Hlutfall skulda ríkissjóðs fari niður fyrir 50% árið 2019

Fjár­mála­ráð­herra hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um rík­is­fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2016 til 2019. Þetta er í fyrsta sinn sem rík­is­fjár­mála­á­ætlun er sett fram á vor­þingi til umfjöll­unar, en til­lög­una í heild má sjá hér.

Í áætl­un­inni er gert ráð fyrir því að rík­is­sjóður skili að minnsta kosti tíu millj­arða króna afgangi á næsta ári og afgang­ur­inn verði orð­inn nálægt 40 millj­örðum króna árið 2019, og þannig orð­inn nær 1,5% af vergri lands­fram­leiðslu.

Í álykt­un­inni kemur fram að mik­il­væg­asta við­fangs­efnið í stjórn rík­is­fjár­mála sé að vinda ofan af skuldum sem ríkið axl­aði í kjöl­far hruns­ins. Samkvæmt áætl­un­inni á hlut­fall heild­ar­skulda rík­is­sjóðs af lands­fram­leiðslu að fara lækk­andi fram til árs­ins 2019, eins og sjá má í töfl­unni hér að neðan. Gert er ráð fyrir að hlut­fallið sé 68 pró­sent í lok þessa árs en verði komið niður fyrir 50 pró­sent í lok árs­ins 2019.

Nafn­virði skuld­anna lækkar þó um innan við tíu pró­sent á þessum tíma. Í árs­lok 2016 verða skuldir rík­is­sjóðs rúm­lega 1.340 millj­arðar en árið 2019 1.323,8 millj­arðar.

Þá er vert að minn­ast á að skuld­bind­ingar rík­is­ins vegna líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins eru ekki inni í rík­is­reikn­ingi, en í stefnu fjár­mála­ráð­herra kemur fram að skapa þurfi svig­rúm til að takast á við þessar skuld­bind­ingar. Eins og Kjarninn greindi frá fyrr í mán­uð­inum hyggst ríkið greiða inn á upp­safn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar opin­berra starfs­manna á næsta ári, því ann­ars fellur gjald­færsla upp á 20 millj­arða á ári á ríkið eftir 10 ár. Áætlað er að halli á þessum skuld­bind­ingum nemi 700 millj­örðum.

Áætlun stjórn­valda:

2016 2017 2018 2019
Heild­ar­tekjur 682,0 719,9 735,7 771,3
Heild­ar­gjöld 671,0 679,1 706,8 733,4
Heild­ar­jöfn­uður rík­is­sjóðs 11,0 40,8 28,9 37,9
Frum­jöfn­uður rík­is­sjóðs 71,5 100,3 87,3 93,4
Fjár­magns­jöfn­uður -60,5 -59,4 -58,4 -55,4
Heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs 1.340,3 1.326,9 1.367,3 1.323,8





















































Upp­söfnuð vaxta­gjöld rík­is­sjóðs frá banka­hrun­inu eru 580 millj­arðar króna á föstu verð­lagi árs­ins 2015. Ríkið gerir ráð fyrir því að selja eign­ar­hluti sína í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og öðrum félögum, end­ur­fjár­magna ekki hluta af skuld­settum gjald­eyr­is­forða lands­ins en end­ur­fjár­magna önnur lán með betri kjörum.

Í áætlun fjár­mála­ráð­herra kemur einnig fram að þrátt fyrir að jákvæð teikn séu á lofti séu líka ýmsir óvissu­þættir fyrir hendi. Einna helst sé óvissan fólgin í útkomu kjara­samn­inga og afnámi fjár­magns­hafta. Þó séu einnig hefð­bundnir þættir eins og afla­brestur eða dræm eft­ir­spurn í við­skipta­löndum. „Afnám hafta gæti einnig haft jákvæð áhrif á skulda­stöðu og vaxta­kostnað en eðli máls­ins sam­kvæmt eru slíkir óvissu­þættir ekki teknir inn í grunn­við­mið rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­ar­innar.“

Í spá Hagstofu Íslands, sem er vinnu­spá fyrir þessa áætlun, er gert ráð fyrir allt að þriggja pró­senta áfram­hald­andi hag­vexti og verð­bólgu við 2,5 pró­sent við­mið­un­ar­mörk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár