Ályktanir Framsóknar í andstöðu við nokkur ríkisstjórnarfrumvörp

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hélt flokks­þing um helg­ina sem náði heldur betur athygli þjóð­ar­innar. Fyrir utan þrumu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra á föstu­dag, sem var þétt­setin tíð­indum, voru margar stefnu­mark­andi álykt­anir sam­þykktar af þing­inu.

Það vekur hins vegar athygli að hluti þeirra álykt­anna sem sam­þykktar voru á flokks­þing­ingu eru bein­leiðis í and­stöðu við frum­vörp og þings­á­lykt­un­ar­til­lögur sem rík­is­stjórn flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks hefur lagt fram að und­an­förnu.

Í andstöðu við ríkisfjármálaáætlun


Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði til að mynda fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um rík­is­fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2016 og 2019 í byrjun þessa mán­aðar. Áætlunin er mjög ítar­leg og sam­kvæmt henni er gert ráð fyrir að rík­is­sjóður skili að minnsta kosti tíu millj­arða króna afgangi á næsta ári og að afgang­ur­inn verði orð­inn nálægt 40 millj­örðum króna árið 2019. Til að ná þessum árangri gerið ríkið meðal ann­ars ráð fyrir að selja eign­ar­hluti sína í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, meðal ann­ars 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum.

Sá vilji Bjarna kemur raunar einnig fram í frum­varpi til laga um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem dreift var á vef Alþingis 1. apríl síð­ast­lið­inn. Samkvæmt því frum­varpi er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra falið að skipa ráð­gjafa­nefnd sem á að veita honum ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í bönkum. Á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins um helg­ina var hins vegar sam­þykkt ályktun um að Lands­bank­inn verði áfram í rík­i­s­eigu og starfi sem sam­fé­lags­banki þar sem mark­miðið er ekki að hámarka arð­semi.

Bankabónusar og höft


Flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins sam­þykkti einnig til­lögu Karls Garð­ars­sonar, þing­manns flokks­ins, um að bónusar í banka­kerf­inu verði alfarið bann­aðir. Afstaða Fram­sókn­ar­flokks­ins er í and­stöðu við þá stefnu um bónusa í fjár­mála­kerf­inu sem mörkuð er í frum­varpi sem Bjarni Bene­dikts­son lagði fram 31. mars síð­ast­lið­inn. Samkvæmt frum­varp­inu mega bón­us­greiðslur ekki verða hærri en 25 pró­sent af árs­launum starfs­manna í fjár­mála­geir­anum.

Þá vakti yfir­lýs­ing Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um stöð­ug­leika­skatt og yfir­vof­andi skref í átt að losun hafta í ræðu sinni á þing­inu mikla athygli. Um var að ræða hug­tak sem ekki hefur verið í umræð­unni áður, þótt margir telji að um sé að ræða útfærslu á svoköll­uðum útgöngu­skatti.

Bjarni Bene­dikts­son skil­aði grein­ar­erð um fram­gang áætl­unar um losun fjár­magns­hafta 18. mars síð­ast­lið­inn. Þar sagði að tvær leiðir væru færar til þess að taka á þeim greiðslu­jafn­að­ar­vanda sem Ísland stendur frammi fyrir við losun fjár­magns­hafta. Önnur er sú að eig­endur inn­lendra eigna veiti afslátt á þeim í skiptum fyrir erlendan gjald­eyri. Hin er sú að tryggja að kvikar eignir, þær sem eru lík­legar til að vilja fara út úr íslensku hag­kerfi við losun hafta, fær­ist í lang­tíma­eignir. Þar var ekki minnst einu orði á skatt­lagn­ingu.

Viðbyggingar og sjúkrahús


Raunar hefur fleira sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur lagt fram und­an­farna daga í and­stöðu við rík­is­fjár­mála­á­ætlun Bjarna Bene­dikts­sonar. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga Sig­mundar Davíðs um við­bygg­ingu við Alþing­is­húsið, bygg­ingu nýrrar Val­hallar á Þing­völlum og að gefa þjóð­inni nýtt húns undir stofnun Árna Magn­ús­sonar í full­veld­is­af­mæl­is­gjöf 1. des­em­ber 1918 felur í sér kostnað á annan tug millj­arða króna. Ekki er gert ráð fyrir þeim útgjöldum í rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­inni sem Bjarni lét dreifa til þing­heims sama dag og þings­á­lykt­un­ar­til­laga Sig­mundar Davíðs var lögð fyrir rík­is­stjórn­ina.

Yfir­lýs­ing Sig­mundar Davíðs um að hann vilji kanna hvort skyn­sam­legt væri að reisa nýtt hátækni­s­sjúkra­hús á lóð Rík­is­út­varps­ins við Efsta­leiti, sem hann opin­ber­aði í byrjun apríl, er auk þess í and­stöðu við fjár­lög árs­ins 2015, þings­á­lyktun um upp­bygg­ingu nýs Lands­spít­ala og yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar sem gefin var út í tengslum við verk­föll lækna. Þetta sagði Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra við RÚV í síð­ustu viku.

Skrifað var undir yfir­lýs­ing­una vegna kjara­samn­inga lækna 8. jan­úar 2015. Einn þeirra þriggja ráð­herra sem skrifa undir hana eru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár