Sigmundur Davíð: Stöðugleikaskattur ekki hugsaður í framkvæmdir eða útgjaldaraukningu

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að áætlun um losun hafta snú­ist að öllu leyti um að verja efna­hags­legan stöð­ug­leika og gengi krón­unnar. Fjármagn sem kæmi út úr áætl­un­inni, sem felur meðal ann­ars í sér álagn­ingu svo­kall­aðs stöðu­leika­skatts sem hefur ekki verið útskýrður að fullu, yrði ekki hugsað til þess að ráð­stafa í fram­kvæmdir eða verða hluti útgjalda rík­is­sjóðs.

For­sæt­is­ráð­herra sagði á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins á föstu­dag að skatt­ur­inn ætti að skila hund­ruðum millj­arða króna. Sig­mundur Davíð segir að hann og Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, séu algjör­lega sam­stíga í mál­inu. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Til greina kemur að framlengja vorþing til að klára málið


Þar segir for­sæt­is­ráð­herra einnig að hann sé bjart­sýnn á að hægt verði að losa um eignir erlendra kröfu­hafa nokkuð hratt. Það fari "þó eftir því hvernig menn laga sig að mál­inu." Til greina kemur að fram­lengja vor­þing Alþingis, sem á örfáa starfs­daga eftir sam­kvæmt áætlun, til að frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um álagn­ingu stöð­ug­leika­skatts nái fram að ganga.

Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sem situr í þverpóli­tískri nefnd um losun hafta, er ekki jafn hrif­inn af hug­myndum for­sæt­is­ráð­herra. Hann segir að fyr­i­r­á­ætl­anir um stöð­ug­leika­skatt kalla á margra ára mála­ferli þar sem kröfu­hafar muni leita réttar síns gagn­vart slíkri skatt­lagn­ingu, sem eigi sér ekk­ert for­dæmi í ver­öld­inni. Með skatt­lagn­ingu sem þess­ari muni taka mörg ár að afnema fjár­magns­höft.

Framsóknarþingmenn vita ekkert um málið


Í Frétta­blað­inu í dag kemur fram að lyk­il­þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa ekki séð útfærslu á skatt­inum. Vigdís Hauks­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar, sagð­ist ekki vera búin að sjá útfærslu á skatt­inum og viti því ekki hvort hann eigi ein­vörð­ungu að eiga við erlenda kröfu­hafa. Málið sé ein­fald­lega að þeirri stærð að hún viti ekk­ert.

Frosti Sig­ur­jóns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, hefur heldur ekki séð útfærslu á stöð­ug­leika­skatt­inum. Málið sé enn ekki komið til nefndar hans. "Sig­mundur og Bjarni eru þeir einu sem vita eitt­hvað um málið."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár