Ráðgátur rifjaðar upp

Gillian Anderson barð­ist af hörku við feðra­veldið og David Duchovny fannst erfitt að verða Mulder aftur. CIA ýtir fram raun­veru­legum X-skrám og hand­rits­höf­undur við­ur­kennir ást við fyrstu sýn. X Files eru byrj­aðar aftur.

The X-Files hóf göngu sína á ný í Banda­ríkj­unum á sunnu­dag, eftir rúm­lega 13 ára hlé. Þætt­irnir verða sex tals­ins og segja, eins og áður, sögu alrík­is­lög­reglu­full­trú­anna Fox Mulder (David Duchovny) og Dana Scully (Gillian Anderson) þar sem þau kljást við erf­iðar geim­verur, yfir­nátt­úru­leg fyr­ir­bæri og spillt stjórn­völd.

Ráðgátur, eins og þætt­irnir voru kall­aðir á íslensku, voru einir vin­sæl­ustu sjón­varps­þættir heims á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Fyrsti þátt­ur­inn fór í loftið á sjón­varps­stöð­inni Fox þann 10. sept­em­ber 1993 og skaut þeim Duchovny, þá 33 ára, Anderson, 24 ára, á ógn­ar­hraða upp á stjörnu­him­in­inn. Á næstu 15 árum voru fram­leiddar 9 þátta­ser­íur af X Files og tvær bíó­myndir, The X-Files (1998) og The X Files: I Want to Believe (2008).

Fjöl­margar stór­stjörnur stigu sín fyrstu skref fyrir framan mynda­vél­arnar í þátt­unum, eins og Aaron Paul úr Breaking Bad, Lucy Liu, Michael Buble, Felicity Huffman og Giovanni Ribisi. 

CIA hoppar á X Files vagninn

Mark­aðs­setn­ingin í kring um X Files þegar þætt­irnir hófu fyrst göngu sína sner­ist mikið um að þeir væru byggðir á sönnum atburðum. Sem er að vissu leyti rétt, það er sá hluti að Leyni­þjón­usta Banda­ríkj­anna (CIA) hefur vissu­lega yfir að ráða mjög mörgum skjala­geymslum og kjöll­urum, fullum af leyni­legum skýrslum, svoköll­uðum X Files.

CIA ákvað hins vegar í síð­ustu viku að opna fyrir hluta þess­ara skýrslna, nokkrum dögun áður en þætt­irnir fóru í loftið á ný. Á heima­síðu leyni­þjón­ust­unnar var birt frétt undir fyr­ir­sögn­inni: Skoðaðu „X-skýrsl­urnar" okkar (e. Take a Peek Into our „X Files"). Skjöl­unum er skipt í tvo flokka, undir heit­unum: „Topp 5 skýrsl­urnar sem Mulder þráir að kom­ast í" og „Topp 5 skýrsl­urnar sem Scully þráir að kom­ast í." Skýrsl­urnar virð­ast allar snú­ast um fljúg­andi furðu­hluti og til­vist geim­vera. Almanna­tenglar CIA eru greini­lega að vinna fyrir kaup­inu sínu.

Feðraveldið í Hollywood

Það varð uppi fótur og fit í fjöl­miðla­heim­inum þegar Chris Carter, fram­leið­andi og höf­undur X-Files, til­kynnti í fyrra að ákveðið hefði verið að fram­leiða sex þætti til við­bótar eftir meira en ára­tugar hlé. Hvorki Duchovny né Anderson höfðu setið auðum höndum síðan þætt­irnir hættu í fram­leiðslu og höfðu bæði leikið í fjölda kvik­mynda og sjón­varps­þátta, m.a. Californication og The Fall.

Anderson var upp­haf­lega treg til þess að taka þátt í verk­efn­inu og leist ekki vel á hug­mynd­ina, en lét til leið­ast. Hún sagð­ist við Guardian von­ast til þess að aðdá­endur þátt­anna „verði ekki fyrir von­brigðum þegar þeir sjá Mulder og Scully með göngu­grindur.” 

Og eins og Hollywood er von og vísa, þá voru henni boðin helm­ingi lægri laun fyrir þætt­ina sex heldur en Duchovny - aftur. Hún fékk helm­ingi lægri laun en hann þegar þau byrj­uðu að gera þætt­ina 1993 og fram­leið­end­urnir reyndu að bjóða henni sömu kjör aftur: Miklu lægri laun heldur en karl­inn, með­leik­ari hennar.

Anderson var borgað mun minna en Duchovny í fyrstu þátta­röð­unum og var látin standa aftar en hann fyrir framan mynda­vél­ina, en ekki við hlið­ina á honum. Eftir nokkur ár af þessu lét hún ekki bjóða sér það lengur og mót­mælti mis­mun­un­inni þar til laun hennar voru hækkuð og vægi Scully aukið.

Og nú, eftir langar við­ræður við fram­leið­end­urna, voru laun hennar hækkuð fyrir nýju ser­í­una. Samkvæmt heim­ildum banda­rískra fjöl­miðla fengu Mulder og Scully að lokum jafn mikið borgað fyrir þætt­ina sex.

Mulder elskaði Scully frá fyrstu stundu

Duchovny segir í við­tali við The Collider að það hafi reynst honum erfitt að koma aftur á settið eftir svona langt hlé. 

„Mulder má hvorki stama né hika. Hann er með allt á hreinu, þekkir allar stað­reyndir, er snöggur og öruggur. Það er ekki auð­velt, sér­stak­lega ekki á fyrsta degi á setti,” segir hann. 

Fjórir af nýju þátt­unum verða sjálf­stæðar sögur en tveir fjalla um það sem hefur verið rauði þráð­ur­inn í hinum ser­í­unum - sög­una um hið stóra alls­herj­ar­sam­særi banda­rísku rík­is­stjórn­ar­innar (e. Myt­hology Episodes) sem lýtur að því að fela sann­leik­ann um til­vist geim­vera og þeirra fyr­ir­ætl­anir á jörðu.

Eins og oft vill ger­ast þegar karl og kona eru í aðal­hlut­verki þátta­sería, koma upp vanga­veltur um ást­ar­sam­band á milli þeirra. Það virð­ist vera erfitt fyrir áhorf­endur að sætta sig við að fólk af gagn­stæðu kyni geti unnið svo mikið og náið saman án þess að ástin blossi og Mulder og Scully eru þar engin und­an­tekn­ing. Chris Carter, höf­undur X Files, segir við The Daily Beast að Mulder hafi orðið ást­fang­inn af Scully um leið og hann sá hana fyrst. Ást við fyrstu sýn - eig­in­lega á báða bóga. En þegar þau hitt­ast aftur eftir ára­tuga aðskilnað, er neist­inn slokkn­aður.

Gagnrýnendur ekki hrifnir

Nýjasti X Files þátt­ur­inn fékk þó dræmar við­tökur hjá gagn­rýnendum vest­an­hafs. Hollywood Reporter sagði hann klaufa­legan, gagn­rýn­andi Enterta­in­ment Weekly varð fyrir von­brigðum, þó að hann væri mik­ill aðdá­andi gömlu þátt­anna og Tel­egraph sagði sam­sær­is­kenn­ing­arnar ekki eins fram­andi og áður í ljósi breyttra tíma með til­komu nets­ins. 

Ráðgátur voru fyrst sýndar á RÚV þegar þeir hófu göngu sína hér á landi en síðar keypti Stöð 2 sýn­inga­rétt­inn. X Files verða því sýndir á Stöð 2 og hefj­ast á sunnu­dags­kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár