Greinargerð Bjarna: Tvær leiðir færar til að losa fjármagnshöft

Tvær leiðir eru færar til þess að taka á þeim greiðslu­jafn­að­ar­vanda sem Ísland stendur frammi fyrir við losun fjár­magns­hafta. Önnur er sú að eig­endur inn­lendra eigna veiti afslátt á þeim í skiptum fyrir erlendan gjald­eyri. Hin er sú að tryggja að kvikar eignir, þær sem eru lík­legar til að vilja fara út úr íslensku hag­kerfi við losun hafta, fær­ist í lang­tíma­eignir. Þetta kemur fram í nýrri grein­ar­gerð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um fram­gang áætl­unar um losun fjár­magns­hafta sem var birt í dag.

Í grein­ar­gerð­inni segir að aðstæður til los­unar hafta séu nú um margt ákjós­an­legar. „Gott jafn­vægi er í þjóð­ar­bú­skapnum með afgangi af rekstri rík­is­sjóðs, verð­bólga er lág og und­ir­liggj­andi er við­skipta­af­gangur sem hefur skilað sér í upp­bygg­ingu óskuld­setts gjald­eyr­is­forða, sem nemur í dag um 60 millj­örðum króna.“

Þríþætt vandamál


Vanda­málið sem Ísland standi frammi fyrir sé hins vegar greiðslu­jafn­að­ar­vanda­mál. „ Það vanda­mál er þrí­þætt[...]aflandskrónu­vand­inn, vanda­mál tengd útgreiðslu úr fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem sæta slita­með­ferð og hugs­an­legt útflæði ann­arra aðila, þ.m.t. inn­lendra aðila. Áætlanir um losun hafta verða að tryggja að alvar­leg hætta eða örð­ug­leikar skap­ist ekki í gengis- og pen­inga­málum. Gjald­eyr­is­höftin eru vernd­ar­ráð­stöfun sem hafa tryggt stöð­ug­leika sem aftur skap­aði for­sendur fyrir end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins og úrvinnslu skulda­mála heim­ila og fyr­ir­tækja í land­inu“.

Umfang aflandskrónu­vand­ans nú er um 235 millj­arðar króna og heild­ar­eignir fjár­mála­fyr­ir­tækja í slita­með­ferð eru um 2.400 millj­arðar króna (41 pró­sent þeirra eru inn­lendar). Mun erf­ið­ara er að leggja mat á mögu­legt útlæði inn­lendra aðila en í skýrslu Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins frá 13. mars er áætlað að það gæti numið um 500 millj­örðum króna.

Í grein­ar­gerð­inni segir að í reynd séu ein­ungis tvær leiðir til að taka á þessum greiðslu­jafn­að­ar­vanda. „Það er annað hvort gert með því að (i) veita afslátt af inn­lendum eignum þegar þeim er skipt fyrir erlendan gjald­eyri (e. haircut), (ii) að tryggja að kvikar eignir fær­ist í lang­tíma­eignir, þ.e. að lengja í skuldum. Skil­málar slíkra breyt­inga á eignum og skuldum verða því að tryggja að ómögu­legt sé að gjald­fella þær eða koma á fyrra ástandi. Þannig má gera ráð fyrir skamm­tíma­eig­endur slíkra gern­inga veiti afslátt af þeim (haircut) við sölu en lang­tíma­fjár­festar hagn­ist á þeim til lengri tíma litið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár