tækin til að útbúa áhættu­mat.

Mats­fyr­ir­tæki séu þannig fjár­hags­lega háð útgef­endum skulda­bréfa vegna þess­ara við­skipta sem eiga sér stað. „Þessi breyt­ing hafði aug­ljósar afleið­ingar fyrir iðn­að­inn af því að útgef­endur gátu valið hvaða mats­fyr­ir­tæki þeir áttu í við­skiptum við. Og af því að mats­fyr­ir­tækin voru upp á þá komin þá fundu þau fyrir þrýst­ingi að gefa góða ein­kunn,“ segir hann. Þetta skapi þannig þrýst­ing á mats­fyr­ir­tækin, afbaki sam­keppni milli þeirra og skekki nið­ur­stöð­urnar. Ef litið er á þetta dæmi út frá stofn­ana­spill­ingu telur Lessig að þetta hafi skaðað mats­fyr­ir­tækin og traustið dvínað í fram­hald­inu.

Ekki fólkið sem hefur áhrif

Lessig bendir á að það þurfi ekki endi­lega vera að ein­hver sé að gera eitt­hvað rangt í ofan­greindum til­fellum. Enginn hafi endi­lega verið að brjóta lög eða reglur. En aftur á móti hafi verið að ýta undir hegðun sem býr til ákveðið kerfi sem hættir að þjóna upp­runa­legum til­gangi sínum.

[quote font="0" align="right“]Um heim allan er skiln­ing­ur­inn sá að svokölluð lýð­ræð­is­sam­fé­lög séu ekki í raun­inni að geta af sér kerfi sem almenn­ingur stjórnar sjálfur[/quote]

Önnur athuga­semd Lessigs varðar lýð­ræði. Hann segir að eftir seinni heim­styrj­öld­ina hafi háværar raddir kallað á lýð­ræði og að vanda­mál heims­ins myndu í raun leys­ast í fram­hald­inu. Að vissu leyti hafi það gengið eftir en núna standi fólk frammi fyrir þeirri spurn­ingu hvort það sé fólkið sjálft sem ræður. Lessig telur að svo sé ekki. „Um heim allan er skiln­ing­ur­inn sá að svokölluð lýð­ræð­is­sam­fé­lög séu ekki í raun­inni að geta af sér kerfi sem almenn­ingur stjórnar sjálfur,“ segir hann. Þannig verði spill­ing til vegna þess að lýð­ræðið sé ekki að þjóna fólk­inu.

Lýðræðið þróast í kringum fulltrúana

Lessig segir að í mörgum sam­fé­lögum sé sú skoðun að breið­ast út á meðal almenn­ings að lýð­ræðið þjóni yfir­stétt­inni. Full­trúar fólks­ins gangi ekki erinda þess heldur fámenns hóps fjár­sterkra aðila. Lýðræðið þjóni þess­ari yfir­stétt í gegnum kjörna full­trúa. Í Banda­ríkj­unum hafi til að mynda fjöldi atkvæða ekki ráð­andi áhrif hvernig kosn­ingar fara. Lessig segir að banda­rískt lýð­ræði hafi þannig fengið að þró­ast í kringum full­trúa sem þurfa að fjár­magna sína eigin kosn­inga­bar­áttu.

„Þessi fjár­mögnun tekur tíma og tekur það 30 til 70 pró­sent af tíma þing­manna að hringja til að betla þá pen­inga sem þeir þurfa til að kom­ast aftur á þing,“ segir hann og telur að þetta hafi áhrif á þing­menn­ina beint og óbeint. Þeir lagi skoð­anir sínar að því sem hentar. Að búa og starfa í slíku kerfi hlýtur að hafa áhrif, að mati Lessig, á hvernig þing­menn sjá heim­inn í kringum sig og haga sér. Hann segir að þetta hafi bein áhrif á lýð­ræðið.

Gagnsæi dugir ekki til

Lessig telur að spill­ing nái að grass­era inni í stofn­unum þar sem kosnir full­trúar gæta ekki hags­muna almenn­ings heldur ann­arra afla. Hann segir að almenn­ingur geri sér grein fyrir þessu og það skapi reiði og van­traust sem leiðir af sér popúl­isma. Þetta eigi ekki ein­ungis við í Banda­rík­unum heldur um heim allan.

Nokkrar leiðir eru til þess að koma í veg fyrir þessa stofn­ana­spill­ingu og hafa sumir nefnt gagn­sæi í því sam­bandi. „Ef við gætum ein­ungis séð meira þá gætum við komið í veg fyrir spill­ingu,“ segir Lessig en tekur það fram að það sé engan veg­inn nóg. Það sé mik­il­vægt að líta á hvernig gagn­sæi geti hjálpað. Stundum geti upp­lýs­ingar hjálpað til við að fletta ofan af spill­ingu en aftur á móti séu þær endrum og sinnum of flókar fyrir almenn­ing til að vinna úr og þá dugi gagn­sæið ekki til. Fólk innan kerf­is­ins gæti orðið fyrir áhrifum sem ekki er mögu­leiki að sjá vegna þess að þau eru kerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

spilling

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár