Ríkisstjórnin hefur ekki notið meiri stuðnings síðan snemma árs 2018

Ljóst er að kór­ónu­veiran er að hafa mikil áhrif á hið póli­tíska lands­lag. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir bæta allir við sig fylgi, frjáls­lyndu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir standa í stað en Mið­flokk­ur­inn tapar umtals­verðu fylgi.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur rokið upp í stuðningi síðastliðinn mánuð.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur rokið upp í stuðn­ingi síð­ast­lið­inn mánuð. Mynd: Bára Huld Beck

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur ekki mælst hærri í tvö ár, sam­kvæmt nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup. Hann eykst um 11,2 pró­sentu­stig frá könnun sem gerð var í lok febr­úar og er nú 59,4 pró­sent.

Síðast mæld­ist hann í þessum hæðum í lok mars 2018, þegar rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hafði ein­ungis setið að völdum í fjóra mán­uði.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt nýja þjóð­ar­púls­inum með 23,5 pró­sent fylgi. Hann eykur fylgi sitt um 1,5 pró­sentu­stig milli mán­aða. Hinir stjórn­ar­flokk­arnir tveir bæta líka við sig fylgi. Vinstri græn fara úr 11,9 í 13,3 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn úr sjö pró­sentum sléttum í 8,1 pró­sent. Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna er því fjórum pró­sentu­stigum hærra en það var fyrir mán­uði og sú fylg­is­aukn­ing dref­ist nokkuð jafnt á flokk­anna þrjá.

[adspot]Mið­flokk­ur­inn er sá flokkur sem tapar mestu fylgi milli mán­aða, fer úr 14,2 pró­sent í 11,2 pró­sent og missir því þrjú pró­sentu­stig. Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem er eini flokk­ur­inn sem mælist reglu­lega með nokk­urt fylgi án þess að eiga full­trúa á Alþingi, fer úr fimm pró­sentum í 3,2 pró­sent.

Sam­fylk­ingin bætir eilítið við sig og mælist nú með 15,1 pró­sent fylgi, Píratar dala aðeins og mæl­ast með 10,2 pró­sent, og Viðreisn bætir við sig tæpu pró­sentu­stigi og mælist með 11,1 pró­sent fylgi.

Flokkur fólks­ins stendur nán­ast í stað milli kann­ana og mælist með 4,2 pró­sent stuðn­ing.

Nið­ur­stöður sem hér birt­ast um fylgi flokk­anna á lands­vísu eru úr net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 2. til 29. mars 2020. Heild­ar­úr­taks­stærð var 10.352 og þátt­töku­hlut­fall var 54,8 pró­sent. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,1-1,3 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup. Vert er að taka fram að þetta er önnur könn­unin sem Gallup gerir í mars­mán­uði. 

fylgi mars 2020
Infogram

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár