Framsókn samþykkir tillögu um að banna bónusa í bankakerfinu

Flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins sam­þykkti í dag til­lögu Karls Garð­ars­sonar, þing­manns flokks­ins, um að bónusar í banka­kerf­inu verði alfarið bann­aðir. Karl greinir frá þessu í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni og seg­ist afskap­lega ánægður með þann mikla stuðn­ing sem til­lagan fékk. "Við eigum að vera leið­andi þjóð í þessum málum," segir Karl.

Afstaða Fram­sókn­ar­flokks er í and­stöðu við þá stefnu um bónusa í fjár­mála­kerf­inu sem mörkuð er í frum­varpi sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur lagt fram um breyt­ingar á lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki. Samkvæmt frum­varp­inu mega bón­us­greiðslur ekki verða hærri en 25 pró­sent af árs­launum starfs­manna í fjár­mála­geir­anum. Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja skil­uðu nýverið umsögn um frum­varpið þar sem fram kom að slík tak­mörkun á bón­us­greiðslum væri íþyngj­andi að þeirra mati. Samtökin lögðu til að evr­ópskur lag­ara­mmi yrði full­nýttur og fjár­mála­fyr­ir­tækjum gert kleift að greiða starfs­mönnum sínum á bil­inu 100 til 200 pró­senta af árs­launum í kaupauka.

Íslands­banki og Arion banki gjald­færðu sam­tals um 835 millj­ónir króna vegna kaupauka­greiðslna til starfs­manna sinna á síð­asta ári. Um hund­rað starfs­menn fá slíkar greiðslur hjá hvorum banka fyrir sig. Arion banki gjald­færði 477 millj­ónir króna í fyrram sem var 25 millj­ónum króna meira en árið á undan. Samtals hefur bank­inn því gjald­fært tæpan millj­arð króna vegna kaupa­auka­kerfis síns á síð­ustu tveimur árum. Íslands­banki gjald­færði 258 millj­ónir króna í fyrra, eða 17 millj­ónum krónum meira en árið 2013. Samtals nema kaupaukar til starfs­manna bank­ans því rúmum hálfum millj­arði króna á tveimur árum.

Vert er að taka fram að í sam­ræmi við reglur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins er greiðslu á að minnsta kosti 40 pró­sent kaupauka frestað um þrjú ár.







Lands­bank­inn, sem er að mestu í eigu rík­is­ins, er ekki með árang­urstengdar greiðslur. Um 1.400 núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn bank­ans fengu hins vegar 0,78 pró­sent gef­ins árið 2013 og fá greiddan arð vegna hans. Heild­ar­greiðslan verður um 200 millj­ónir króna. Gjörn­ing­ur­inn var liður í sam­komu­lagi frá árinu 2009, um fjár­hags­upp­gjör milli gamla og nýja Lands­bank­ans. Skatta­legt verð­mæti hluta­bréf­anna nam 4,7 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár